Vesturland - 01.12.1986, Side 3
3
;
JÓLAHUGVEKJA
MATARLYST
SKOTLAND
ÞJÓÐLEGUR
FRÓÐLEIKUR
VIÐTALIÐ
BYGGÐASTEFNA
FÖNDUR
SAGA OG
STJÓRNMÁL
JÓLASAGA
Fastur liður í jólablaði Vesturlands er jólahug-
vekja. Hana ritar að þessu sinni sr. Gunnar E.
Hauksson nýkjörinn sóknarprestur á Þingeyri.
Sjábls. 5.
Matur er mannsins megin. Um það efumst við
ekki. Þóra Davíðsdóttir, kokkuráHótel ísafirði,
hefur komið til liðs við okkur og lesendur blaðs-
ins með girnilegum uppskriftum. Sjá bls. 7.
Ólafur Helgi Kjartansson bæjarfulltrúi á ísafirði
greinirfráferð sem hann fór nú í sumartil Skot-
lands þar sem hann kynntist því hvernig tekið
er á ýmsum byggðamálum þar um slóðir.
Sjábls. 8.
Kristján Hólasmali heitir gömul frásögn af
hreystiverkum ungs smaladrengs á hinu forna
biskupssetri Hólum í Hjaltadal.
Sjábls. 12og 13.
Að þessu sinni er viðtalið við Hildigunni L.
Högnadóttur á ísafirði, þar sem vikið er að fé-
lagsmálum, stjórnmálum og stiklað á stóru í
lífshlaupi hennar. Sjá bls. 16 og 17.
Já byggðastefna. Hvað er nú það? Þannig er
oft spurt. Einar K. Guðfinnsson leitar svara og
rekur ástæður búferlaflutnings og þéttbýlis-
myndunar á liðnum áratugum hér á landi.
Sjábls. 18og 19.
Það er ómissandi þáttur hvers jólaundirbún-
ingsað fást viðföndur, þrautirog þvíumlíkt.
Kolbrún Halldórsdóttir hefur undirbúið verkefni
af þessu tagi. Sjá bls. 21.
30 ár eru liðin frá Súesdeilunni, sem margir
telja að hafi verið þýðingarmikill atburður í nú-
tímasögu okkar. Um hvað snerist hún? Hvaða
afleiðingar hafði hún? Um það fjallar Einar K.
Guðfinnsson í grein. Sjá bls. 23 og 24.
Sigrid Undset er ein af þeim stóru í hópi nor-
rænna rithöfunda. Hér í blaðinu birtum við hríf-
andi jólafrásögn hennar. Sjá bls. 29 og 30.
J ARÐG ANG AG E RÐ Gerð jarðganga er eitt af stóru hagsmuna- og
byggðamálum Vestfirðinga. Við höfum oft litið
til frænda okkar Færeyinga í því sambandi.
Halldór Bernódusson oddviti á Suðureyri fór
kynnisferð til Færeyja þar sem hann kynnti sér
þessi mál nú í sumar. Frá þeim greinir hann í
blaðinu að þessu sinni. Sjá bls. 27 og 28.
Forsíðumyndin er tekin á Siifurtorgi á ísafirði nálægt 1940. Ljósmyndarinn var
Haraldur Ólafsson, sem settist að á ísafirði rétt fyrir stríð og gegndi þar starfi
póstfulltrúa um skeið.
Stóra húsið með turnunum til vinstri á myndinni er Fell, en það brann vorið
1946. Hesturinn mun vera Brúnki gamli í Tungu með mjólkursleðann.
Haraldur Ólafsson póstfulltrúi og ljosmyndari er föðurbróðir Davíðs Odds-
sonar borgarstjóra. Hann tók mikið af myndum á ísafjarðarárum sínum, og
eru þær margar í eign Byggðasafns Vestfjarða.
Haraldur var rnikiil safnari, og á hann eitt besta minjasafn í einkaeign á
íslandi, auk þess sem hann hefur gefið Byggðasafni Vestfjarða marga góða
gripi.
Eftir einn áratug á Isafirði fluttist Haraldur aftur til Reykjavíkur, og starfaði
þar í Búnaðarbankanum í áraraðir.