Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Blaðsíða 7

Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Blaðsíða 7
inn. Uglan flaug upp með ánni, alla leið inn í dalbotn. Þar settist hún á háan tind, alnsjóvgaðan, og hóf seiðinn. Hún baðaði vængjunum og vældi — bar sig eins- og hún barmaði sér. En það var eintóm forneskja. Skömmu seinna sáu fuglarnir, sem bjuggu næst árósnum, bláan ugga skera vatnið. Þeir sáu ótal ugga. Það hlaut að vera heil ganga. Það glampaði á spegilfög- ur bökin. Þetta var í fyrsta skipti, að laxarnir gengu í nokkra á. Fuglarnir áttu bágt með að stilla sig. Laxarnir gengu lengra og lengra upp ána. Foss- ar og hringiður heftu ekki för þeirra. Inni í dalnum var áin svo grunn að þeir urðu að stökkva yfir steina og flúðir. Þeir hrufluðu sig og hreistrið straukst af þeim. Vafalaust hefði ugl- unni heppnazt seiðurinn og laxarnir hlaupið á þurrt land, hefði örninn ekki gleymt sér. Hann sat á háum kletti og velti fyrir sér, hvað uglan mundi haf- ast að. Allt í einu sá hann glampa á eitthvað niðri í gljúfrunum. Hann depl- aði augunum og kreppti gular klærnar. Silfurfagur lax stökk. Örninn lyfti vængjunum. Ha, ha, gall hann svo hátt, að undir tók 1 klettunum, og í sömu andránni hreppti hann bráðina. Þá sprakk uglan á seiðnum og laxarnir leistust af töfrum. Þeir ráku upp stór augu. Einn þeirra stakk forvitnum og eineygðum haus upp úr vatninu. Hann hafði nuddað af sér lýsnar og fannst hann vera búinn að kasta elli- belgnum. Hér er gott að vera, sögðu laxamir, lögðust niður á milli stein- anna og létu vatnið streyma inn og út um tálknin. Síðan hafa þeir allt til þessa dags gengið í árnar á hverju vori“. -----------Og svo skaltu heldur ekki láta þér bregða, þó að lágfóta gaggi á KomiS hsim a8 Víghól. VeiSin te\in úr töskunum. þig norðan af melnum. Hún á greni uppi 1 brúnunum, sem Andrés á Síðu- múla heimsækir á hverju vori. Nú lötrar Brúnn gamli út úr götunni, hægt, niður að ánni. Þarna er snotur hylur, sem hann ekki mátti fram hjá fara. Það er „Einar Pé“, rétt fyrir of- an Aquarium. Einar Pétursson, stór- kaupmaður, lenti einu sinni þarna í „rosaveiði". Og þú skilur það náttúru- lega, að í þakklætisskyni gaf hann hylnum nafn sitt. Hér lýkur — ef svo mætti að orði kveða, —- öræfunum við Þverá og sá kafli árinnar tekur við, sem almennt er stundaður af veiðimönnum, sem á Vighól dveljast. Aquarium er stór og lygn hylur. Áin rennur út í hann í tveim smákvíslum. Tíðast er að laxinn liggi á strauma- mótum kvíslanna. Sunnan og vestan- vert við hylinn rís allhátt bjarg og er oft gaman í góðu skyggni að horfa á lónbúana í tugatali í hylnum. Aquar- ium gefur oft góða veiði, en ekki verð- ur mælt með honum sem skemmtileg- um veiðistað, og fer fluga þar ekki vel, enda fátítt að lax taki þar flugu. Hins- vegar er þægilegt fyrir þá, sem trúa 5

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.