Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Blaðsíða 23

Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Blaðsíða 23
verður grýttari, er nær dregur út- rennsli hylsins. Að norðanverðu eru sléttar klappir, hallandi að hylnum, en á kafla, um miðjan hylinn, er djúpur áll innundir tvær grjótklappir eða sker, er standa upp úr norður við land- ið. Neðan við álinn er árbotninn nokk- uð sléttur að norðanverðu alllangt út, svo að hægt er að vaða langt frá landi, en megináll hylsins tekur við sunnanvert við klapparflötinn, og er þá vart meira en V3 árbreiddar til lands að sunnanverðu. Laxinn liggur, í venju- legri vatnshæð, mest niður með eyrinni að sunnanverðu og eins niður með klapp arflatabrún meginálsins að norðan- verðu, allt upp í litla þverálinn, sem áður var nefndur. Sé um mikla vatns- hæð að ræða, flytur laxinn sig meira til norðurlandsins og liggur þá um- hverfis fyrrgreind sker og eins á klappaflötunum neðan skerjanna og niður með landinu að norðanverðu. Á eyrinni, sunnan við Gaflhyl, er tvímælalaust talið bezta veiðisvæði í Norðurá framan af sumri, meðan lax er í göngu.. Straumur er mjög þægi- legur til fluguveiða, gott svigrúm til að kasta þangað sem laxvon er. Lax er líka allt sumarið í þessum hyl, svo að alltaf má búast við góðum tilþrifum þá og þegar. Fyrir neðan Gaflhyl tekur við stór- grýti og talsverður straumur og hefst þar svonefndur Almenningur, en svo var þetta veiðisvæði nefnt, að frá ná- grannabæjunum var dregið þar sam- eiginlega á og skift afla með sér. Al- menningurinn er óvíða það djúpur, að ekki sé hægt að vaða hann, sé áin ekki í vatnavöxtum. En botninn er ákaflega ósléttur, stórgrýttur og með klofnings- klöppum. Nokkuð neðarlega í Almenningnum Á ,,Eyrinni" neðan vi8 Laxfoss. að sunnanverðu er svonefndur Kaupa- mannapollur. Þar er nokkuð djúpt. Þar fengu kaupamennirnir í gamla daga að væta sig við ádráttinn. — Yfirleitt er mjög gott að veiða að noranverðu um allan Almenninginn og eins efst og neðst í honum að sunnanverðu. Laxinn liggur mikið efst í Almenningnum og eins við bergsnef, sem liggja þvert út í Almenninginn eins ogbryggjur (Tröllagangar). Yfirleitt veiðist mjög jafnt í Almenningnum og sjaldan mun þar laxlaust vera. Frekar má teljast auðvelt að vaða fyrir neðan Almenninginn á allbreiðu svæði. Þar fyrir neðan tekur við svo- nefndur Myrkhylur (Black pool) og er hann nærri í tvennu lagi. Allmikið straumkast er efst : hylnum og veldur því, að þegar flóð er í ánni, liggur lítið af laxi þar efra en flytur sig í varið, neð an við bergsyllurnar, sem eru neðan við efri hluta Myrkhylsins. í meðal vatns- hæð getur lax gengið þar efra um allan hylinn og alveg fast upp í straumkast- inu efst 1 hylnum, því að þar er nokkuð djúpt, einkanlega að norðvestanverðu. Bergsillurnar, neðan við efri hluta Myrkhylsins, eru ákaflega ósléttar og djúpskoróttar, og er því talsverð hætta á, að lax rífi úr sér á þeim. Nokkuð 21

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.