Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Síða 20
V ið veiðimannahúsið hjá Laxfossi í Norðurá.
má, að úr því að niður fyrir Glanna er
komið hefjist aðalveiðisvæðið í Norður-
á.
Glanni (Gleinarfoss) fellur aðallega
um tvær bergsillur og eru skálar í berg-
ið á báðum sillunum, sem Ker eru köll-
uð. Efri sillan er aðallega að sunnan
verðu og er í henni svonefnt Gilsbakka-
ker, en það var eign Gilsbakkakirkju frá
gamalli tíð, en síðar keypt af kirkjunni
aftur undir jörðina, sem kerið uppruna-
lega tilheyrði. I keri þessu má oft
sjá röð víð röð af laxi, þar sem hann
hvílir sig til næstu og síðustu atlögu
við að klífa fossinn. Eftir að fossbrún-
in var lækkuð, hefur orðið auðveldara
fyrir laxinn að brjótast upp úr kerinu.
Meginstraumurinn úr kerinu fellur
norður á við, en hinn hlutinn með land-
inu að sunnanverðu. Verður klofningur
um bergsnef á sillunni. Beint neðan uod-
ir bergsnefinu er næsta ker, lítið, en all-
djúpt, og er hægt að komast að norðan
að því keri til stangaveiði. Meðan leyft
var að veiða í fossum, var þar hægt um
vik fyrir miður innrætta veiðimenn að
draga fisk, án þess að beitan væri
girnileg.
Lægra og nær
landi að norðan-
verðu er stórt og
djúpt ker og fellur
lítil spræna af
fossbrúninni beint
ofan í það. Það
ber nafnið Hreða-
vatnsker. í flóð-
um er oft mikill
fiskur í því og var
stunduð netaveiði
þar, eins og í Gils-
bakkakeri.
Neðan við Glanna
tekur við langur
og djúpur hylur niður með berg-
inu sem rís lóðrétt marga metra upp (ca
5—10 m.). Hylur þessi er ýmist kallaður
Berghylur, eða Svartihylur. Helzt hef-
ur veiðzt í honum ofan til í straumkast-
inu frá fossinum, en yfirleitt er fiskur
tregur þar.
Fyrir neðan Berghylinn tekur við Rétt-
arhylur af öðrum kallaður Réttarfljót.
Það er mjög langur, breiður og djúpur
hylur og sést af klettunum oft mikill
fiskur í honum. Hann er yfirleitt mjög
lygn og því fremur erfitt að veiða í hon-
um. Helzt veiðist efst í hylnum og neðst
1 útfallinu. Þar er nokkuð grýtt og festu-
hætt, því mikið er af stórgrýti og slýi.
Síðari hluta sumars liggur oft mikill
fiskur þar í grjótunum.
Nokkur hávaði er fyrir neðan síðast
nefndan hyl, en brátt tekur við djúpur
hylur - niður með og neðan við kletta-
nef, er skagar út í ána að sunnanverðu.
Hylur þessi heitir Kýrgrófarhylur. Mjög
oft er gott til fanga í þessum hyl, bæði
efst með berginu og eins neðst í
hylnum, en þar er einnig mjög stórgrýtt
og festuhætt. Telja má þennan veiðistað
einn þann bezta og jafnastan á þessu
18