Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Qupperneq 22
Laxfoss.
verður lítil aukning á vatnsmagni fyrr
en kemur mjög neðarlega. Þar fellur
Gljúfurá fyrir neðan Sólheimatungu í
Norðurá. Hún er talsvert vatnsfall og
hefur upptök sín í Langavatni. Tals-
verð laxveiði er í henni og virðist fara
vaxandi. Þar sem Gljúfurá fellur í
Norðurá er einnig afrennsli úr svo-
nefndu Hópi í sama ós. Hópið er gott
silungsvatn.
Telja má, að bezta stangaveiðisvæð-
ið í Norðurá hefjist við Laxfoss og rétt
neðan við hann. Þar eru allstaðar
möguleikar á að „verða var“.
Laxfoss er sviphreinn foss, ef svo
mætti að orði kveða. Áin fellur þar í
þrem kvíslum fram af bergsávalabrún.
Nyrszta- og miðkvíslin bera aðalvatns-
magnið en syðsta kvíslin er lítil. Auð-
velt er að vaða yfir Norðurá á foss-
brúninni, þegar vatnsmagn er ekki því
meira. Klettar þeir, er greina fossinn í
kvíslar, eru aðeins smá stapar.
Neðan við Laxfoss eru aðallega þrjú
ker og eru tvö þeirra í norðurkvíslinni
en það þriðja í miðkvíslinni. Nyrzta
kerið er all stórt og síðan 1930 hefir
það borið nafnið Drottningarhylur en
var venjulega kallað Laxfossker áður.
Hlaut það nafnið við það, að Alexandrína
drottning veiddi þar nokkra silunga. í
miklum flóðum er oft krökt af laxi í
þessu keri og stekkur hann þá alveg
fast við land upp í fossinn en kemst
venjulegast skammt, því að fossinn er
þar mjög brattur.
Djúp rás er sunnanvert í norður-
kvísl fossins og fellur vatnsflaumur
þar í fallegri lóðrétti bunu, ca. 1,5—2
metra hárri, ofan í næsta ker, sem er
mjótt en djúpt og langt. Enda stekkur
laxinn þar tvímælalaust fegurstu
stökk, sem sjást við Laxfoss. En við-
námið er ekkert uppi í rásinni og fær
laxinn því ekki staðizt straumkastið
um leið og hann skellur upp 1 rásina
og sópast jafnharðan niður aftur.
Sunnan við bergið, sem almennt er
kallað Hausinn, er djúpt ker, svonefnt
Nikulásarker. Það stendur undir öllu
straumkasti miðkvíslarinnar. Nikulás-
arker er annálaður netaveiðistaður frá
gamalli tíð og er eign Stafholtskirkju.
Eftir að laxveiðilöggjöfin nýja kom til
sögunnar, hefur netaveiði lagzt þar al-
gerlega niður. Laxfoss var líka sprengd-
ur ofanvert við þetta ker og hefur það
sennilega bætt nokkuð laxgönguna
ofar í Norðurá, þótt mér sé nær að
halda, að gagnið sé minna en skyldi.
Meginstraumfallið úr Nikulásarkeri
og miðkerinu fellur saman á flúðun-
um fyrir neðan. En afrennslið úr
Drottningarhyl myndar sérstakan
streng niður með klöppinni að norðan-
verðu og ofan 1 Gaflhyl, er tekur við
fyrir neðan. Vatnaskil eru þó ekki á
milli þessara strengja. í þessum strengj-
um veiðist oft vel. Lax, sem hefur
þreytt sig á fossinum, lætur berast til
baka ofan í strengina og stundum al-
veg ofan í Gaflhyl.
Gaflhylur er mjög djúpur hylur, sem
lokast að ofan af þverhníptum hamra-
brúnum, sem eru neðan við áðurnefnd
ker. Að sunnan er sendin eyri, sem
20