Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Page 37
Minkaplágan
Minkarnir, þessi grimmu gráu nag-
dýr, virðast fagna miklu fylgi í sölum
Alþingis. Menn eru kannske út af fyr-
ir sig ekki mjög hissa á því. Hin prúða
sveit, er fyllir sali þingsins, er búin að
gera menn svo oft hissa, að menn eru
nú orðið jafnvel hættir að verða hissa.
Villiminkar hafa sést við ótal marg-
ar ár og fiskivötn hér á landi, og það
er ástæða til að ætla að plágan útbreið-
ist, rétt eins og þegar tala Alþingis-
manna var aukin, en ekki endurbætt.
Bændur, sem hlunnindi eiga að ám
og fiskivötnum, fagna ekki minkaplág-
unni. Þeir fyrirlíta mörðinn gráa.
Stangveiðimenn skilja hættuna, sem
af merðinum stafar. Þess vegna fagna
þeir áliti Arna Friðrikssonar fiskifræð-
ings, sem hann sendi landbúnaðarnefnd
Alþingis, eftir ósk nefndarinnar sjálfr-
ar, þar sem hann lagði til að minkun-
um yrði útrýmt og minkaeldi bannað.
En allt kom fyrir ekki.
Framsýni Péturs Ottesens, þing-
manns Borgfirðinga, varð að lúta fyrir
skammsýni meirihluta neðrideildar
Alþingis. Frumvarp hans um bann gegn
minkaeldi var fellt — það var drepið —
mörðurinn látinn lifa.
Framtíðin sker úr um skaðræði mink-
anna við ár og vötn á íslandi. Reynsla
annars staðar og fróðleikur sérfróðra
manna benda til þess, að lax og silung-
ur hafi nú eignazt ærin óvin í vatna-
löndum sínum, þar sem minkurinn er.
En þessir silfurfögru og sporðhvötu
lónbúar vita bara ekki, til allrar óham-
ingju, að versti óvinurinn situr mak-
indalega í eikarstólum Alþingis.
Stœrsti laxinn,
sumarið 1943
Heimir Sigurðsson í Garði í Aðaldal
veiddi 34 punda hæng í Stefánskvörn
í Laxá í Suðurþing. hinn 30. júlí á
Black Doctor 4/0. Laxinn var nýrunn-
inn. Stærsti laxinn sumaríð 1943.
Spurningar
Veiðimanninn langar til að leggja
eftirfarandi spurningar fyrir lesendur
sína, og vonast til þess að fá svörin sem
allra fyrst, en niðurstöður af þeim
verða birtar í vorhefti Veiðimannsins.
1. Hver álítið þér að sé skemmtileg-
asta laxveiðiá landsins?
2. Hver álítið þér að sé bezta lax-
veiðiá landsins?
3. Hver er eftirlætis flugan yðar?
Veiðimanninum
væri kærkomið, ef lesendur hans
vildu senda honum skemmtilegar sög-
ur, um einstaka veiðiviðburði, sem færu
vel til birtingar á „Flugnasíðunni“. —
VEIÐIMAÐURINN
óskar lesendum sínum gleðilegra
jóla og farsœls komandi árs.
35