Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Síða 3
SVFR
VEIÐIMAÐURINN
MÁLGAGN STANGAVEIÐIMANNA A ÍSLANDI
NR. 14
DESEM R
1950.
Ritstjóri: Viglundur Möller, Útgefandi: StangaveiOifélag Reykjavikur
Þorfinnsgötu 2. — Simi 3755. AfgreiOsla i VeiOimanninum, Lcekjartorgi
PrentaO i Ingólfsprenti 1950.
MEÐ ÞESSU TÖLUBLAÐI, sem er
hið 14. i röðinni, lýkur árganginum
1950, og hefur aðeins eitt tölublað ann-
að komið út á árinu.
Þá hefur sú breyting á orðið, að Páll
M. Jónasson, sem verið hefur ritstjóri
blaðsins siðan 1948, hefur nú látið af
starfinu, en undirritaður tekið það að
sér, a. m. k. fyrst um sinn.
Það mun vera sameiginleg skoðun
flestra eða allra veiðimanna, að nauðsyn-
legt sé að þeir eigi málgagn, þar sem
þeir geta komið áhugamálum sinum á
framfari og haldið á málstað sinum, ef
þvi er að skipta. Veiðiíþróttin er út-
breidd og vinsœl iþrótt um heim allan,
og þess vegna rná sifellt vænta ýmsra nýj-
unga og frétta frá þjóðum þeim, sem
hafa viðtækari reynzlu og margvislegri
möguleika til rannsókna og athuguna
á þvi sviði en við íslendingar. Það er
þvi æskilegt að hafa ráð á riti þar sem
hægt sé að birta þesskonar fróðleik og
leiðbeiningar, og það er ósamboðið
jafn-virðulegum iþróttasamtökum og
veiðimannafélögin eru nú orðin, ef
blað þeirra fylgist ekki með þvi, sem
gerist i veiðimálunum i umheiminum
eða er ekki að öllu leyti sem bezt úr
garði gert. En til þess að svo megi verða,
þurfa sem allra flestir unnendur iþrótt-
arinnar, bœði þeir sem félagsbundnir
eru og aðrir, að Ijá blaðinu lið sitt og
senda þvi fréttir og greinar.
Þeir, sem kauþa útlend veiðirit og sjá
þar eitthvað fróðlegt og skemmtilegt,
sem þeir telia gagnlegt að birta, ættu
að þýða það og senda Veiðimanninum,
eða a. m. k. lofa ritstjóranum eða blað-
nefndinni að vita um það. Eins er um
þá, sem eiga skemmtilegar endurminn-
ingar um veiðiferðir eða atvik, sem kom-
ið hafa fyrir við veiðar. Þeir œttu að skrifa
það niður og senda blaðinu það. Ég er
viss um það, að til er fjöldi manns, sem á
i fórum sinum þessháttar frásagnir, og
á hinu er enginn vafi, að menn hafa
alltaf gaman af að lesa þær, jafnvel þótt
ekki verði hjá þvi komist, að þær séu
sumar likar hver annarri. Ef einhverjir
Veiðimadwunn
1