Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Side 4

Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Side 4
skyldu vera lirœddir við' að senda þœr vegna þess, að þeir telji málinu eða stíln- um eitthvað ábótavant, myndi verða reynt að bœta þar um, eftir föngum, án þess að efninu yrði raskað. Skernrntilegar veiðiscgur, hnittin til- svör við ýms tœkifœri, broslegir atburðir á ferðalögunum o. m. fl. á allt heima í Veiðirnanninum. Skammdegiskvöldin og vetrarmánuð- irnir eru rétti tíminn til þess að rifja þetta upp og setja það á pappírinn. Okkur leiðist að biða eftir vorinu og laxinum og hugsum meira og minna um veiðiferðirnar frá þvi að „vertíðin“ end- ar og þangað til hún hefst aftur — lifum i endurminningunum um liðnar sælu- stundir og látum imyndunaraflið leika lausum hala. Þvi þá ekki að svala sálum okkar með þvi að setja þetta á pappír- inn, já, jafnvel framtiðardraumana lika? Þótt „Veiðimaðurinn“ sé gefinn út af Stangaveiðifélagi Reykjavikur, er hann í raun og veru málgagn veiði- manna um land allt. Það er því mjög æskilegt að félagar utan af landi láti þar „til sin hexra“ og sendi blaðinu grein- ar um áhugamál sin og fréttir af félags- starfseminni. Mestu erfiðleikar flestra islenzkra tírnarita eru fólgnir i þvi, hve fáir nenna að skrifa í þau. Það getur ekkert rit þrif- ist til lengdar eða orðið vinsælt, ef allt efni þess er eftir ritstjórann einan. Það er öruggasta leiðin til þess að allir verði þreyttir á báðum. Ég heiti á alla veiðimenn og unnend- ur veiðiíþróttarinnar að forða bæði mér og blaðinu frá þessum örlögum, og full- viss þess að þið bregðist mér ekki, kveð ég ykkur öll, með innilegri ósk um GLEÐILEG JÓL! V. Möller. ★ Um leið og ég læt af ritstjórn Veiði- mannsins, vil ég þakka stjórn Stanga- veiðifélags Reykjavikur, ritnefnd Veiði- mannsins og öllum öðrum, sem hlut eiga að máli, fyrir góða samvinnu og auglýs- endum. fyrir ánægjuleg viðskipti. Páll M. Jónasson. 2 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.