Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Qupperneq 9

Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Qupperneq 9
Ferlíkin dregin á land 6—7 faðma millibili, fengust t. d. einu sinni 16 „merar“. Eitthvað hefur hún einnig verið veidd á handfæri, og er þá stundum „sett fast“ meðan verið er að þreyta hana, en erfitt hlýtur að vera að „landa“ henni á þann hátt. Talið er að beztu veiðisvæðin séu kringum rastir. Ennfremur spurði ég þá félaga, hvort þeim þætti þetta eins skemmtileg íþrótt og laxveiði og hvort þeir teldu að hér gæti orðið um framtíðaríþróttagrein að ræða. Sigmundur varð fyrir svörum og sagð- ist ekki geta lagt hana að jöfnu við lax- veiðina, nema útbúnaður allur væri full- kominn, en annars væri það tvennt svo ólíkt, að um samanburð gæti tæplega verið að ræða. Hér væri sá kostur, að ekkert þyrfti að labba, en hinsvegar væri þetta óstundandi nema í góðu veðri og kyrrum sjó, en ef tíð væri góð, gæti þetta orðið ágæt uppbót á veiði- tímann, því veiðimöguleikar væru a. m. k. fram í október. Báðir telja þeir að þessi veiðigrein geti átt hér framtíð, ef menn geta feng- ið heppilega báta og annan nauðsyn- legan útbúnað. Ekki álíta þeir neina hættu vera veiði þessari samfara, ef veð- ur er gott og viturlega að öllu farið. Þung kylfa er höfð til þess að drepa fiskinn, og verður það að gerast áður en hann er innbyrtur, en til þess eru notaðar tvær sterkar ífærur. Veiðimaðurinn 7

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.