Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Qupperneq 17

Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Qupperneq 17
væru umræður frjálsar, ef fulltrúar vildu segja eitthvað eða bera fiam fyrirspurn- ir. Tóku þá margir til máls, og þótt skoð- anir væru skiptar um einstök atriði voru allir sammála um nauðsyn þess, að stofna sambandið. Að þeim umræðum loknum var frumvarpið tekið fyrir, og var það samþykkt með nokkrum smávægilegum orðabreytingum. Allmiklar umræður urðu um 12. gr. frumvarpsins, og var liún samþykkt með þeim fvrirvara, að stjórn- in undirbyggi fyrir næsta aðalfund breyt- ingartill. þess efnis, að tryggt skuli að 2 stjórnarmenn verði jafnan frá félögum utan Reykjavíkur. Stofnfélög sambandsins voru þessi: 1. Stangaveiðifélag Akraness, Akranesi. 2. Stangaveiðifélag Borgarness, Borgar- nesi. 3. Stangveiðifélagið „Fluga“, Rvík. 4. Stangaveiðifélag ísfirðinga, ísafirði. 5. Stangaveiðifélagið ,,Papi“, Rvík. 6. Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Rvík. 7. Stangaveiðifélag Sauðárkróks, Sauð- árkróki. 9. Stangaveiðifélagið ..Stöngin", Rvík. 10. Veiðifélagið „Svalbarðsá", Rvík. 11. Stangavóðifélagið „Uggi“, Rvík. í stjórn sambandsins voru kjörnir þess- ir menn: Formaður: Sæmundur Stefánsson. Reykjavík. Meðstjórnendur: Friðrik Þórðarson Borgarnesi. Pálmar ísólfsson, Reykjavík. Egill Sigurðsson, Akranesi. Víglundur Möller. Reykjavík. Kosningu sem endurskoðendur hlutu þeir Björn Björnsson og Ólafur Þorsteins- son, báðir búsettir í Reykjavík. Stjórnin hélt fyrsta fund sinn h. 2. nóv. s.l. og skipti þá með sér verkum. Gjald- keri er Friðrik Þórðarson, ritari Víglund- ur Möller og meðstjórnendur Egill Sig- ursson og Pálmar ísólfsson. Ákveðið var að skrifa öllum félögum, sem þegar eru gengin í sambandið, senda þeim lögin og biðja þau að senda sam- bandsstjórninni lög sín og félagaskrá. Ennfremur var samþykkt að skrifa þeim félögum, sem enn eru utan sam- bandsins og hvetja þau til inngöngu. Það, sem stjórnin hefur í hyggju að beita sér fyrir á næstunni, eru klakmálin og endurskoðun á veiðilögunum. Egill Sigurðsson gat þess á stjórnar- fundinum, að hann teldi það æskilegt, að sambandið gæti aðstoðað félögin við að fá menn til að kenna köst og önnur und- irstöðuatriði íþróttarinnar. Taldi stjórnin líklegt að bezt væri, að þau félög, sem þess kynnu að óska, ættu þess kost, að senda einn eða fleiri menn á námskeið til Reykjavíkur og önnuðust þeir síðan um fræðslu og leiðbeiningar í heimafélögum sínum að því loknu. Verkefni sambandsins eru mörg, eins og 3. gr. laganna, sem fjallar um tilgang Versl. Ásgeir G. Gunnlaugsson & Co. Austurstr. 1. Sími 3102. Veiðimaourinn 15

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.