Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Qupperneq 18
sambandsins ber með sér, en hún er á
þessa leið:
Tilgangur sambandsins er að koma á
sem víðtækustum samtökum stangveiði-
manna, gæta hagsmuna þeirra og bæta
aðstöðu þeirra til stangveiði í ám og
vötnum landsins með því:
1. Að vinna jafnan að nauðsynlegum
endurbótum á lax- og silungsveiði-
löggjöf landsins.
2. Að koma í veg fyrir hvers konar
rányrkju og ofveiði í ám og vötn-
um.
3. Að takmarka sem mest alla veiði
vatnafiska í sjó.
4. Að stuðla að aukningu fiskistofns-
ins í ám og vötnum.
5. Að vinna að því, að tekin verði til
fiskiræktunar ár og vötn sem fisk-
laus eru. en líkleg mættu teljast til
árangurs af slíkri raktun.
6. Að stuðla að auknum skilningi al-
mennings á málefnum sambands-
ins og tilgangi þess.
7. Að stuðla að góðri samvinnu stang-
veiðirnanna og veiðieigenda.
8. Að kenna mönnum að virða lög og
reglur um veiði.
9. Að kvnna stangveiðimönnum lög-
legar veiðiaðferðir og nýjungar á
því sviði, svo að stuðla að því, að
þeir geti aflað sér tilsagnar um
meðferð og notkun veiðitækja.
10. Að stofna til samkeppni í köstum
o. s. frv. eftir því sem aðstæður
leyfa.
11. Að stnðla að útgáfu nauðsynlegra
rita varðandi stangveiði.
12. Að vera fulltrúi stangveiðifélaga
og einstaklinga innan vébanda
sambandsins gagnvart því opin-
bera.
13. Að leitast við að jafna ágreining,
er upp kann að koma á milli sam-
bandsaðilja og vinna á móti óeðli-
legri samkeppni um leigu veiði-
vatna, án þess þó að hafa nokkurt
úrskurðavald, nema báðir eða all-
ir aðilar óski þess.
Sambandinu er ólieimilt að leigja,
kaupa eða tryggja sér veiðiréttindi
fyrir lengri eða skemmri tíma.
★
Stjórnin hefur fullan vilja á að vinna
að þessum málum í samráði og samvinnu
við félögin, en hvernig til tekst mun fram-
tíðin leiða í ljós.
V. M.
Veiðistengur
tek ég til viðgerðar.
Munið, aO nú er rétti tíminn til þess að Idta lagfœra veiðistöng yðar, svo hún verði i lagi ncesta sumar
VALDIMAR VALDIMARSSON
Hringbraut 85 Sími 80572
16 Veiðimaðurinn