Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Blaðsíða 28

Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Blaðsíða 28
því móti, því það er engan veginn víst, að íslendingar yrðu ávallt tilbúnir að hlaupa í skörðin, auk þess sem samtök veiðimanna myndu sennilega leggja bann við því. Það er því ólíklegt að marg- ar ár fengjust upp á slík kjör, nema hið opinbera trvggði eigendunum hliðstæða leigu og aðrir vildu greiða. og tæki þar með á sig áhættuna — tapið. íslenskir veiðimenn eru orðnir margir, og þeim fer alltaf fjölgandi. Á tiltölulega fáum árum hefur þeim fjölgað svo ört að nú skortir þá veiðivötn. Þeir munu því ekki sitja aðgerðarlausir og horfa upp á það, að árnar séu teknar út úr höndunum á þeim og leigðar útlendingum. Hið eina, sem hugsanlegt væri að samkomulag gæti náðst um við veiðimannasamtökin er það, sem drepið hefur verið á hér í blað- inu áður, að Ferðaskrifstofan fengi til umráða nokkra daga í einhverjum ám á sumri hverju til þess að ráðstafa til út- lendinga, sem hingað koma og langar til að veiða. F.n það væri það lengsta sem íslenzkir veiðimenn myndu sjá sér fært að ganga til samkomulags. Árangurinn af því að hleypa útlending- um í árnar svo nokkru næmi yrði senni- lega fyrst og fremst sá, að innlendir spekúlantar myndu ná í eitthvað af er- lendum gjaldeyri, annaðhvort í beinni greiðslu fyrir veiðiréttinn eða eftir ein- hverjum krókaleiðum, t. d. þeirri, að greiða dvalarkostnað útlendinganna og fá í staðinn gieiðslu íijá þeim í erlendri mynt, sem aldrei kæmi fram í dagsljósið. Mætti vafalaust finna einhver slík dæmi nú þegar, ef vel væri leitað. Ef ríkisvaldið vildi fara að taka ár á leigu til ráðstöfunar handa útlending- um, yrði það að greiða eigendunum miklu hærri leigu í íslenzkum krónum en það fengi fyrir þær í erlendum gjald- eyri. Tap yrði því óumflýjanlegt með því fyrirkomulagi, svo ástæðulaust er að fara um það fleiri orðum. Ofan á þetta bætist svo það, að vistar- verurnar, þar sem þær eru þá nokkrar, eru þannig, að ótrúlegt er að útlend- ingar vildu gista þær mörg sumur, þótt innlendir menn geri sér þær að góðu. En kostnaður við að gera þær að boð- legum bústöðum, eða reisa nýjar, yrði svo mikill nú, að í slíkt verður tæplega ráðist. Af því sem sagt hefur verið hér að framan, er auðsætt, að þessi áróður fvr- ir sölu íslenzkra veiðiréttinda í hendur útlendinga er vanhugsaður og vafasam- ur gróðavegur fyrir þjóðarheildina og líklegri til að vera runninn undan rifj- um þeirra, sem einhvers persónulegs hagnaðar gætu vænzt, heldur en hinna, sem bera hag heildarinnar fyrir brjósti. En það sem skiptir mestu máli er það, að með því að bægja íslendingum frá veiðiánum er verið að svipta þá þeim tækifærum, sem þeir hafa skapað sér til hollrar útiveru og heilbrigðrar ráðstöf- unar á sumarleyfum sínum, en það er tap, sem hvorki verður metið í íslenzkri né erlendri mvnt. Á aðalfundi Stangaveiðifélags Reykja- víkur 1949, var samþykkt tillaga þess efnis, að „fordæma það að veiðiár lands- ins væru leigðar útlendingum, á sama tíma, sem landsmenn vantaði veiði- vötn .. . . “ Stangaveiðimenn um land allt munu standa einhuga saman um þessa samþykkt, en hið nýstofnaða lands- samband ísl. stangaveiðimanna ætti að láta það vera eitt af sínum fyrstu verk- um, að endurnýja hana í nafni allra veiði- manna og skapa henni skilvrði til sigurs. íslenzkar veiðiár fyrir íslendinm! V. Möller. 26 Veiðimaðurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.