Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Page 30

Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Page 30
vatni. Silkituskuna valdi és>' að lokum O vegna þess, að öll önnur efni voru of gróf eða of þunn til þess að sýna veik- ustu straummyndanirnar. I kyrru vatni marraði t. d. ræma af gömlum vasaklút hreyfingarlaus í kali, en f miklum straumi flaksaðist hún eins og skyrta á þvottasnúru. Girnið sýndi betur en snæri smæstu bylgj uhreyfingarnar. Næsta þrautin var að koma áhaldinu rétt fyrir, svo trúa mætti sögu þess. Þá þurfti að gæta þess vandlega, að fótlegg- ir þess, sem það gerði, mynduðu ekki ó- heppiléga strauma. Þessvegna varð ég að hafa áhaldið í nokkurri fjarlægð og ofar en ég stóð. Ég býst við að bezt hefði verið að það hefði myndað rétt horn við prikið. Þar sem djúpir legustaðir voru við bakkana, þurfti ég ekki að vaða út í ána við rannsóknina, og má því búast við að réttari niðurstöður um straum- fallið hafi fengizt þar, einkum þar sem hægt var að liafa áhaldið lóðrétt yfir Staðnum og láta silkituskuna fljóta þar sem óskað var. Athuganir eins og þær, sem ég hef getað framkvæmt, skiptast í nokkra flokka: Fyrst, grunnu lægin, sem sumir fiskar kjósa, þá djúpu lægin, sem aðrir kjósa, hraðstreymt vatn, straumlítið vatn, kyrrt vatn, staði þar sem einstakir fiskar liggja og loks staði, sem liafa mis- munandi mörg af einkennum hinna livers um sig. A fjölbreyttu legustöðum, sem nefna mætti aðsetursstaði, var eitt strax auð- sætt — stærstu fiskarnir, hvort sem það voru heldur hængar eða hrygnur, völdu beztu staðina. Annað kom einnig strax ntjög greinilega í ljós — að því dýpra sem vatnið var, þess færri voru hvíldar- staðirnir. í öllum hyljum, þar sem ntargir fiskar lágu, var dýpið innan við fimm fet. Ekki er þó þar með sagt, að ntikill fiskur væri ekki í hyljum, þó ein- hver hluti þeirra væri mjög djúpur, heldur hitt, að hann valdi alltaf hvíldar- staðina þar sem grynnst var. Ég álít ekki að vatnsþrýstingurinn, sem dýpið orsakar, skipti fiskinn nokkru, því að ég sá marga einstaka fiska, sem virtust sækjast eftir að vera þar sem djúpt var. Þriðja atriðið vakti strax athygli mína, og það var, að þar sem fiskar liggja sam- an skipa þeir sér í samhliða raðir. Samt var undantekning frá þessu í tveim stöð- um, þar sem ég sá milli 10 og 20 fiska, sem höfðu raðað sér upp eins og til her- göngu. Ég er sannfærður um að straum- urinn átti á einhvern hátt sinn þátt í því, en nákvæma skýringu tókst mér ekki að finna. í grunnu vatni (innan við 5 fet) lágu fiskarnir allir jafn djúpt; í djúpu vatni völdu þeir fremur hið gagnstæða. Þeir geta legið miklu þéttar samhliða en hver upp af öðrurn, en ég verð aftur að játa, áð ég veit ekki ástæðuna. Eins og kunnugt er virðast klettar og steinar skapa betri leguskilyrði en aðr- ar jarðmyndanir, en þeir eru samt ekki nauðsynlegir. Torfuhnausar geta komið að sömu notum. Þetta höldum við, en þó er til fjöldi af legustöðum þar sem þessi þægindi eru ekki; og tveir hyljir, þar sem botninn var eingöngu smágrýti og malarsandur, voru góðir veiðistaðir. Annar þeirra var djúpur, á að giska 15 fet, hinn grunnur, ekki yfir tvö fet. í báðum var alltaf talsvert af fiski. Áhaldið leiddi þá undarlegu stað- reynd í ljós, að straumur var mjög mis- jafn í legustöðunum. Sumstaðar er eftir- sóttasti legustaðurinn í straumharðara vatni heldur en hliðstæðir staðir rétt hjá, en eitt var augljóst — að hvergi, sem ég 28 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.