Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Side 38

Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Side 38
miðvikudaginn 6. des. að Þórscafé við Hverfisgötu. Þar gerði formaður all- ítarlega grein fyrir framkvæmdum stjórnarinnar s.l. starfsár og að svo búnu las gjaldkeri upp reikninga félagsins. Litlar umræður urðu um hvorttveggja, og voru reikningarnir samþykktir að kalla mátti athugasemdalaust. Raddir komu þó fram um, að reksturskostnað- ur hússins við Norðurá væri nokkuð mikill, en við ítarlega sundurliðun osj skýringar gjaldkerans kom í ljós að sá úlgjaldaliður getur vart verið lægri, þó hár sé, að óbreyttum aðstæðum. Hagur félagsins má teljast góður eftir atvikum. Nokkur reksturshagnaður var á árinu — aðallega af inntökugjöldum nýrra fé- laga og árstillögum, enda var útleigu veiðivatnanna stillt svo í hóf, að um nokkurn verulegan hagnað af þeim gat ekki verið að ræða. Formaður gat þess í skýrslu sinni, að stjórninni hefði dottið í hug, að fjölga mætti um eina stöng í Elliðaánum næsta sumar. Væri það hugsað þannig, að fyn i hluta veiðitímans væru tvær stengur á neðra svæðinu, en síðari hlutann ein nið- urfrá og tvær uppfrá. Ekki voru menn á einu máli um þessa breytingu, og engin fundarsamþykkt var gerð um hana. F.ft- ir nokkrar umræður, þar sem Laxá í Að- aldal bar enn á góma m. a., var gengið til stjórnarkosninga, og fóru þær þannig, að stjórnin var endurkosin, að undan- teknum Val Gíslasyni, sem baðst undan endurkosningu, sökum annríkis. í hans stað var Pálmar ísólfsson kosinn. Stjórnin er þv.í nú skipnð þessum mönnum: Gunnar J. Möller, formaður. Gunnbjörn Björnsson, varaformaður. Ólafur Þorsteinsson, gjaldkeri. Konráð Gíslason, ritari. Pálmar ísólfsson, fjármálaritari. í varastjórn voru kosnir: Albert Er- lingsson, Sigmundur Jóhannsson (báðir endurkosnir) og Valur Gíslasson, og end- urskoðendur: Magnús Vigfússon og Brynjólfur Stefánsson, einnig endur- kosnir. Skemmtinefndin var einnig endurkos- in, en hana skipa: Gunnar Jónasson, Valdimar Valdimarsson og Víglundur Möller. Að kosningum loknum voru tekin fyr- ir önnur mál, eins og venja er til. Fyrir lágu tvær tillögur frá stjórninni — önnur þess efnis, að fella úr félagslögunum á- kvæðið um að i/j félagsmanna þyrfti að sækja aðalfund, til þess að hann væri löglegur, en hin um hækkun árgjaldsins. Umræður um þessi mál urðu ekki lang- ar, því tillaga kom fram um að fresta fundinum þar eð mjög væri orðið áliðið kvölds. Var hún samþykkt eftir nokkurt þóf og fundinum frestað. Sökum erfiðleika á að fá húsnæði til fundarhalda og að hátíðarnar fara nú í hönd, mun framhaldsaðalfundurinn el ki geta orðið fyrr en eftir áramót. Veiðimenn! Munið efir að tilkynna blaðinu breyt- ingar á heimilisföngum yðar, því að öðr- um kosti getið þér átt á hættu, að blað yðar komist ekki til skila. Afgreiðsla blaðsins er í verzl. Veiði- manninum við Lækjartorg, og þar fæst það alltaf. „Veiðimaðurinn“ 36 Veiðimammnn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.