Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Qupperneq 42
Flugur.
Norðlendingur, sem dvalið hafði í höfuðstaðn-
um í sumarleyfi, lagði af stað heimleiðis snemma
morguns í bezta veðri. Þegar hann kom að Elliða-
ánum, sá hann að veiðimaður var að landa fiski
skammt fyrir ofan brúna. Hann fór út úr bílnum
og gekk uppeftir, til þess að spyrja frétta og líta
á fiskinn. Þegar hann nálgaðist veiðimanninn, sá
hann að þetta var kunningi sinn úr Reykjavík.
Sunnlendingurinn tók upp fiskinn, lyfti honum
hróðugur á móti komumanni og sagði:
„Sæll og blessaður! Líst þér ekki bærilega á
hann þennan? Hann er alltaf 10 pund og alveg
nýgenginn."
Norðlendingurinn dró við sig svarið, en muldr-
aði að lokum eitthvað, sem liinn var ekki ánægð-
ur með.
„Jæja, við gerum okkur nú ánægða með þá
þessa,“ sagði sá sunnlenzki, „og meira en það, því
þetta er sú stærðin, sem skemmtilegast er að draga."
„Einmitt það,“ sagði Norðlendingurinn. „En ef
ég á nú að segja þér alveg eins og er, þá erum við
nú vanir að sleppa þeim þessum fyrir norðan.
Þetta er lítið stærra en maðkarnir, sem við notum
í Laxá í Aðaldal."
„Heldurðu að þetta sé nú ekki ýkt lijá þér?“,
sagði sá sunnlenzki.
„Ja, það er kannski svona álika ýkt eins og að
þessi lax þinn sé 10 pund," svaraði Norðlendingur-
inn.
★
Nokkrir veiðimenn sátu og spjölluðu saman um
veiðar og veiðiferðir. Kepptust þeir um að segja
frá afreksverkum sínum, og allir töldu fram sína
stærstu fiska, eins og lög gera ráð fyrir. Að lokum
sagði einn þeirra:
A. : „Ég er viss um að ég á aldrei eftir að lifa
aðra eins stund og þegar ég var búinn að landa
34 punda laxinum, sem ég fékk hérna um árið,
eftir tveggja klukkust. og 48 mín. viðureign, á
flugu nr. 6.“
B. : „Hvað varstu nú aftur gamall, þegar þú
veiddir þennan fisk og hvað er langt síðan?"
A.: „Hvað var ég gamall? Kemur það eitthvað
málinu við? Við skulum sjá, það eru fimrn ár
síðan. Ég hef verið 27 ára.“
B.: „Nú, hann ætti þá að vera orðinn 52 punda
þegar þú ert fimmtugur."
A. : „Hvaða bölvuð þvæla er í þér maður?"
B. : „Jú, sjáðu nú til. Þegar þú veiddir fiskinn
var hann 29 pund, og síðan eru 5 ár, segir þú.
Eftir þvx þyngist hann um eitt pund á ári. Aftur
á móti hefur flugan minnkað um 3 nr. hjá þér
þessi fimm ár, því að hún var nr. 3 þegar þú veidd-
ir fiskinn. Hún ætti því að vera orðin ca. nr. 17
þegar þú ert fimmtugur. Þú getur reiknað það
nákvæmlega út með þríliðu!"
★
Jón Einarsson, matsveinn á Agli Skallagrímssyni,
og Heimir Sigurðsson frá Tjörn í Aðaldal hafa
verið veiðifélagar í mörg ár í Laxá. Heimir er,
sem kunnugt er, einn af allra snjöllustu veiðimönn-
um, og enginn mun þekkja Laxá betur en hann.
Jón er kominn af léttasta skeiði, og þykir honum
nóg um áhuga Heimis. Elda þeir oft grátt silfur,
og þykir ávallt hin bezta skemmtun að hlusta á orða-
skipti þeirra. Kvöld eitt var sezt að spilum eftir
að búið var að borða, og var Jón einn þeirra, sem
spiluðu. Heimir svaf á legubekk í stofunni þar sem
spilað var. Hann ætlaði snemma út morguninn
eftir og hafði því háttað í fyrra lagi. Þótti honurn
heldur ónæðissamt þarna inni og hafði orð á því
við spilamennina. „Ég skal lúlla þér í svefninn
skarnið mitt meðan ég „sit yfir" næst“, sagði Jón.
„Dragstu í brott en vánda fordæða", segir Heimir,
og tók sér nú í munn orð Þórðar Arndísarsonar í
Kormákssögu. Jón svarað;. ekki, en glotti grunsam-
lega.
Leið nú góð stund og skemmtu menn sér við
spilin. En þar að kom, að einhver fór að hafa orð
á því, að mjög vont loft væri í stofunni. Þegar bet-
ur var að gáð kom í ljós, að lampinn ósaði mikið.
Stofan var orðin full af kolsýru, en Heimir kominn
að svefni. Þá stóð Jón upp og sagði: „Jæja piltar
mínir. Ég bið ykkur nú að afsaka að þetta hefur
komið niðri á ykkur líka; en ég skrúfaði upp í
lampanum áðan til þess að „klóróformera" hæng-
inn þarna á dívaninum, svo að hann strikaði dá-
lítið minna í fyrramálið."
★
S.l. suinar voru tveir mcnn að veiða á bát i
Laxá i Aðaldal. Það leið ekki á löngu unz lax
kom á færið og hegðaði sér all-óvenjulega. Hann
strikaði að bátnum, stökk upp úr vatninu og inn í
bátinn! Þetta var 12 punda fiskur. Þáð er ekki
oft sem þeir eru svona „samvinnuþýðir" í Laxá!
40
Veiðimaðurinn