Bændablaðið - 06.10.2022, Page 8
KYNNINGAR
Di
re
kt
a
Direkta leggur áherslu á heiðarleika, traust
og þekkingu í störfum sínum. Þær stöllur
hafa víðtæka reynslu af ýmsum sviðum
lögfræðinnar, þó með sérstaka áherslu
á eigna- og stjórnsýslurétt. Samanlögð
starfsreynsla þeirra á sviði þinglýsinga og
fasteignaskráningar spannar áratugi, en þær
hafa starfað m.a. hjá Þjóðskrá Íslands og
sýslumannsembættum og fleiri opinberum
aðilum, auk þess að sinna stundakennslu
í Háskóla Íslands og Endurmenntun
Háskóla Íslands.
Fyrir stofnun fyrirtækisins höfðu
eigendur áttað sig á að það var þörf
á markaðnum fyrir sérfræðinga sem
sérhæfa sig í fasteignamálum. Það var
áskorun að yfirgefa öruggan faðm ríkisins
og stofna eigið fyrirtæki og við blöstu alls
konar áskoranir, en ferlið var þroskandi
og skemmtilegt og reksturinn hefur
dafnað vel.
Starfsmenn Direktu þekkja ferlana við
fasteignaskráningu og tengd verkefni vel.
Þetta eru oft mjög flókin mál sem fólk gefst
upp á. Þá er gott að geta sótt í reynslubanka
Direktu þar sem allir eigendurnir hafa
sérþekkingu á þessu sviði.
Dæmi um mál sem Direkta sinnir er
lögfræðileg ráðgjöf varðandi skráningu
lóða og jarða, nýskráningu og samruna
fasteigna, þinglýsingar, fasteignamat,
brunabótamat, landamerki, landskipti,
stærðarskráningu og skipulag. Einnig
annast Direkta margvíslega skjalagerð
sem tengist ofangreindu, sem og gerð
eignaskiptayfirlýsinga.
Eitt af skemmtilegri verkefnum Direktu
er að ferðast um sveitir landsins til að hitta
viðskiptavini og samstarfsaðila. Fyrirtækið
leggur mikla áherslu á að vera í miklu
sambandi við fólk á landsbyggðinni og er í
viðskiptum um land allt, enda eru landamerki
og skráning fasteigna síður en svo bundin
við höfuðborgarsvæðið. Fyrirtækið veitir
ráðgjöf vegna útskiptinga lóða úr jörðum
auk aðstoðar við ýmsa skjalagerð sem
því tengist.
Oft er fólk komið á þann stað með mál sín
að við blasa dómsmál, sem geta verið góð og
þörf út af fyrir sig, en stundum er mögulegt
að komast hjá þeim. Því taka lögfræðingar
Direktu oft að sér sáttamiðlun, því þetta
eru persónuleg tilfinningamál sem snúast
ekki eingöngu um steinsteypu og peninga,
heldur það sem fólki er kært og hjartans mál,
eins og húsið sem það ólst upp í eða jörðina
sem það á. Einnig geta komið upp mál sem
varða heiti jarða, húsa og fasteigna, og eru
sömuleiðis gríðarleg tilfinningamál. Því er
þessi málaflokkur hvorki þurr né kuldalegur,
heldur mannlegur og tilfinningaþrunginn, og
er lögð áhersla á að hjálpa fólki.
Viðskiptavinahópurinn er traustur og
hefur vaxið og dafnað síðan fyrirtækið var
stofnað í ársbyrjun 2016. Leiðarljós Direktu
er að geta veitt vandaða, persónulega og
lausnamiðaða þjónustu. Margir lenda í því að
rekast á vegg og ná ekki að klára málin því
formkröfur eru flóknar og stjórnsýslan þung.
Því hefur Direkta frá upphafi lagt upp með
að gera gagn og hjálpa þeim sem þangað
leita að ljúka málum sínum.
Direkta hefur líka sérþekkingu í
þinglýsingum og hefur að undanförnu
veitt ráðgjöf við nýtt verkefni ríkisins
um rafrænar þinglýsingar, sem er mjög
spennandi verkefni og mikið framfaraskref.
En meðan þinglýsingar er ekki orðnar að
fullu rafrænar þurfa margir aðstoð við að
útbúa skjöl til þinglýsinga, svo allt fari í
réttan farveg, því margs konar formskilyrði
þarf að uppfylla sem ekki allir kunna skil
á áður en farið er með skjöl í þinglýsingu
til sýslumanns. Direkta vinnur því vítt og
breitt innan þessa sviðs, auk þess að sinna
ráðgjöf vegna erfðamála, svo sem gerð
erfðaskráa og uppgjör á dánarbúum.
Hjá Direkta ráða konur ríkjum og
una hag sínum vel. Það var hvorki
stefna né fyrirfram ákveðið að Direkta
yrði kvennavinnustaður en það æxlaðist
þannig í byrjun og gæti allt eins breyst í
framtíðinni. Það er notalegt andrúmsloft á
stofunni og alltaf góð og sérstök stemning
þar sem konur eru saman. Mikið er lagt upp
úr persónulegum samskiptum, mjúkum
höndum farið um skjólstæðingana og
hlýlega tekið á móti fólki.
Direkta tekur einnig þátt í
nýsköpunarverkefninu Eignamörk þar
sem fólk getur fært inn eignamörk sjálft
með þægilegum hætti. Það er gaman að
færa út kvíarnar og spennandi að taka þátt
í samstarfi með sérfræðingum og skapandi
fólki. Það er því ljóst að framtíðin er björt
og mörg spennandi verkefni fram undan.
Direkta er í Bæjarhrauni 22
í Hafnarfirði. Sími 571 8600.
Sjá nánari upplýsingar á direkta.is
Direkta lögfræðiþjónusta var stofnuð í byrjun árs 2016 og er í dag í
eigu lögfræðinganna Ástu Sólveigar Andrésdóttur, Önnu Siggu Ellerup
og Bryndísar Bachmann. Hjá þeim starfar svo Sunneva Reynisdóttir,
sem léttir undir með rekstur skrifstofunnar.
Direkta lögfræðiþjónusta og ráðgjöf tók til starfa í upphafi árs 2016 og hefur frá
upphafi sérhæft sig í fasteignarétti. Eigendur Direktu eru lögfræðingarnir Ásta Sólveig
Andrésdóttir, Sigríður Anna Ellerup og Bryndís Bachmann.