Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 9
Hú
sa
sm
ið
ja
n
Sveinn Enok Jóhannsson, vörustjóri hjá
Húsasmiðjunni, segir húsin, sem fáist í
mismunandi stærðum, koma fullkláruð
með gólfefnum, blöndunartækjum, hurðum,
eldhúsinnréttingu og baðinnréttingu en
án húsgagna.
Húsin uppfylla að sjálfsögðu kröfur
íslenskrar byggingarreglugerðar og í raun
þarf kaupandinn bara að koma húsinu fyrir
á sínum stað og festa það niður.
Húsin eru timburhús á sterkbyggðri
stálgrind sem auðveldar flutning til muna.
Þau koma í ákveðinni grunnútfærslu,
með eldhúsinnréttingu, ísskáp, vaski og
blöndunartækjum.
Baðherbergi koma með lítilli innréttingu
með vaski og blöndunartækjum, sturtuklefi
er á baðherbergjum en hægt að uppfæra í
innbyggða sturtu. Auk þess sem það fylgir
sólpallur öllum húsunum og hægt er að velja
um nokkra liti á húsin að utan.
Að sögn Sveins er þegar komin
mikil reynsla á húsin en þau hafa verið
í boði hér á landi í nokkur ár. Húsið á
Landbúnaðarsýningunni er 52 fermetrar að
stærð, auk þess sem hægt er að skoða hús á
plani Húsasmiðjunnar í Skútuvogi.
„Húsin eru einnig til í því sem við
köllum útleigueiningum sem henta vel
fyrir ferðaþjónustuna og ekki síst sem hús
fyrir bændagistingu. Þau hús geta verið 40
fermetrar og skiptast í tvær stúdíóíbúðir. Hin
útfærslan er 52 fermetrar og er þá með þremur
íbúðum. Einingarnar í báðum útfærslum eru
með séreldhúsi og baðherbergi.“
Húsin eru framleidd í Litháen og koma
fullbúin til landsins. „Þau njóta mikilla
vinsælda í Svíþjóð og Finnlandi þar sem
kröfur um gæði eru engu minni en hér á
landi.“ Allt pöntunarferli húsanna er mjög
einfalt en afgreiðslutími í dag hefur lengst
vegna mikillar eftirspurnar hjá okkar
viðskiptavinum. Eins og staðan er núna er
afgreiðslufrestur húsa frá því pöntun er gerð
allt að 20 til 30 vikur.“
Sveinn segir að mælt sé með að húsin
fari ofan á steypta dregara sem kaupendur
þurfi að setja upp.
„Kosturinn við húsin okkar er að þau
koma fullbyggð og vinna við að koma þeim
fyrir er lítil og framkvæmdatíminn því mjög
stuttur þar sem miðað er við að það taki tvo
menn tvo daga að gera húsin klár á þeim
stað sem þau eiga að standa.“
Húsasmiðjan, Skútuvogi 16,
104 Reykjavík. Sími 525 3000
Nánari upplýsingar um húsin er að
finna á www.husa.is
Húsasmiðjan hefur undanfarin ár boðið fullbúin og vönduð heilsárshús
sem henta vel sem sumarhús eða gistiaðstaða fyrir bændagistingu. Húsin er
fáanleg í nokkrum stærðum og koma fullfrágengin og tilbúin til notkunar.
Stærð húsanna er frá 25 og upp í 52 fermetra. Húsin koma alveg tilbúin
með innréttingum, gólfefnum, blöndunartækjum, ljósum og fleira.
Fjörutíu fermetra leikfangageymsla fyrir fjórhjólið og annan útivistarbúnað.
Húsi lyft á steypta dregara.
KYNNINGAR
Baðherbergi. Kosturinn við húsin
okkar er að þau koma
fullbyggð og vinna við að
koma þeim fyrir er lítil og
framkvæmdatíminn því
mjög stuttur ...“
Hús flutt til uppsetningar.
Hús, eins og það sem er á sýningunni Íslenskur landbúnaður.
Tvö 40 fermetra hús á Hvammstanga sem voru sett saman í eitt parhús. Eyri Seaside
houses, 530 Hvammstangi. Myndir / Húsasmiðjan
Hús frá Húsasmiðjunni við Meðalfellsvatn.Uppfærð eldhúsinnrétting.