Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 19
KYNNINGAR
Ka
up
fé
la
g
Bo
rg
fir
ði
ng
a
Kaupfélag Borgfirðinga svf. (KB), er
samvinnufélag í eigu íbúa á félagssvæði þess
sem nær yfir Vesturland frá Hvalfjarðarbotni í
suðri, að Kjálkafirði í vestri.
Verslun okkar er staðsett við þjóðveg
1 í Borgarnesi. Aðaláherslan og helstu
markmið með rekstrinum er þjónusta
við bændur og búandi, sem og
sumarbústaðaeigendur, áhugafólk um
garð og gróðurrækt og svo má lengi
telja. Verslunin býður upp á fjölbreytt
úrval á rekstrarvörum fyrir nautgripi,
sauðfé, hross og fiðurfénað ásamt
áburði, rúlluplasti, girðingarefni,
gæludýravörum, leikföngum,
málningu og ýmsu fleiru.
KB hefur um árabil verið með eigin
innflutning, bæði rekstrarvörur, fóður
og bætiefni fyrir skepnur. Margrét
Katrín Guðnadóttir kaupfélagsstjóri
er einnig dýralæknir og getur því veitt
öfluga ráðgjöf varðandi fóður, bætiefni
og steinefni. Ýmis innflutningur hefur
hitt sérstaklega í mark og veitt KB
ákveðna sérstöðu og ber þá helst að
nefna selen fyrir lömb, kalkperlur
fyrir kýr, handmjaltartæki fyrir
kindur og merar, Heatwave kálfa og
lambafóstruna sem er einföld í notkun,
léttir bústörf og er hagstæð í verði.
Allt sem þú vissir ekki
að þig vantaði
KB er með mikið úrval af aukahlutum
fyrir kerrur og vinnuvélar auk
útivistarfatnaðar, vinnufatnaðar
frá HH workwear, verkfæra og
heimilisvara. Árstíðarvörur eins og
jólavörur, veiðivörur, sumarvörur
og vörur fyrir garðrækt og svo
margt fleira sem þig grunaði ekki
að þig vantaði. Mikið vöruúrval er á
netverslun okkar www.kb.is og hefur
verslun þar verið að færast í aukana og
sendum við út um allt land.
Markmið Kaupfélags Borgfirðinga
er að veita góða þjónustu sem byggist
á góðu starfsfólki með víðtæka
þekkingu á vörum sem verslunin
býður upp á.
Kaupfélag Borgfirðinga,
Egilsbakki 1, 310
Borgarnes,
s. 4305500, www.kb.is
Starfsmenn búrekstrardeildar KB; Þröstur
Reynis son, Baldur Jónsson, Harpa Einarsdóttir,
Helga Rósa Pálsdóttir verslunarstjóri og
Jóhannes Benedikt Halldórsson.
Benedikt Hjaltason frá Hrafnagili hóf innflutning
og sölu á fjósbitum frá Andersbeton/VDVbeton í
Belgíu í janúar 2018 og tók við keflinu af Garðari
Skaptasyni sem hóf innflutning á bitum árið 1994.
Síðan Benedikt tók við hafa verið
fluttir inn um 11.300 m2 en í heildina
á þessum árum eru komnir um
65.000 m2, eða sex og hálfur hektari.
Auk fjósbitanna frá Andersbeton
selur Benedikt frá sama fyrirtæki
burðarbita og súlur undir fjósbitana,
djúp- og fleytiflóra, fóðurganga,
legubása og endaveggi fyrir
legubásaraðir.
Frá fyrirtækinu Bosch beton í
Hollandi hefur hann flutt inn og sett
upp fimm flatgryfjur fyrir vothey.
Einnig hefur hann söluumboð
fyrir steypuvörur frá CBCbeton
í Hollandi sem framleiðir for-
steyptar einingar í flatgryfjur og
mykjutanka. Með þessum einingum
er einnig hægt að móta og byggja
fiskeldisþrær, stoðveggi, vatnstanka
og efnisgeymslur fyrir jarðefni.
Vörunni er skilað heim til kaupenda
og í viðeigandi tilfellum annast hann
einnig uppsetningu.
Benedikt starfar einnig við
flutninga og landanir, þá einkum á
áburði og salti um nánast allt land.
Benedikt Hjaltason sími 894-6946
– netfang: fjosbitar@simnet.is
Be
nd
ek
t H
ja
lta
so
n