Bændablaðið - 06.10.2022, Síða 10
Mikilvægt er að hafa góða yfirsýn
og markmið um hvert skuli stefna í
búrekstrinum hvort sem búin eru stór eða
smá. Það auðveldar allan daglegan rekstur,
möguleg ættliðaskipti og sölu.
RML er leiðandi í ráðgjöf og miðlun í
þekkingu í landbúnaði. Við höfum í okkar
röðum fjölbreyttan hóp starfsmanna með
mikla þekkingu á starfsumhverfi bænda
og landbúnaðar.
Starfsemi okkar nær til landsins alls
og starfsstöðvarnar eru 12 talsins. Það er
í samræmi við eitt af grunngildum RML,
sem er að allir bændur eigi kost á faglegri
og óháðri ráðgjöf án tillits til búsetu. Helsta
markmið ráðgjafarinnar er að stuðla að
virðisauka og bættum búrekstri, bændum
og samfélaginu öllu til heilla.
Jarðrækt og fóðuröflun
Ráðgjöf RML byggir á viðamikilli
þekkingu og gagnadrifnum greiningum.
Við aðstoðum bændur t.a.m. við að finna
rétta áburðinn, bjóðum upp á hey- og
jarðvegssýnatöku auk þess að ráðleggja
við hvers kyns jarðvinnslu
Meðal annarra verkefna á þessu sviði
má nefna:
• skipulag endurræktunar
• jarðvinnslu, val á tækjum
og jarðvinnslutækni
• áburðargjöf og áburðaráætlun
• val á tegundum og yrkjum til notkunar
í kornrækt, túnrækt, grænfóðurrækt eða
orkujurtaræktun
• aðstoð við skráningu í jörð.is
• greiningu á fóðuröflunarkostnaði
garðyrkju
Sjálfbærni og grænar áherslur
Loftslagsbreytingar eru eitt stærsta
úrlausnarefni samtímans og þar leikur
landbúnaðurinn lykilhlutverk. RML veitir
ýmiss konar leiðsögn um landnýtingu,
meðal annars varðandi nýtingu á landi
til beitar eða val á landi til mismunandi
ræktunar. Ráðgjöf í landnýtingu
getur einnig falist í að skilgreina
nýtingarmöguleika heilla bújarða. Þá
aðstoðar RML og veitir ráðgjöf um
endurheimt vistkerfa.
Meðal loftslagsverkefna sem RML er
aðili að er Loftslagsvænn landbúnaður sem
er samstarfsverkefni stjórnvalda, RML,
Skógræktarinnar og Landgræðslunnar í
samstarfi við tugi bænda um land allt.
RML leiðir verkefnið Landbúnaður
og náttúruvernd í samstarfi við bændur
og stjórnvöld. Markmið og tilgangur
þess verkefnis er að kanna möguleika á
samþættingu landbúnaðar og náttúruverndar.
Bútækni, rekstur og framkvæmdir
RML veitir margvíslegan stuðning við
hina ýmsu þætti búrekstrarins svo bændur
geti fengið sem mest út úr starfsemi sinni.
Aðkoma RML getur verið margvísleg, allt
eftir óskum viðskiptavinarins. Lagt er mat
á núverandi stöðu og og veitt leiðsögn
við hvers kyns stórar ákvarðanir allt frá
framkvæmdum og hönnun nýrra bygginga
til rekstrar- og nýsköpunarráðgjafar. Auk
þess veitum við heildstæða eftirfylgni með
verkefnum sem koma á okkar borð.
Meðal verkefna geta verið:
• Rekstrargreining og kostnaðaráætlun
• Kostnaðarmat og styrkumsókn
• Verkáætlun og tilboðsgerð
• Samið við söluaðila og verktaka
• Eftirfylgni með framkvæmdum
• Úttekt á framkvæmdum
Hjá okkur færðu heildstæða og
þverfaglega aðstoð fyrir þann búskap sem
þú stundar.
Frá árinu 2016 hefur starfsfólk RML
unnið að verkefnum tengdum afkomu
bænda, fyrst í sauðfjárrækt en nú einnig í
mjólkurframleiðslu og nautakjötseldi og
sambærilegt verkefni í garðyrkju er að hefjast.
Verkefnin byggja á bókhaldsgögnum bænda
og gefa því góða mynd af stöðu einstakra
búa en einnig verður til rekstrargrunnur
sem nýtist við afkomuvöktun og
hagsmunagæslu fyrir viðkomandi búgrein.
Verkefnin hafa margsannað gildi sitt
varðandi upplýsingagjöf vegna stöðu
einstakra greina en ekki síður til þess að
bæta rekstrarvitund bænda. Verkefnin
hafa verið rekin af RML með styrk frá
þróunarsjóðum viðkomandi greina fyrir
utan sauðfjárræktina en á síðasta ári var
gert samkomulag um rekstur verkefnisins
til þriggja ára við matvælaráðueytið. Sífellt
er leitað eftir því að fá fleirri bændur til þess
að taka þátt. Áhugasamir bændur eru hvattir
til þátttöku og hægt er að hafa samband
við RML eða skrá sig á rml@rml.is
Ættliðaskipti – nýliðun
Ráðunautar RML hafa mikla reynslu í að
leiðbeina nýliðum við kaup á jörð og að
hefja búskap. Einnig vegna ættliðaskipta.
Á vef RML, www.rml.is, má sjá góðar
leiðbeiningar varðandi það að hefja búskap
og þau fyrstu skref sem þarf að stíga.
Ráðgjöfina má finna undir heitinu
Búseta í sveit.
Þjónusta sem er í boði í tengslum við
nýliðun/ættliðaskipti:
• Rekstrar- og viðskiptaáætlun
• Samningagerð
• Aðstoð við umóknir
Það borgar sig að spá í spilin
Starfsmenn RML sérhæfa sig í öllu sem
snýr að fóðrun, hirðingu, skýrsluhaldi fyrir
kynbótastarf búgreinanna, kynbótastarfi
og aðbúnaði búfjár. RML hefur umsjón
með kynbótastarfi búgreinanna og þróun
og þjónustu við skýrsluhaldsforrit. Hluti
ræktunarstarfsins felst í því að dæma búfé.
Við sjáum um
• kúaskoðanir
• lambadóma
• hrossadóma.
Helstu forrit sem RML vinnur með
og aðstoðar bændur í eru:
• Dk búbót – bókhald
• Fjárvís – skýrsluhald í sauðfjárrækt
• Huppa – skýrsluhald í nautgriparækt
• Heiðrún – skýrsluhald í geitfjárrækt
• WorldFengur – skýrsluhald í hrossarækt
• Jörð – landupplýsingar og skýrsluhald
í jarðrækt
Af hverju að leita ráða hjá RML?
• Þegar taka þarf stórar ákvarðanir
í búrekstrinum.
• Ef það eru tækifæri til að auka og bæta
gæði afurða.
• Ef bæta má fóðrun og heilsufar búfjár.
• Þegar skoða á möguleika á ræktun
og landnýtingu.
• Áttu jarðnæði og vilt fá hugmyndir
varðandi nýtingu?
• Langar þig að hefja búskap eða breyta
um búskaparform ?
• Viltu bæta reksturinn eða byggja nýtt?
• RML veitir opinberum aðilum ráðgjöf
varðandi landnýtingu, loftslagsmál og
fleira tengt landbúnaði.
Komið og heilsið upp á okkur í bás B
14 á landbúnaðarsýningunni og fræðist um
starfsemi RML.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
sími 516 5000, rml@rml.is, www.rml.is
Rá
ðg
ja
fa
rm
ið
st
öð
la
nd
bú
na
ða
rin
s
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) býður bændum og öðrum
upp á fjölbreytta ráðgjöf og þjónustu. RML var stofnað 2013 og
hefur frá fyrsta degi sinnt víðtækri landbúnaðarráðgjöf um land allt.
Ráðgjöf okkar er sniðin að þörfum landbúnaðarins hverju sinni og
við kappkostum að koma til móts við þarfir þeirra sem leita til okkar.
RML veitir ýmiss konar leiðsögn um landnýtingu, meðal annars varðandi nýtingu á
landi til beitar eða val á landi til mismunandi ræktunar.
Ráðunautar RML hafa mikla reynslu í að leiðbeina nýliðum við kaup á jörð og að
hefja búskap.
Verkefni RML tengd afkomu bænda hafa margsannað gildi sitt varðandi upplýsingagjöf vegna stöðu einstakra greina en ekki síður
til þess að bæta rekstrarvitund bænda.
KYNNINGAR
RML veitir marg-
víslegan stuðning
við hina ýmsu þætti bú -
rekstrarins svo bændur
geti fengið sem mest út
úr starfsemi sinni ...“