Fréttablaðið - 02.03.2023, Side 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 2. mars 2023
Neysluhyggjuklæðnaður, hannaður af Tinnu Bigum fatahönnuði. Pilsið er gert úr gömlum kvittunum úr ýmsum verslunum og jakkinn er gerður úr galla-
buxum. Rauði pokinn sem hangir yfir öxlina er búinn til úr afgöngum af siffoni. MYND/ÓLAFUR MAGNÚSSON
Sækir tískuáhugann til móður sinnar
Tinna Bigum lærði fatahönnun í Listaháskóla Íslands. Hún býr og starfar í Kaupmannahöfn
þar sem hún hefur fengist við ýmis skemmtileg verkefni. Endurvinnsla er henni hugleikin. 2
Samband mannsins við náttúruna
og allt lífríkið er Solveigu hugleikið.
jme@frettabladid.is
Laugardaginn 4. mars klukkan 16
–19 verður sýningin Leiðtogafund-
ur opnuð í SÍM Gallerý, innsetning
með skúlptúrum, ljósmyndum,
vídeó og málverki eftir Solveigu
Thoroddsen.
Ljósmyndir og myndskeið eru
frá ferðalögum Solveigar síðustu
tvö ár um Ísland og Grænland.
Umfjöllunarefnið í stóra samheng-
inu er manneskjan og náttúran:
aðskilnaður eða samruni, vald-
beiting eða samvinna, neysla eða
náttúruvernd: „Hið stóra verkefni
sem við stöndum frammi fyrir:
Að halda jörðinni lífvænlegri. Sá
möguleiki að vinna með nátt-
úrunni, finna sameiginlega fleti og
vinna út frá þeim, þeirri heildar-
hugsun að við erum öll eitt. Fram-
tíðin veltur svo á því hvernig koní-
akið fer í leiðtogana. Í sýningunni
er líka gefinn vonarneisti í formi
nýrrar kynslóðar,“ segir Solveig.
Tortíming jarðar
Solveig útskrifaðist með MA í
myndlist frá Listaháskóla Íslands
2015 og hefur unnið að myndlist
síðan. Viðfangsefni hennar eru
gjarnan samskipti manneskjunnar
og náttúrunnar: „Ég er einnig
undir miklum áhrifum múmín-
bókarinnar Halastjörnunnar eftir
Tove Janson. Halastjarnan stefnir
á ógnarhraða að jörðu og mun ef
til vill tortíma henni. Í ógnvænlegi
ástandi gerast þó magnaðir hlutir.“
Sýningin stendur til 22. mars
og er opin alla virka daga milli
klukkan 11–16. n
Leiðtogafundur
fyrir náttúruna
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is