Fréttablaðið - 02.03.2023, Page 20
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Á dögunum kom út skólínan
Divine Love eftir fatahönn-
uðinn Sigrúnu Úlfarsdóttur.
Þetta er afslöppuð og þægileg
skólína í lúxus bóhemstíl.
Sigrún hefur mikla ástríðu fyrir
hönnun og hefur hannað allt frá
dúkkufötum í barnæsku og til alls
hins sem er að gerast hjá henni í
dag. Hún fagnaði nýjustu hönnun
sinni og bauð til hönnunarboðs þar
sem nýja skólínan var kynnt.
„Ég hef teiknað, hannað og búið
til eitthvað síðan ég man eftir mér
og ávallt haft áhuga á fallegum
hlutum. Mér finnst reyndar allt fal-
legt, og sé fegurð í öllu,“ segir Sigrún
sem fór í Myndlista- og handíða-
skóla Íslands, sem er Listaháskólinn
í dag.
„Svo langaði mig að læra meiri
hönnun og var næstum sama hvaða
hönnun. Ég fór til Sovétríkjanna
upp úr tvítugu til að læra rússnesku
og leikhúshönnun. Það var mjög
áhugavert, því í Rússlandi er svo
mikið af stórkostlega fallegri menn-
ingararfleifð sem blandaðist á mjög
sérstakan hátt við sovéska stílinn.
Áhugi minn á Rússlandi hefur ávallt
verið til staðar og ég kom þangað
fyrst 18 ára gömul með foreldrum
mínum. Frá þeim tíma hef ég elskað
rússneska popptónlist. Svo langaði
mig að rannsaka þessa menningu
nánar og fór aftur þangað í nám
þremur árum síðar,“ segir Sigrún
sem kynntist eiginmanni sínum til
tuttugu ára í Rússlandi. Saman eiga
þau soninn Atla Vassili sem nú er 22
ára og býr í París.
„Það var eiginlega í Rússlandi
sem áhugi minn á tískuhönnun
vaknaði, þótt ótrúlegt megi virðast.
Hann hefði líklega kviknað á
öllum öðrum stöðum, en alla vega
fórum við Dimitri til Parísar og ég
lærði fatahönnun við tískuskólann
ESMOD. Eftir námið fórum við
aftur til Moskvu og þar vann ég sem
hönnuður í rússneskum leikhúsum
á árunum 1989–92,“ segir Sigrún.
Lagerfeld kúltiveraður og fágaður
Aðspurð segist Sigrún eiga sér fyrir-
mynd á meðal hönnuða.
„Ég vann fyrir Karl Lagerfeld
og finnst hann enn æðislegur og
mikil fyrirmynd. Hann var líka
svo kúltiveraður og fágaður. Hann
hefur samt aldrei notað mikið af
litum, sem ég er sjálf mikið fyrir.
Ég er líka hrifin af Gucci, eins og
það hefur verið undir listrænni
stjórn Alessandro Michele, sem
mjög litskrúðugt merki. Ég dáist
líka að Balenciaga og hönnuðinum
Íþróttasólar og skrautsteinar í lúxus bóhemstíl
Guðrún Gunn-
arsdóttir, vin-
kona Sigrúnar,
var alsæl með
nýju skóna sína
úr Divine Love
línunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Sigrún Úlfars-
dóttir hefur
hannað drauma-
skólínu sína.
Einkennandi
eru þægindi
þar sem mjúkir
sólar og skraut-
teinar samein-
ast.
Arna G. Einars-
dóttir, Eva Dögg
Sigurgeirs-
dóttir og Þóra H.
Ólafsdóttir létu
sig ekki vanta
þegar skólínan
var kynnt, enda
annálaðir tísku-
sérfræðingar.
Gleðin var í
fyrirrúmi þegar
Sigrún kynnti
nýju skólínuna
sem sló í gegn.
þar, Demna Gavsalia. Það merki er
reyndar ekki mjög litríkt, en þeir
hafa svo flott form. Munurinn er sá
að Lagerfeld/Chanel og Balenciaga
eru frönsk merki en Gucci er ítalskt
merki. Frakkar vilja hafa stílinn
svolítið meira „strict“.“
Fyrsta hönnunarstarf Sigrúnar
var hjá Charles Jourdan, stóru skó-
fyrirtæki í París.
„Þeir framleiddu eigin skólínur í
Suður-Frakklandi, sem er ótrúlegt
að hugsa til í dag. Fyrirtækið endaði
næstum á því að fara á hausinn upp
úr 2000, vegna þess að það þurfti að
borga frönsk laun. Tímarnir voru að
breytast og skóverð í heiminum að
lækka. Þeir framleiddu enn fremur
skó fyrir fullt af öðrum merkjum,
til dæmis Lagerfeld og Chanel.
Þeir framleiddu fyrir fyrirtæki
sem notuðu „made in France“ sem
mikilvægan sölupunkt,“ upplýsir
Sigrún.
Það var þannig sem hún komst að
hjá Lagerfeld.
„Ég byrjaði að hanna skó fyrir
Lagerfeld hjá Charles Jourdan. Svo
fór ég að hanna skartgripi og töskur
fyrir Lagerfeld. Innblásturinn fyrir
akkúrat þessa skólínu var að mér
finnst hannaðir hlutir oft of fastir í
sinni kategóríu. Miðað við hvernig
þjóðfélögin eru að þróast eru tísku-
kategóríur enn mjög íhaldssamar.
Mig langaði að gera skó með gim-
steinum, en samt íþróttasóla. Það
eru mest keyptu og þægilegustu
sólar í heiminum í dag en yfirleitt
getur maður bara fundið skó með
íþrótta-útliti að ofan. Mig langaði
að blanda þessu saman.“
Orkustöðvar í mannslíkamanum
Nafnið á línunni er það sama og á
fyrirtæki Sigrúnar, Divine Love.
„Nafnið kemur þannig til að á
tímabili hafði ég mikinn áhuga á
orkustöðvum/chökrum í ind-
verskum Ayurveda-fræðum. Ég bjó
til orkustöðva-skartgripi sem voru
seldir í Icelandair-Saga shop og
búðum í París. Hjartastöðin er mið-
chakran af sjö aðalorkustöðvum í
mannslíkamanum. Hún er miðstöð
ástar og kærleika og Divine Love
er alheimskærleikurinn. Það er
hvort eð er eina orkan sem til,“ segir
Sigrún.
Hönnunarferlið tók sinn tíma en
Sigrún byrjaði að hanna skólínuna
í byrjun árs 2021. „Venjulega tekur
ekki svona langan tíma að hanna
skólínu, en í Covid árin 2021 og
2022 tók allt lengri tíma en venju-
lega. Verksmiðjan var oft lokuð og
framleiðsla á frumgerðum á skóm
almennt er ekki möguleg í fjar-
vinnu. Venjulega tekur kannski
mánuð að fá hugmyndir og teikna
þær, síðan tekur fjóra til sex að fá
frumgerðirnar framleiddar. Eftir
það fer þetta að ganga hraðar.“
Hönnun Divine Love-skólínunn-
ar er afslöppuð og þægileg.
„Skórnir eiga að vera í lúxus-
bóhem stíl. Svo hef ég alltaf verið
veik fyrir Biba sem var hönnuður
í Seventies í Chelsea í London og
hannaði í lúxuslegum hippa-art
nouveau stíl. Skólínan mín er
framleidd í Portúgal, bæði af því
ég elska Portúgal og vegna þess að
þeir framleiða gæðavöru sem vart
er hægt að fá í Evrópu. Framleiðslan
er svo miklu betri en sams konar
framleiðsla frá Kína,“ segir Sigrún
og von er á fleiri týpum.
„Í undirbúningi eru fleiri skó-
módel. Ég hef ekki notað hæla
í þessari línu en langar að bæta
þeim inn. Mér þykja ítalskir hælar
fallegastir, mun fá þá og senda út
hælaskó og fleiri skó seinna á árinu.
Þeir verða líka seldir í einhverjum
„boutiques“ í Frakklandi frá og með
haustinu.“
Fyrir áhugasama er skólínan
Divine Love seld í Kaupfélaginu í
Kringlunni og Smáralind. Einnig er
hægt að skoða skartgripi Sigrúnar á
divinelove.is n
100% náttúruleg
hvannarrót
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
hvannarrót
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
8 kynningarblað A L LT 2. mars 2023 FIMMTUDAGUR