Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.03.2023, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 02.03.2023, Qupperneq 20
Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Á dögunum kom út skólínan Divine Love eftir fatahönn- uðinn Sigrúnu Úlfarsdóttur. Þetta er afslöppuð og þægileg skólína í lúxus bóhemstíl. Sigrún hefur mikla ástríðu fyrir hönnun og hefur hannað allt frá dúkkufötum í barnæsku og til alls hins sem er að gerast hjá henni í dag. Hún fagnaði nýjustu hönnun sinni og bauð til hönnunarboðs þar sem nýja skólínan var kynnt. „Ég hef teiknað, hannað og búið til eitthvað síðan ég man eftir mér og ávallt haft áhuga á fallegum hlutum. Mér finnst reyndar allt fal- legt, og sé fegurð í öllu,“ segir Sigrún sem fór í Myndlista- og handíða- skóla Íslands, sem er Listaháskólinn í dag. „Svo langaði mig að læra meiri hönnun og var næstum sama hvaða hönnun. Ég fór til Sovétríkjanna upp úr tvítugu til að læra rússnesku og leikhúshönnun. Það var mjög áhugavert, því í Rússlandi er svo mikið af stórkostlega fallegri menn- ingararfleifð sem blandaðist á mjög sérstakan hátt við sovéska stílinn. Áhugi minn á Rússlandi hefur ávallt verið til staðar og ég kom þangað fyrst 18 ára gömul með foreldrum mínum. Frá þeim tíma hef ég elskað rússneska popptónlist. Svo langaði mig að rannsaka þessa menningu nánar og fór aftur þangað í nám þremur árum síðar,“ segir Sigrún sem kynntist eiginmanni sínum til tuttugu ára í Rússlandi. Saman eiga þau soninn Atla Vassili sem nú er 22 ára og býr í París. „Það var eiginlega í Rússlandi sem áhugi minn á tískuhönnun vaknaði, þótt ótrúlegt megi virðast. Hann hefði líklega kviknað á öllum öðrum stöðum, en alla vega fórum við Dimitri til Parísar og ég lærði fatahönnun við tískuskólann ESMOD. Eftir námið fórum við aftur til Moskvu og þar vann ég sem hönnuður í rússneskum leikhúsum á árunum 1989–92,“ segir Sigrún. Lagerfeld kúltiveraður og fágaður Aðspurð segist Sigrún eiga sér fyrir- mynd á meðal hönnuða. „Ég vann fyrir Karl Lagerfeld og finnst hann enn æðislegur og mikil fyrirmynd. Hann var líka svo kúltiveraður og fágaður. Hann hefur samt aldrei notað mikið af litum, sem ég er sjálf mikið fyrir. Ég er líka hrifin af Gucci, eins og það hefur verið undir listrænni stjórn Alessandro Michele, sem mjög litskrúðugt merki. Ég dáist líka að Balenciaga og hönnuðinum Íþróttasólar og skrautsteinar í lúxus bóhemstíl  Guðrún Gunn- arsdóttir, vin- kona Sigrúnar, var alsæl með nýju skóna sína úr Divine Love línunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Sigrún Úlfars- dóttir hefur hannað drauma- skólínu sína. Einkennandi eru þægindi þar sem mjúkir sólar og skraut- teinar samein- ast. Arna G. Einars- dóttir, Eva Dögg Sigurgeirs- dóttir og Þóra H. Ólafsdóttir létu sig ekki vanta þegar skólínan var kynnt, enda annálaðir tísku- sérfræðingar. Gleðin var í fyrirrúmi þegar Sigrún kynnti nýju skólínuna sem sló í gegn. þar, Demna Gavsalia. Það merki er reyndar ekki mjög litríkt, en þeir hafa svo flott form. Munurinn er sá að Lagerfeld/Chanel og Balenciaga eru frönsk merki en Gucci er ítalskt merki. Frakkar vilja hafa stílinn svolítið meira „strict“.“ Fyrsta hönnunarstarf Sigrúnar var hjá Charles Jourdan, stóru skó- fyrirtæki í París. „Þeir framleiddu eigin skólínur í Suður-Frakklandi, sem er ótrúlegt að hugsa til í dag. Fyrirtækið endaði næstum á því að fara á hausinn upp úr 2000, vegna þess að það þurfti að borga frönsk laun. Tímarnir voru að breytast og skóverð í heiminum að lækka. Þeir framleiddu enn fremur skó fyrir fullt af öðrum merkjum, til dæmis Lagerfeld og Chanel. Þeir framleiddu fyrir fyrirtæki sem notuðu „made in France“ sem mikilvægan sölupunkt,“ upplýsir Sigrún. Það var þannig sem hún komst að hjá Lagerfeld. „Ég byrjaði að hanna skó fyrir Lagerfeld hjá Charles Jourdan. Svo fór ég að hanna skartgripi og töskur fyrir Lagerfeld. Innblásturinn fyrir akkúrat þessa skólínu var að mér finnst hannaðir hlutir oft of fastir í sinni kategóríu. Miðað við hvernig þjóðfélögin eru að þróast eru tísku- kategóríur enn mjög íhaldssamar. Mig langaði að gera skó með gim- steinum, en samt íþróttasóla. Það eru mest keyptu og þægilegustu sólar í heiminum í dag en yfirleitt getur maður bara fundið skó með íþrótta-útliti að ofan. Mig langaði að blanda þessu saman.“ Orkustöðvar í mannslíkamanum Nafnið á línunni er það sama og á fyrirtæki Sigrúnar, Divine Love. „Nafnið kemur þannig til að á tímabili hafði ég mikinn áhuga á orkustöðvum/chökrum í ind- verskum Ayurveda-fræðum. Ég bjó til orkustöðva-skartgripi sem voru seldir í Icelandair-Saga shop og búðum í París. Hjartastöðin er mið- chakran af sjö aðalorkustöðvum í mannslíkamanum. Hún er miðstöð ástar og kærleika og Divine Love er alheimskærleikurinn. Það er hvort eð er eina orkan sem til,“ segir Sigrún. Hönnunarferlið tók sinn tíma en Sigrún byrjaði að hanna skólínuna í byrjun árs 2021. „Venjulega tekur ekki svona langan tíma að hanna skólínu, en í Covid árin 2021 og 2022 tók allt lengri tíma en venju- lega. Verksmiðjan var oft lokuð og framleiðsla á frumgerðum á skóm almennt er ekki möguleg í fjar- vinnu. Venjulega tekur kannski mánuð að fá hugmyndir og teikna þær, síðan tekur fjóra til sex að fá frumgerðirnar framleiddar. Eftir það fer þetta að ganga hraðar.“ Hönnun Divine Love-skólínunn- ar er afslöppuð og þægileg. „Skórnir eiga að vera í lúxus- bóhem stíl. Svo hef ég alltaf verið veik fyrir Biba sem var hönnuður í Seventies í Chelsea í London og hannaði í lúxuslegum hippa-art nouveau stíl. Skólínan mín er framleidd í Portúgal, bæði af því ég elska Portúgal og vegna þess að þeir framleiða gæðavöru sem vart er hægt að fá í Evrópu. Framleiðslan er svo miklu betri en sams konar framleiðsla frá Kína,“ segir Sigrún og von er á fleiri týpum. „Í undirbúningi eru fleiri skó- módel. Ég hef ekki notað hæla í þessari línu en langar að bæta þeim inn. Mér þykja ítalskir hælar fallegastir, mun fá þá og senda út hælaskó og fleiri skó seinna á árinu. Þeir verða líka seldir í einhverjum „boutiques“ í Frakklandi frá og með haustinu.“ Fyrir áhugasama er skólínan Divine Love seld í Kaupfélaginu í Kringlunni og Smáralind. Einnig er hægt að skoða skartgripi Sigrúnar á divinelove.is n 100% náttúruleg hvannarrót 60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI hvannarrót Leyndarmál hvannarrótar Loft í maga? Glímir þú við meltingartruflanir? Næturbrölt Eru tíð þvaglát að trufla þig? Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru- verslun, Hagkaupum og Nettó. 8 kynningarblað A L LT 2. mars 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.