Fréttablaðið - 02.03.2023, Síða 30

Fréttablaðið - 02.03.2023, Síða 30
Óbærilegir verkir eru ekki eðlilegir einu sinni í mánuði. Það er bara engan veginn þannig. Guðfinna Birta Valgeirsdóttir SIGURÐUR SIGURJÓNSSON YLFA MARÍN HARALDSDÓTTIR ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON (LADDI) ANDREA ÖSP KARLSDÓTTIR VIKTOR MÁR BJARNASON KOLBRÚN MARÍA MÁSDÓTTIR ÁRNI BEINTEINN SELMA LÓA BJÖRNSDÓTTIR VILLI NETÓ   Endósamtökin vígðu í gær túrtappa-strætóinn Túrbus á upphafsdegi Endómars. Guðfinna Birta Valgeirsdóttir segir mikilvægt að fólk átti sig á því að verkir séu ekki eðli- legt ástand. odduraevar@frettabladid.is „Það er ekki nóg með að endómet- ríósa sé ekki tekin nægilega alvar- lega sem sjúkdómur heldur er hún mjög algeng í þokkabót,“ segir Guð- finna Birta Valgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka um endó- metríósu sem sviptu í gær hulunni af Túrbus – túrtappastrætónum. Hún segir einn af hverjum níu sem fæðist í kvenlíkama vera með sjúkdóminn. Hann sé því jafn- algengur og sykursýki án þess að hafa vakið mikla athygli. „Kannski vegna þess að þetta hefur verið feimnismál og konum hefur verið sagt að harka þetta af sér frekar en að vera með þetta væl. Þannig að okkur datt í hug að vera með ögrandi strætó sem mun kannski særa blygðunarkennd ein- hverra en er engu að síður mjög nauðsynlegur í okkar starfi.“ Guðfinna segir alveg ljóst að strætóinn muni vekja mikla athygli á götum úti en Þórdís Elva Þorvalds- dóttir átti hugmyndina að því að breyta strætisvagni í túrtappa. „Við ræddum alls konar frábærar hugmyndir en Þórdísi datt þetta í hug og það var aldrei spurning. Auðvitað! Þetta er alveg eins í laginu og þetta smellpassar við slagorðið okkar, sem er „Blóðug alvara“.“ Guðfinna segir eina alvarlegustu afleiðingu þeirrar ranghugmyndar að sársaukafullir móðurlífsverkir séu eðlilegir þá að greiningartími endómetríósu sé sjö til tíu ár. Eitt ár sé talið langur tími þegar um aðra, sambærilega algenga sjúkdóma er að ræða. „Við viljum líka gera fólki viðvart um það að tíðir eru eðlilegar en verkir eru það ekki. Að vera með verki er ekki eðlilegt ástand undir neinum kringumstæðum. Þetta er líka einmitt til þess að Minna á blóðuga alvöru með túrtappastrætónum Guðfinna Birta Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Endósamtakanna, um borð Túrbusi í gær. Fréttablaðið/Ernir Margir munu líklega snúa sér við er túrvagninn ekur fram hjá. Fréttablaðið/Ernir Boðið var upp á skot úr svokölluðum túr­ bikurum við vígslu Túrbus túrtappa­ strætósins. fá fólk til þess að hugsa: „Heyrðu já, ég er alltaf með verki, er það kannski ekki eðlilegt?““ Guðfinna bætir því við að þannig sé líklega fullt af fólki sem burðist með sjúk- dóminn og þá verki sem honum fylgi, án þess að hafa hugmynd um að þar sé ekki á ferðinni eðlilegt ástand. „Við viljum að fólk fái greining- una fyrr og líka eyða þessum gömlu tuggum um að svona sé það að vera kona. Óbærilegir verkir eru ekki eðlilegir einu sinni í mánuði. Það er bara engan veginn þannig,“ segir Guðfinna. „Stundum getur þetta líka verið mjög erfitt þegar það er kona að tala við konu, einhver sem kannski upplifir aldrei verki segir kannski: „Já, ég meina, þetta er ekkert svona slæmt, ég fer sjálf á blæðingar og ég fæ aldrei svona verki, þetta er ekk- ert svona,“ á meðan hin kannski er alveg frá þrjá daga í mánuði og með- vitundarlaus af verkjum.“ n 22 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 2. MARs 2023 fiMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.