Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Qupperneq 31

Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Qupperneq 31
Margt þarf að ganga upp Margt bendir til að urriðar fái mjög lítinn hluta heildarfæðunnar af yfirborði árinnar. Einhver benti mér á að líklega fengju urriðar um 15% fæðunnar af yfirborðinu. Púpur og nymfur sem fljóta með straumnum við botninn eiga því líklega meiri möguleika á að rata í færi við fiskinn heldur en agnarsmá þurrflugan sem gárar yfirborðið. Við þetta bætist að sjónsvið fiska er þröngt og keilulaga. Því nær yfirborðinu sem fiskurinn er því þrengra verður sjónsviðið og því nákvæmari þarf staðsetning flugunnar að vera til þess að hann sjái hana. Þrátt fyrir þessa annmarka er flest sem bendir til þess að hægt sé að lokka fisk til að taka flugu í yfirborðinu þótt hann vaki ekki - ef hann á annað borð sér fluguna. Þannig má oft sjá fisk rísa eftir þurrflugu þó að hann hafi legið á töluverðu dýpi. Þegar allt gengur upp er þurrfluguveiðin að vissu leyti hátindur fluguveiðinnar. Mér finnst aðferðin ekki endilega vera hátindurinn vegna þess að hún hafi eitthvað fram fyrir aðrar aðferðir heldur fyrst og fremst vegna þess hve krefjandi hún er. Öfgar fluguveiðinnar Það skemmtilega við þurrfluguveiðina er að hún dregur fram í veiðimanninum hans helstu dynti. Til eru svokallaðir hreinstefnusinnar í Bretlandi og víðar sem vilja ekki kalla neitt fluguveiði nema veitt sé með þurrflugum sem eru nákvæmar eftirlíkingar af raunverulegum skordýrum. Mér hefur því þótt þurrfluguveiðin á vissan hátt vera öfgarnar í heimi fluguveiðanna. Hvergi eru menn smámunasamari í vali á flugum, taumum, línum og köstum. Ég verð hins vegar að viðurkenna að þegar ég ákvað að prófa þurrfluguveiði hafði ég hreinlega ekki þolinmæði í það nostur sem hún kallar á ef ætlunin er að fara eftir bókinni. Oftast nær veiði ég með línu númer 4-5 og kasta púpum andstreymis með 10 punda taumi. Það er því handhægt að skipta yfir í þurrfluguna með því að setja grennri taum í framhaldi af þeim 10 punda. Set ég þá gjarnan 5 til 7 punda taum næst flugunni. Ég nota engin efni á tauminn sjálfan til að láta hann sökkva en úða gjarnan silíkoni yfir fluguna sjálfa til þess að hún fljóti lengur og betur. Stefán heitinn Jónsson segir í bók sinni "Lífsgleði á tréfæti með byssu og stöng" frá reynslu sinni þegar hann var að eltast við að fara nákvæmlega eftir ýmsum uppskriftum að því hvernig átti eða átti ekki að láta þurrflugutauminn sökkva. Þegar upp var staðið virtist hvorki skipta máli hvort taumurinn væri grannur eða glær né hvort hann færi undir yfirborðið eða ekki. Ég hef því ekki verið smámunasamur hvað þetta varðar og hreinlega ekkert gert nema grenna tauminn og úða fluguna þegar skipt er úr púpuveiði yfir í þurrfluguveiði. Tvennt sem lærist fljótt Lengi vel hafði ég ekki trú á þurrflugunni nema í logni og sólskini og ég sæi fisk vaka. Sigurður Gestsson félagi minn var hins vegar fljótur að sýna fram á að þessi tvö atriði - veðrið og það hvort hann væri að vaka eða ekki - skipta litlu máli. Hann hefur nefnilega hvað eftir annað afsannað þetta með því að setja í fisk á þurrflugu í öllum veðrum og vindum. Það virðist ekki skipta máli þótt yfirborðið gárist töluvert. Eini ókosturinn er sá að erfitt er fyrir veiðimanninn að sjá fluguna og bregða við fiskinum þegar hann tekur. Full ástæða er til að reyna þurrfluguna þótt ekki verði vart við líf í yfirborðinu. Mín reynsla er reyndar sú að ef bleikja sést vaka er hún nánast dauðadæmd. „Nú verður gaman,“ er oft viðkvæðið ef bleikja sést vaka oftar en einu sinni á sama stað því miklu þarf að klúðra til þess að hún taki ekki að lokum. Sjálfstraustið er því vissulega meira ef líf sést í yfirborðinu. Stærðin skiptir máli Það er einn af torráðnustu leyndardómum fluguveiðinnar - og þar af leiðandi lífsins - hvers vegna sumar þurrflugur virka betur en aðrar. Vonandi verður þeirri spurningu aldrei svarað því þessi leyndardómur gerir aðferðina jafn spennandi og hún er. Ekki ætla ég að fara í saumana á flugutegundum heldur læt nægja að nefna að líklega er aldrei meiri ástæða til að reyna margar tegundir eins og í þurrfluguveiði. Það Komiö á veiöistað. Dœmigerð þurrfluga, hármikil sem tryggir gottflot. Flugulínan er glœr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.