Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Blaðsíða 17
Ungur nemur, gamall temur - þriðji ættliður að kenna þeim fjórða. IVIargrét Þóra Kristmannsdóttir kennir dóttur sinni Birtu Dís
Sigurjónsdóttur réttu handtökin við veiðar í Stekkjarfljótinu út af Stekknum í Norðurá síðastliðið sumar en Norðuráin gaf þá metveiði
eða 3.308 veidda laxa.
sömuleiðis vilja að upphafveiði-
tímabilsins yrði fært aftar, t.d. til 5. júlí,
og veitt yrði lengur fram á haustið því oft
væri nóg af fiski í ánni í lok
veiðitímabilsins. Einar niinnti á að öflugt
klakstarf hefði skilað frábærunt árangri í
Rangánum og fiskgengd þar hefði verið
með eindæmum góð og veiðitölur hefðu
verið ótrúlegar. I ljósi þess væri það
lágmark að veiðiréttareigendur við
Stóru-Laxá legðu meira af mörkum í stað
þess að þiggja bara aukinn arð á sama
tíma og rekstur SVFR kæmi út í tapi.
Miklar blikur væru á lofti og
veiðiréttareigendur yrðu að taka á sig
skellinn eins og aðrir landsntenn.
Guðmundur Stefán Maríasson
formaður kvaddi sér næstur hljóðs og
svaraði Einari.Varðandi Elliðaárnar væri
því til að svara að Orkuveita Reykjavíkur
færi með forræði yfir ánum og ákvæði
veiðifyrirkomulag, þar með talinn kvóta.
Kvótinn í sumar hefði verið skertur
vegna þess að seiði sem setja átti í árnar
hefðu drepist. Ekki væri því hægt að
segja að tveggja laxa kvóti hafi verið
ákveðinn til frambúðar. Guðmundur
sagðist deila áhyggjum Einars vegna
Stóru-Laxár en það mætti koma fram að
net færu nú síðar niður í Hvítá og Ölfusá
en áður. Aform hefðu verið uppi um að
auka seiðasleppingar enVeiðimálastofnun
hefði lagst gegn því. Þá væri ekki
leyfilegt lögunt samkvæmt að veiða lax
lengur en til 30. september nema í ám
þar sem veiðin byggðist alfarið á
sleppingum gönguseiða. Stóra-Laxá væri
ekki í þeim flokki. Einar fékk nú orðið á
nýjan leik og las upp tillögu sem fól í sér
að kvóti í Elliðaánum verði aukinn úr
tveimur löxum í fjóra laxa á stöng.
Fundarstjóri vakti athygli Einars og
fundarmanna á því að þar sem að
Orkuveita Reykjavíkur ákvæði kvótann
þá væri í mesta lagi hægt að beina því tíl
stjórnar SVFR að taka kvótamálin upp
við Orkuveituna.Var Einar sáttur við þá
málsmeðferð og tillaga hans í framhaldi af
því samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum gegn einu. Aður en
fundarstjóri gafforntanni SVFR færi á að
flytja lokaorð, skaut Einar því að úr sæti
sínu að hann hefði gleymt að nefna
ýlurnar í tillögu sinni. Fundarstjóri lagði
því til að stjórn SVFR myndi skoða
ýlumálið sérstaklega.
Lokaorð
Guðmundur Stefán Maríasson formaður
sagðist hafa átt von á líflegri umræðum á
aðalfundinum í ljósi þeirrar erfiðu stöðu
sem nú væri i þjóðfélaginu. Hann sagðist
vonast til þess að ekki skapaðist
hættuástand á komandi ári. Formaður
sagði að í viðræðum stjórnar SVFR við
viðsemjendur sína hefði einn aðili nú
þegar neitað að verða við skynsamlegum
og eðlilegunt óskum SVFR um aðgerðir
sem grípa þyrfti til vegna
efnahagsástandsins og ört vaxandi
verðbólgu. Formaður sagði að SVFR
myndi ekki láta beygja sig til að hverfa
frá sanngjörnum kröfurn og kalla með
því stórtap yfir félagið. Hann sagðist loks
vilja þakka stjórn og starfsfólki fyrir
mikið og gott starf á starfsárinu.
Fundarstjóra þakkaði hann fýrir
röggsama fundarstjórn.
4 09
17