Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Blaðsíða 48

Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Blaðsíða 48
HÍTARÁ Á MÝRUM - HÍTARÁ II,TÁLMI OG GRJÓTÁ Veiðisvæði Hítarár á Mýrum samanstendur af tveimur svæðum, Hítará I og Hítará II. Áður hafa komið i Veiðimanninum veiðistaðalýsingar fýrir Hítará I en ekki hefur áður birst veiðistaðalýsing íýrir svæðið Hítará II. I þessari grein er bætt úr því. 4'09 VEIÐISTAÐALÝSING H ÍTARÁ II - Texti og myndir: Reynir Þrastarson Veiðisvæðið Hítará II samanstendur af Hítará fyrir ofan Kattarfoss að Hítarvatni, Tálma frá upptökum og Gijótá að Efstafossi. Þetta er víðfemt veiðisvæði og er Hítará ofan Kattarfoss 14 km löng með 35 merktum veiðistöðum.Tálmi að ármótum við Grjótá, 4 km löng með 11 merktum veiðistöðum og Grjótá að Efstafossi um 7 km löng með 32 merktum veiðistöðum. Aðgengi að veiðistöðum er misjafnlega gott og sumstaðar þarf að ganga nokkurn spöl að veiðistöðum. Á þetta sérstaklega við um efri hluta Grjótár og efri hluta Hítarár II. Hítará II,Tálmi og Grjótá Veiðihús fyrir veiðimenn er staðsett á bakka Gijótár, rétt við veginn upp í Hítardal. Þar er svefhaðstaða fyrir 8 í rúmum en einnig eru auka dýnur fyrir gestí. Hítará II er um 100 km frá Reykjavík og er ekið vestur á Snæfellsnes og beygt upp í Hítardal og ekinn vegur 539 að Gijótá. I byijun veiðitíma er veitt á ^órar stangir og eru þá seldir heilir dagar en frá byijun júK fram í seinni hluta ágúst er veitt á tvær stangir og eru þær seldar í tveggja daga hollum. Leyfilegt agn á veiðisvæðinu er fluga og maðkur.Veiði síðasta árs var með allra besta móti og veiddust 541 lax á svæðinu. Hefur laxveiði á svæðinu aukist verulega síðustu ár en á móti hefur bleikjuveiði dalað talsvert. Árið 2007 veiddust 170 laxar á veiði- svæðinu og árið 2006 veiddust 130 laxar. TÁLMI Veiðistaðir fyrir neðan Tálmafossa Til að komast að veiðistöðum fyrir neðan og ofanTálmafossa er ekið yfir brúna á Grjótá, beygt strax til hægri niður með ánni og meðfram Tálma. Hægt er að komast að ármótum Tálma og Kvernár eftir þessum vegi. Tálmi 1 - Ármót Fyrsti veiðistaðurnn í Tálma er við ármót Tálma og Kvernár. Litlu neðar kemur Melsá íTálma um hálfum kílómeter fyrir ofan ármót Tálma við Hítará. í Ármótum er helst að hitta á bleikju yfir sumarið og liggur hún mest í ál við landið vestanvert. Það borgar sig að fara varlega á þessum stað og prófa víða því bleikjan getur legið á mjög grunnu vatni. Mjög gaman er að veiða þennan stað með þurrflugu ef þannig viðrar. Tálmi 2 - Steinninn Rétt ofan við Ármót er Steinninn; lygn breiða og er stór steinn kennileitið neðarlega á þessum stað. Oft er hægt að finna bleikju við þennan stein. Tálmi 3 - Grettisoddi Grettisoddi er hægur strengur ofan við Steininn. Helst er að hitta á bleikju á þessum stað snemmsumars. Þessi staður er veiddur að austanverðu eins og flestir aðrir staðir íTálma. Tálmi 4 - Bóndabeygja Bóndabeygja er einn af betri bleikjuveiðistöðum í Tálma. Áin rennur þar meðfram háum grasbakka og dýpkar staðurinn töluvert neðantil. Gott er að byija að veiða þennan stað fyrir ofan strenginn og fikra sig smátt og smátt niður staðinn. Af og til veiðist lax í Bóndabeygju og þá helst síðsumars. Á þessum stað veiddi ég mína stærstu bleikju á þessu svæði og var hún 7 pund. Gullfallegur fiskur. Tálmi 5 - Jónsbeygja Jónsbeygja er fallegur staður rétt neðan við Hólmabrekkur og rennur áin þarna í beyju meðfram leirklöpp. Helst er að hitta á 4'09 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.