Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Blaðsíða 55
VEIÐISTAÐALÝSING HÍTARÁ II
neðarlega í strengjunum en sé lítið vatn þá ofarlega. Gott er að
byija við veiðistað 16 og veiða þessa staði niður að veiðihúsi.
Eins og annars staðar: renna fýrst og skyggna svo. Alla þessa staði
er hægt að veiða með flugu. Helst er að hitta á fisk á þessum
stöðum um göngutímann.
auðvelt að komast að öllum þessum stöðum og getur verið
örðugt að landa þar fiski. Allir þessir staðir geta gefið fisk mestan
part sumars. Ekki er gott að veiða þessa staði með flugu.
VEIÐISTAÐIR UPPI Á DAL
VEIÐISTAÐIR FYRIR
NEÐAN HRAUN
Til að komast að veiðistöðum i Grjótá fyrir neðan hraunkantinn
er farinn slóði sem er rétt við afleggjarann að veiðihúsinu og
keyrt upp með Grjótá. Þegar komið er að Grjótánni aftur er
veiðistaður 16 Hraunbolli.
Grjótá 17 Rennur, 18 Þrastarhylur, 19 Berghylur
og 20 Tröllastrengur
Frá veiðistað 16 er nokkur spotti að hraunkantinum í Grjótárdal.
Fólksbílum er fært að hraunjaðrinum en eftir það er mjög
stórgrýttur jeppavegur upp í Grjótárdal, vegurinn liggur að hluta
í gegn um lágvaxinn skóg. Ain rennur á þessunt spotta nokkuð
frá veginum og eru veiðistaðir 17 Rennur, 18 Þrastarhylur, 19
Berghylur og 20 Tröllastrengur í hnapp upp við hraunbrúnina.
Allir þessir staðir eru líkir á þann hátt að áin fellur niður litla fossa
niður í hylji þar sem laxinn hvílir sig á leið upp ánna. Ekki er
Til að komast að veiðistöðum uppí Grjótárdal er farinn slóði upp
með Grjótá. Hægt er að komast með fólksbíl að hraunkantinum
en ofan við það er einungis fært breyttum jeppum.
Grjótá 21 - Laxafljót
Laxafljót er einn af betri stöðunum í Gijótá. Þetta er langur hylur í
gjúfiinu og geymir lax mestan hluta sumars. Þar sem þröngt er um
vik er best að koma að þessum stað ofanfrá og renna maðkinum
rólega niður hylinn. Með góðum vilja er hægt að veiða þennan stað
með flugu. Laxinn liggur þar sem hvítfyssinu sleppir og niður undir
stóran stein í miðjum hylnum að austanverðu.
Grjótá 22 - Litli foss
Nokkuð ofan við Laxafljót er Litli foss. Þetta er eins og nafnið
gefur til kynna lítill foss og getur fiskur legið þar bæði í fosshylnum
og á fossbrúninni fyrir ofan. Helst er að hitta á fisk hér i göngu.
Grjótá 23 - Mosi
Rétt ofan við Litla foss er veiðistaðurinn Mosi. Þessi staður lætur
4 09
55