Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Blaðsíða 53
VEIÐISTAÐALÝSING HÍTARÁ II
Veiðistaðir við Valfell
Til að komast að veiðistöðum við Valfell er hægt að fara niður á
þjóðveg og upp með Hítará að vestanverðu. Þetta er seinfarin leið
og mjög tímafrek og einungis fær breyttum jeppum þegar komið
er upp í dalinn. Hinsvegar er hægt að fara gangandi meðfram
girðingunni er liggur að Valfelli en sú leið er torfarin og ekki fyrir
ung börn.
Veiðistaður 26 - 29
Veiðistaðir 26 að 29 eru litlir fosshyljir og strengir meðfram
Valfelli og er aðgengi að þessum stöðum mjög slæmt. Mikið
stórgrýti er í ánni á þessum kafla og hraunið meðframValfelli úfið
og erfitt yfirferðar. Einnig getur verið lítið vatn i ánni á þessu
svæði og því eru þessir staðir lítið reyndir.
Veiðistaður 30 - Bogi
Bogi er fallegur hylur rétt neðan við sandsteinsklett sem hefur
fallið niður í árfarveginn neðan við Teit. Ain rennur þarna að
mestu undir sandsteinsklettinn og liggur fiskur neðarlega í
hylnum við steina í botninunr. Erfitt er að veiða þennan stað
vegna sandsteinsklettsins og er ögrandi að reyna við fiska sem
stoppa í þessum hyl.
Veiðistaður 31 -Teitur
Veiðistaðurinn Teitur er nefndur eftir veiðimanninum Teiti Boga-
syni frá Brúarfossi. Sagan segir að á þessum stað hafi Teitur fengið
fýrsta lax sem veiddist fyrir ofan Kattarfoss eftir að laxastiginn var
gerður árið 1971. Enda staðurinn fallegur og umhverfið stórbrotið.
Teitur er falleg breiða fyrir ofan hraunkantinn þar sem áin fellur
niður í gljúfur meðframValfellinu. Best er að koma að þessum stað
ofanfrá og liggur laxinn oft í streng ofan við sjálfa breiðuna en mest
liggur hann við stóra steina við vesturlandið rétt ofan við brotið.
Veiðistaðir 32-35
Ofan viðTeit eru nokkrir staðir merktir (33, 34 og 35). Er stutt
að fara á milli þeirra en litlar sögur fara af veiði á þessu svæði þar
sem aðgengi að því er ekki gott og það lítið stundað.
Veiðistaðir neðan við Hítarvatn
Ofan við Valfell er oft lítið vatn í Hítaránni yfir sumartímann. A
þessu svæði kemur vatn í Hítará að mestu úr uppsprettum við
hraunkantinn. Þvi er þetta svæði ekki mikið reynt.
GRJÓTÁ
Veiðistaðir fyrir neðan brú
Til að komast að veiðistöðum í Gijótá fyrir neðan brú er ekin
vegurinn niður með Gijótá.
Grjótá 1 - Ármót
Ármót Gijótár ogTálma eru rétt fyrir ofan veiðistað 11 íTálma,
Úrhyl. Ármótin eru grunnur og ekki mikill veiðistaður en af og
til er hægt að rekast á lax og bleikju á þessum stað, þá helst í
göngu. Fer það mikið eftir vatnsmagni í Grjótá.
Grjótá 2 -
Þessi staður hefur ekki verið mikið stupdaður en þeir sem leggja
leið sina þangað geta rekið í fisk því staðurinn er yfirleitt vel
hvíldur. Áin rennur meðfram hraunkanti og neðst er strengur
sem laxinn liggur í. Fara verður varlega að þessum stað.
Grjótá 3 -
Er stuttur bakkahylur rétt fyrir ofan veiðistað númer tvö. Þarna
rennur áin meðfram hraunkanti, þrengist aðeins og við
þrenginguna er meira dýpi sem laxinn stoppar oft í á leið sinni
upp ána. Þessi staður á sammerkt með veiðistað tvö að vera lítið
stundaður.
Grjótá 4 - Réttarstrengur
Réttarstrengur er rétt fyrir neðan brúnna yfir Gijótá. Þarna er
striður strengur í ánni sem endar í lítilli breiðu. Hægt er að setja
i lax á þessum stað þegar hann er í göngu.
Grjótá 5 - Brú
Undir brúnni yfir Gijótá er fallegur hylur sem oft geymir lax.
Hægt er að kíkja ofan i hylinn ofan af brúnni en ég mæli ekki
með því.Til að veiða þennan stað er best að fara upp fyrir brúna
og renna maðki undir brúna niður í hylinn. Ef lax tekur verður
maður að taka hann upp fyrir brúna og landa honum þar við
erfiðar aðstæður. Gott er að hafa háf við hendina. En kosturinn
við þessar aðstæður er að þú truflar ekki staðinn. Þarna fást oft
fyrstu fiskar sumarsins i Grjótá.
4 09
53