Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Qupperneq 20
VEIÐIKONAN MJðtL
tiórnarinaður í SVFR eru miklir vinir. Gylfi Gautur hefur boðiö MJöll aö weiða með
Mioli og Gylfi G.utur Pétursion, itjornarmaður
stjórnarhollum í Norðurá.
hjálpa mér að landa laxinum. Þetta var nijög æsileg barátta og ég
fann adrenalínið beinlínis streyma um allan Kkamann Mér tókst að
landa fiskinum með góðri aðstoð Nonna. Þetta var fimm punda
hængur. Efíir það var ekki aftur snúið. Þessi lax var drepinn en ég vil
hins vegar taka það fram að ég er mjög mótfallin því að drepa lax og
sleppi öllum löxum sem ég veiði. Eg er ekki að veiða mér til rnatar
og á mjög erfitt með að drcpa lax.
Um kvöldið þegar borðhaldi var að ljúka og við stelpurnar vorum
að fara að taka af borðum, greip Eric í hönd mína, stóð upp og hélt
mér fastri. Það voru tíu leiðsögumenn í húsinu og þeir voru allir
kallaðir inn í matsalinn og einn var með veiðiuggann á bakka. Eg var
síðan látinn éta hann fyrir framan þá alla og lét mig auðvitað hafa
það. Þessi athöfn með maríulaxinn skapar alltaf mikla stemmningu í
húsinu og er hvetjandi fyrir fólk að halda áfram í veiðinni.
Þessi lax kveikti rækilega í mér. Síðan ég fekk maríulaxinn á
Hauginn hefur sú fluga verið rnitt aðalvopn og á hana hef ég tekið
flesta mína laxa. Mér finnst svo gaman að veiða núorðið að Gumrni
segir að það dugi okkur alls ekki að vera með eina stöng því ef við
þurfum að deila stönginni sé hann bara „bakkaskraut“.
Fékk stærri lax en eiginmaðurinn
„Fær haim sem sagt ekkert að veiða þegar þið eruð saman á stöng?“
Mjöll hlær áður en hún svarar spurningunni. ,Jú, okkur Gumma
gengur mjög vel að veiða saman. Það eru jöfh skipti á milli okkar og
aldrei neitt vandamál hver fær að byija. Gummi er rnjög flinkur
veiðimaður og klárari en ég. Hins vegar hef ég veitt stærri lax en
hann,“ segir hún með stríðnisglampa í augum.
Mjöll komst nefhilega í tuttugu punda klúbb
veiðimanna fyrir íjórum ámm en þá fóm hún og
„bakkaskrautið“ í fyrstu veiðiferð sína norður í Laxá í
Aðaldal.
„Þetta varð sögulegur veiðitúr,“ segir Mjöll. „Við höfðum bókað
Dodda [Þórð Pétursson] til að vera með okkur við ána en hann
veiktist og því vorum við með nýjan leiðsögumann á hverri vakt.
Við áttum fjögurra daga veiði bókaða en gáturn bara verið í tvo
daga. Eftir einn og hálfan dag vorum við búin að fara yfir öll svæðin
okkar og höfðum ekki fengið lax þótt öðrum veiðimönnum gengi
ágætlega.Við höfðum varla séð fisk, hvað þá annað. Eg ætlaði því
varla að nenna fram úr síðasta morguninn og var í alvöru að hugsa
um að sofa bara út. Við áttum hins vegar mjög spennandi svæði
þennan morgun, fyrir neðan Æðarfossa, þannig að ég lét tilleiðast og
hafði nfrg fram úr rúminu.Jón Helgi Vigfússon var leiðsögumaður
okkar þennan morgun og víð byijuðum á Breiðunni. Hann tók
undir hönd mér og beinlínis dró mig yfir ána. Ég er ofboðslega
vatnshrædd og veð helst aldrei dýpra en upp í nfrtti. Ástæðan er sú
að mér var næstum drekkt í Sundhöll Reykjavíkur þegar ég var 13
ára. Eg kafaði til að ná í hring sem ég fékk í fermingargjöf og ég hafði
misst í laugina. Þá stökk strákur ofan í og hélt mér niðri með því að
standa á bakinu á mér.