Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Page 40
LÁRUS KARL
C
I
Lárus Karl með fallegan lax úr Hnausastreng úr Vatnsdalsá.
Sigurður er frábær persóna, einstakur fluguhnýtari og segir mjög
skemmtilega frá. Bækurnar eru lagðar upp þannig að veiðimennirnir
eru eiginlega að ráðleggja mönnum um val á flugum og segja þeim
til á bakkanum. Þarna er heilmikill fróðleikur t.d. um hvaða flugur
skal nota við tilteknar aðstæður."
Myndirnar af flugunum eru margar hveqar einkar listrænar enda
leggur ljósmyndarinn mikið upp úr hverri mynd. „Ég vildi ekki
nota dauða bakgrunna því þá verða myndirnar eins og þær séu
teknar á spítala. Það verður að vera stemmning í þeim, eins og þær
séu teknar úti í náttúrunni eða í veiðihúsi. Svo eru veiðimyndir og
landslag inni á miHi sem gera bækurnar Mflegri. Textarnir eru hnit-
miðaðir og þar er að finna ýmsar skemmti- og reynslusögur."
Lárus Karl gefur íslenskum fiuguhnýturum hæstu einkunn. „Við
eigum marga snillinga í þessari listgrein. Þegar farið er svona nálægt
flugunum með linsunni er heldur enginn afsláttur gefinn. Þá sést
hvert einasta smáatriði. Og flugurnar eru frábærlega vel hnýttar.
Þetta eru yfirleitt miklir ástríðumenn í handverkinu og gera þetta
óaðfinnanlega."
I laxaflugubókinni eru nokkrar flugur sem fæstar er að finna í
fluguveskjum veiðimanna. Nægir að nefna t.d. fluguna Akroyd í því
samhengi. „Það er nú dálítið skemmtilegt að segja frá því að eftir að
bókin kom út hefur flugnaúrvalið aukist. Verslanir hafa á ný látið
hnýta sumar af flugunum sem voru hættar að fást. Það er gaman að
hafa orðið til þess að auka fjölbreytnina."
Lárus Karl kveðst veiða silung og lax jöfnum höndum. Hann
byijar veiðisumarið yfirleitt í Hlíðarvatni í Selvogi sem hann hefur
mikið dálæti á og fer síðan í Svartá í Bárðardal eða Laxá í Þing-
eyjarsýslu að glíma við urriðann. „Ég fer yfirleitt ekki nema í tvo
til þrjá laxatúra á sumri. Ég stunda helst haustveiðar á laxi þegar
verðið er orðið skaplegt. Ég reyni að komast árlega í fjölskyldutúr
í Krossá á Skarðsströnd sem er feiki skemmtileg fjölskylduá.
Skemmtilegasta veiði sem ég kemst í er urriðaveiði. Urriðinn er
líka svolítið agnvandur. Maður getur setið ráðalaus á bakkanum í
Laxá í Þing, búinn að kasta öflu í þurrfluguboxinu en þá er hann
að éta eitthvað allt annað aflt í kringum mann. Þegar maður hittir
á réttu fluguna er líka gaman að vera til.
Ogleymanlegur urriði
Þurrfluguveiðar eru toppurinn í veiðinni. Ég hef fengið sex punda
urriða á þurrflugu og mun aldrei gleyma því. Ég er á móti magn-
veiði. Ég held ég hafi aldrei komið með meira en fjóra laxa heim
úr veiðiferð. Ef ég fæ tvo til þijá urriða á dag er ég mjög ánægður.
Mér myndi ekki detta í hug að raða 20 fiskum í bakpokann hjá
mér. Góður veiðitúr snýst alls ekki um aflann heldur heildarpakkann;
félagsskapinn, útiveruna og náttúrlega allt þetta óvænta sem kemur
upp á í hverri einustu veiðiferð. Það er líka svo hollt að rifa sig burt
frá borgarlífmu og hugsa um eitthvað allt annað en vinnuna."
Ert þú afltaf með myndavél með þér í veiði?
„Ljósmyndun er ekki vinna. Hún er lífsstíll sagði koflegi minn eitt
sinn. Eg er alltaf með fltla myndavél með mér á bakkanum. Ég var
lengi vel með eina vatnshelda sem ætti að vera staðalbúnaður
veiðimannsins. Eg mæli með Pentax og Olympus vatnsheldum
vélum sem hægt er að stinga á kaf og taka myndir niðri í vatrnnu.
Þetta eru ffábær tæki að hafa með sér. Þegar ég er að vinna er ég hins
vegar með stóru græjurnar í farteskinu. Myndirnar verða betri með
alvöru græjum.“
40
4 '09