Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Blaðsíða 61
SVFR
SVFR-PUNKTAR
Tómasson skyldu gera tillögu um leigu Elliðaánna en Gunnar E.
Benediktsson, Óskar Norðmann og Brynjólfur Stefánsson gera
uppkast að lögum fyrir félagið. Nefndin kom tvívegis saman, og
varð ásátt um að leggja fyrir fundinn frumvarp að lögum fyrir hið
nýja félag.
Samþykkt var með 15 atkvæðum að félagið skyldi heita
Stangaveiðifélag Reykjavíkur.
Eggert Kristjánsson stórkaupmaður kvaddi sér hljóðs, taldi hann
nauðsynlegt að hverfundarmaðurfengifjölritað eintakaf lögunum
til þess að geta áttað sig á þeim og bar hann fram svofellda tillögu:
„Þar sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur verið stofnað og því
valið nafn, en þar sem lagafrumvarp fyrir félagið ekki er nægilega
undirbúið, þá ályktar fundurinn að halda framhaldsstofnfund
til þess að ganga frá samþykkt laganna, en í millitíðinni sé kosin
þriggja manna bráðabirgðastjórn, sem gæti hagsmuna félagsins
til næsta fundar." Eftir umræður var tillagan samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum og kosnir í bráðabirgðastjórn þeir Gunnar E.
Benediktsson formaður og meðstjórnendur Óskar Norðmann og
Friðrik Þorsteinsson.
Friðrik Þorsteinsson tók næstur til máls og skýrði fyrir fundar-
mönnum tilboð það sem nefndin (sem kosin var á síðasta fundi)
hefði komið sér saman um að gera í Elliðaárnar. Bar hann fram eftir-
farandi tillögur fyrir hönd nefndarinnar:
1) Að leigja Elliðaárnar í sumar, með sama fyrirkomulagi á rennsli
og var í fyrra fyrir kr. 2.800 og leggja til einn næturvörð.
2) Að leigja Elliðaárnar fyrir kr. 5.000 með frjálsu rennsli og ieggja til
einn næturvörð.
Eftir beiðni Ásgeirs Gunnlaugssonar kaupmanns var hvor liður
fyrir sig borinn sérstaklega undir atkvæði. Var fyrri liðurinn sam-
þykktur með níu atkvæðum gegn einu, en síðari liðurinn sam-
þykktur með öllum greiddum atkvæðum.
í lokfundar bað fundarstjóri þá menn sem vildu gerast stofn-
endur að félaginu að láta skrá(setja) sig hjá ritara og létu þessir
menn skrá sig:
Eiríkur S. Beck, Eggert Kristjánsson, Egill Vilhjálmsson, Sig-
urður Z. Guðmundsson, Jóhannes Z. Magnússon, Óskar Norð-
mann, Sigmundur Jóhannsson, Gunnar E. Benediktsson, Friðrik
Þorsteinsson, Guðmundur Helgi Pétursson, Jón Sívertsen,
Pétur H. Magnússon, Óskar Thorberg, Gunnlaugur Fossberg,
Magnús S. Magnússon, Gunnar Bachmann, EinarTómasson, Egill
Árnason, Eyjólfur Þorsteinsson, Kristján Sólmundsson, Sigurður
Sigurz, Ólafur Jónsson, Valur Gíslason, Indriði Waage, Þorbergur
Kjartansson, Pálmar (sólfsson, Friðrik Petersen, Agúst Jónsson
bakarameistari, Halldór R. Gunnarsson, Guðmundur Jóhannsson,
Björn E. Árnason endurskoðandi, Brynjólfur Stefánsson, Pétur
Halldórsson, Ólafur Gíslason stórkaupmaður, Morten Ottesen,
ÁsgeirGunnlaugsson, Lauritz Boeskov, Jón Símonarsson bakara-
meistari, Jón Þorvarðarson, Árni Knudsen, Þórarinn Kristjánsson,
Guðbjörn Guðmundsson, Jón Bergsson, Pétur Jóhannsson,
Sæmundur Stefánsson, Magnús Vigfússon, Lúðvík Lárusson og
Gunnlaugur Ásgeirsson.
FRAMHALDSSTOFNFUNDUR
Árið 1939, miðvikudaginn 24. maí, kl. 20:30 varframhaldsstofnfundur
í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur settur í Baðstofu Iðnaðarmanna.
Fundur þessi var boðaður skriflega og var hverjum félagsmanni
jafnframt sent fjölritað eintak að frumvarpi að lögum fyrir Stanga-
veiðifélag Reykjavíkurfrá síðasta fundi.
Ákvað fundarstjóri að hver grein frumvarpsins yrði borin undir
atkvæði sérstaklega með breytingum sem fram komu á fundinum.
Frumvarpið í heild yrði síðan einnig borið undir atkvæði með
breytingum sem samþykktar voru við hverja grein. Frumvarpið var
að lokum samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
í lögunum segir í 2. grein um tilgang félagsins:
• Að veita þeim félagsmönnum sem vilja, eftir því sem við verður
komið, aðstoð til að fá leigð veiðiréttindi í veiðiám og vötnum.
• Að vinna á móti því að notaðar séu veiðiaðferðir sem eru
ólöglegar eða líklegartil að spilla veiði.
• Að auka félagslyndi og samvinnu meðal þeirra er hafa áhuga á
og taka þátt í lax- og silungsveiðum og í félaginu eru.
• Að veita félagsmönnum fræðslu um lax- og silungsveiðar eftir
því sem tökeru á án verulegs kostnaðar.
Í4. grein var ársgjald félagsmanna ákveðið krónur 10,00og skal það
greiðast fyrir 1. apríl ár hvert.
í 5. grein er kveðið á um skipan 3ja manna veiðinefndar sem skal
kosin í félaginu, er hefur það starfá hendi að athuga hverjar veiðiár
eru á boðstólum til útleigu fyrir stangaveiði, og með hvaða kjörum.
Nefnd þessi skal og annast undirbúning og úthlutun á veiðileyfum,
eftil kemur.
I stjórnarkosningu hlutu þessir kosningu: Gunnar E. Benediktsson
lögfræðingur formaður. Meðstjórnendur Óskar Norðmann
stórkaupmaður og Friðrik Þorsteinsson'húsgagnasmíðameistari.
I varastjórn voru kosnir þeir Pétur Halldórsson deildarstjóri og
Brynjólfur Stefánsson forstjóri. Endurskoðendur voru kosnir Egill
Vilhjálmsson forstjóri og Egill Árnason umboðssali. I veiðinefnd
voru kosnir Einar Tómasson kolakaupmaður, Björn E. Árnason
endurskoðandi og Sigmundur Jóhannsson verslunarmaður.
Næsta mál á dagskrá var „Veiðiréttindi í Elliðaánum". Gunnar
E. Benediktsson tók til máls. Las hann upp tilboð sem gert hafði
verið í Elliðaárnar og bréf frá borgarstjóra. Bar hann fram eftirfarandi
tillögur:
1) Fundurinn ályktar að fela stjórn félagsins að samþykkja tilboð
rafveitunnar um leigu á veiðirétti í Elliðaárnar á þessu sumri, fyrir
kr. 3.500. og gera samning þessu viðvíkjandi við rafmagnsstjóra.
2) Fundurinn samþykkir að láta félagsmenn ganga fyrir um
leigu á veiðirétti í Elliðaánum í sumar en heimilar að leigja
utanfélagsmönnum verði ekki fullskipað af félagsmönnum
þann 28. maí nk.
Voru báðar þessar tillögur samþykktar með öllum greiddum
atkvæðum. f lok fundar bað fundarstjóri þá sem hefðu hug á því að
veiða í Elliðaánum í sumar að verða eftir þegar fundi væri slitið svo
þeir gætu rætt málið sín á milli.
4 '09
61