Fréttablaðið - 22.03.2023, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 22.03.2023, Blaðsíða 30
 Ég hef verið að henda mér í sánu, beint í snjó- skafl og svo inn í tíu klukkutíma að æfa og semja gítarsóló. Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari Skálmaldar MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGA KL. 19.00 OG 21.00 Vikulegur þáttur um íslenskt viðskiptalíf þar sem farið er yfir helstu viðskiptafréttir vikunnar ásamt öðru því sem hæst ber í efnahagslífinu hverju sinni. Skálmöld sendi í gær sína sjöttu plötu til Svíþjóðar þar sem hún verður masteruð eins og það heitir á hljóm- sveitamáli. Hljómsveitin hefur verið 16 tíma á dag í 11 daga að taka upp í Fljótunum þar sem hún hefur haldið til í Flóka Studios. Baldvin Kristinn Baldvinsson, faðir Þráins Árna gítarleikara, kom og söng. benediktboas@frettabladid.is „Pabbi gamli er stórsöngvari úr Kinninni og söng á fyrsta demói sem Skálmöld gerði fyrir fyrstu plötuna, Baldur. Þá vorum við bara að prófa og létum hann taka tvö lög. Núna er plata sex og við hugs- uðum að það væri ekki hægt að láta frá okkur sjöttu plötuna án þess að hafa manninn sem söng inn á fyrsta demóið. Að hlusta á gamla hetjusöngvar- ann með tvöfalda bassatrommu og brjálað þungarokk með var í einu orði stórkostlegt,“ segir Þráinn Árni Baldvinsson en faðir hans, stórbóndinn Baldvin Kristinn Bald- vinsson úr Torfunesi, mætti í stúdíó til Skálmaldar til að taka lagið. Skálmöld skilaði af sér sinni sjöttu plötu í gær og hélt hún með rafræn- um hætti til Svíþjóðar þar sem hún verður masteruð, eins og það kallast á hljómsveitamáli. Þar verður platan í góðum höndum Fascination Street Studios sem hefur áður séð um Opeth, Sepultura, Amon Amarth, Kreator, Arch Enemy og ýmsa fleiri. Þeir Skálmaldarmenn hafa haldið til í Flóka Studios í Fljótunum í Skagafirði síðustu ellefu daga en stúdíóið var búið til eftir tillögu frá sjálfum Justin Timberlake. Stúd- íóið er hluti af Deplar Farm og átti að vera móttaka fyrir sundlaug en Timberlake sagði að þetta yrði full- komið stúdíó. „Ég hef verið að henda mér í sánu, beint í snjóskafl og svo inn í tíu klukkutíma að æfa og semja gítarsóló,“ segir Þráinn. Torfunes er margfrægt hestabú og er í Kinninni í Þingeyjarsveit og Þráinn segir að það hafi verið auð- velt að plata þann gamla yfir til að taka lagið. „Það var auðvelt fyrir hestamanninn úr Þingeyjarsveit að bruna yfir til að taka lagið. Hann nýtti að sjálfsögðu tækifærið til að skoða hesta í nágrenninu,“ segir Þráinn. Upptökur gengu vel að sögn Þráins enda höfðu Skálmeldingar undirbúið sig vel og útkoman hefur gert þá alla spennta en þeir hlustuðu á afurðina á miðnætti á mánudag áður en hún var send utan. „Við höfum aldrei verið nánari og aldrei unnið jafn mikið saman. Garðar Þór, sem var hljóðmaður á síðustu tónleikaferð, var að allan sólarhringinn. Ég veit ekki hvenær hann hefur sofið. Okkur langaði að loka okkur af og þetta var stórkostlegt. Næst tökum við þó lengri tíma. Þetta voru ellefu dagar og ég held við tökum tvær vikur næst. Bara til að geta tekið einn frídag,“ segir Þráinn en það hefur verið kalt að undanförnu í Skagafirðinum og frostið verið í kringum 12 til 15 gráður. Þá er fínt að geta setið inni og samið og spilað. „Ég sat í þrjá daga í átta til tíu tíma inni í upptökuveri að semja og æfa gítarsóló. Eitt sólóið spilaði ég stans- laust í tvo klukkutíma. Ég samdi nefnilega eiginlega það erfitt sóló að ég gat ekkert spilað það. Ég varði mörgum klukkutímum til að þetta hljómaði vonandi ágætlega,“ segir Þráinn. Landsmenn geta næst séð Skálm- öld á Græna hattinum 4. og 5. maí en fram undan er biðin langa eftir sjöttu plötunni. n Pabbi gamli söng og spilaði inn á plötu með Skálmöld Baldvin Kristinn Baldvinsson, hrossabóndi úr Torfunesi, kom í Flóka Studios í Fljótunum, þar sem hann tók lagið en hann söng tvö lög með Skálmöld þegar hljómsveitin var að byrja forðum daga. Myndir/Aðsend Þráinn Árni samdi eitt gítarsóló sem var svo flókið að hann gat varla spilað það en allt hafðist það að lokum. 26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 22. mARS 2023 MiðViKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.