Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Page 11

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Page 11
SKIPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 1 1986 11 Halldór Halldórsson yfirlæknir Kristnesspítala ÖLDRUNARMÁL í AKUREYRAR- LÆKNISHÉRAÐI r ibúar Akureyrarlæknishéraðs voru þann 1. desember 1985 um 16.500, þar af 2.730 utan Akureyrarbæjar. Um 1.500 manns höfðu náð 67 ára aldri eða meira, þar af voru um 400 áttatíu ára og eldri. Dvalarheimili A ^■kureyrarbær rekur tvö dvalar- heimili aldraðra. í Hlíð, sem er rétt fyrir ofan Lystigarðinn, eru 107 gamalmenni. Við athugun haustið 1982 reyndust 74% vistmanna vera áttatíu ára og eldri. Frá 1. júní 1985 hafa fengist hærri daggjöld fyrir 19 af þessum 107 vistmönnum og telst því vera 19 rúma hjúkrunardeild í Hlíð, en mikið vantar ennþá á að aðbúnaður og vinnuaðstaða séu fullnægjandi. Stór viðbygging er fokheld og er það háð fjárveitingum hversu hratt framkvæmdum miðar. Þar er gert ráð fyrir 30 íbúðum vist- manna, en þó mun heiIdarfjöldi vistmanna ekki aukast sem þessu nemur, því að margir búa þröngt í núverandi húsnæði. í viðbygginguni er reiknað með húsnæði til dagvist- unar, föndurs og heilsuræktar. I dvalarheimilinu í Skjaldarvík, sem er um 7 km norðan við Akureyri, dveljast nú 77 vistmenn og búa margir þeirra mjög þröngt. Mikilla endurbóta er þörf á húsnæðinu og hafa tillöguteikningar verið lagðar fram, en óvíst er um framkvæmdir fyrr en Ijóst er um fjárveitingar. Þess- ar breytingar munu leiða til fækkun- ar vistmanna. Heimaþjónusta ^jskir eldra fólks beinast í þá átt að það fái að dveljast sem lengst í eigin húsnæði og til að auðvelda það sem flestum þarf verulegt átak til að auka heimahjúkrun og heim- ilishjálp. Þarf tæpast að benda á það að aukin heimaþjónusta og aukið framboð á hentugu húsnæði fyrir aldraða minnka þörfina fyrir pláss á stofnunum. Nú eru 15 stöðugildi við heimilishjálp á Akureyri og um 140 heimili njóta hennar; auk þess fá 40 heimsendingu matar. I Svalbarðs- strandarhreppi og Grýtubakka- hreppi er hafin heimilishjálp. Við heimahjúkrun á vegum Heilsu- gæslustöðvarinnar í Akureyrarlækn- ishéraði eru 6,6 stöður, sem 5 hjúkr- unarfræðingar og 5 sjúkraliðar skipta á milli sín, og njóta um 130 Akureyringar heimahjúkrunar. Ak- ureyrardeild R.K.Í. á 8 nýtískuleg sjúkrarúm sem leigð eru endur- gjaldslaust hjúkrunarsjúklingum í heimahúsum. Óánægja er með það í sveitahreppum héraðsins að þjón- usta heimahjúkrunar nær ekki þang- að, en athuganir undirritaðs leiddu í Ijós að hjúkrunarsjúklingar sveita- hreppanna virtust hafa átt greiðari aðgang að plássum langlegudeilda en Akureyringar, sem stafar senni- lega af því að þeir sem ákveða inn- lagnir vita að ekki er völ á heima- hjúkrun í sveitunum. Heimilishjálp og heimahjúkrun þarf að auka og koma á sólarhringsþjónustu jafnt virka daga sem helga. Við sem vinn- um að öldrunarmálum á Akureyri höfum ítrekað lagt áherslu á mikil- vægi þess að koma á dagvistun og íhlauparýmum á dvalarheimilunum en hvort tveggja myndi stuðla að því að gamalt fólk gæti lengur dvalist í heimahúsum. Þjónustuíbúðir r A ■ ■ þessu ári hefjast væntanlega framkvæmdir við þjónustuíbúðir aldraðra á Akureyri og eru fyrirhug- aðar um 70 íbúðir ásamt þjónustu- kjarna. Framkvæmdir þessar verða unnar á vegum Akureyrarbæjar og Félags aldraðra, sem stofnað var 1982. Árið 1983 gáfu verkalýðsfé- lög á Akureyri Félagi aldraðra Al- þýðuhúsið gamla, sem heitir nú Hús aldraðra. Þar fer fram mikið félags- starf fyrir aldraða á vegum félagsins

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.