Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Side 15

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Side 15
SKIPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 1 1986 15 Hans Jörgensson formadur Samtaka aldraöra s s s IBUÐARMAL ALDRAÐRA N l™ú á síðari árum hefur mikið ver- ið ritað og rætt um húsnæðismál aldraðra, og er nú komin nokkur hreyfing á þau mál. Almenningur og ráðamenn viður- kenna nú að þörf er á aðstoð við að leysa íbúðavanda aldraðra, hvar sem er á landinu, og flestir viður- kenna einnig að þörfin sé brýnust á höfuðborgarsvæðinu, vegna þess að þar eru andstæðurnar meiri og fjöl- þættari en í smærri samfélagseining- um. I Reykjavík er fjöldi aldraðra ein- angraður í stórum og litlum íbúðum, og þar á ég við, að afskiptaleysi fólks er meira í þéttbýli en þar sem fólk fylgist með daglegu lífi ná- grannans. í smærri byggðarlögum landsins og jafnvel í dreifbýli er fremur fylgst með störfum og lífs- hreyfingum nágrannans en á höfuð- borgarsvæðinu. Fólk er hvergi eins einangrað og í þéttbýli, þó að þetta hljómi undar- lega, en margt aldrað fólk í Reykja- vík lifir í sinni íbúð án þess að nokk- ur grennslist fyrir um hagi þess dögum saman. Það getur verið veikt án þess að nokkur fylgist með því, nema þá að það hafi áræði sjálft eða kunni við það að ónáða venslafólk úti í bæ til að biðja það að annast sig. Margir eiga enga að, sem þeir gætu leitað til. I starfi mínu í Samtökum aldraðra í Reykjavík hefi ég mjög orðið var við þetta, og þetta er það sem flestir hafa áhyggjur af þegar þeir finna að ellin er farin að sækja á. Margir vilja sem minnst leita á náðir barna sinna hvað þá annarra fjarskyIdra. Þessir ættingjar eða kunningjar eiga e.t.v. í fjárhagslegum erfiðleikum eða erfið- leikum annars eðlis, t.d. allir í skóla eða útivinnandi, svo að það vill ekki bæta þarna á nema þá í ýtrustu neyð. Eg hefi kynnst þessu í viðtölum við fólk, að þetta er megin ástæðan fyrir því að þeir sem eru á ellilifeyrisaldri þrá að komast í þjónustuíbúðir. Það vill um fram allt geta verið sem lengst sjálfstætt og bjargað sér sjálft, en vera þó í samfélagi með öðrum. Fyrsti byggingaráfangi Samtaka aldr- aðra voru tveggja hæða hús með alls 14 íbúðum, tveggja og þriggja herbergja, að Akralandi 1 og 3. í upphafi var rætt um að þjónustu- miðstöð yrði byggð af Reykjavíkur- borg þarna rétt við, en úr því varð ekki. Þetta var kannski hugdetta þess, sem skipulagði hverfið. Nokk- ur óvissa var um þetta þegar við létum teikna húsin, svo að við létum gera ráð fyrir matar- og samkomuað- stöðu í kjallara annars hússins, sem bráðabirgðaþjónustumiðstöð með- an annað betra fengist ekki. Þessum byggingaráfanga lauk haust- ið 1983. Við lentum í mikilli verð- bólgu og því urðu íbúðirnar dýrari en áætlun sagði til um í upphafi. Framkvæmdasjóður aldraðra var stofnaður, en við fengum ekkert úr þeim sjóði þá til að leggja í þjón- ustumiðstöðina, svo að frágangi hennar varð að fresta. Framkvæmdasjóðurinn virðist a.m.k. hingað til hafa verið fyrir sveitarfélög en ekki fyrir það gamla fólk í Reykjavík, sem reynir að bjarga sér sjálft. Næsti byggingaráfangi Samtakanna er núna í smíðum við Bólstaðarhlíð nr. 41 og 45 í Reykjavík. Þetta eru alls 66 íbúðir, tvær gerðir tveggja herbergja og svo þriggja herbergja íbúðir. Borgarstjórn Reykjavíkur setti árið 1983 á stofn nefnd til að vinna að húsnæðismálum aldraðra, og með henni ásamt borgarstjórn, fékkst samstarf um að Samtökin byggðu þessar íbúðir í tveimur 7 hæða blokkum, en borgin kostaði að mestu þjónustumiðstöð, sem tengi- byggingu fyrir húsin, Bólstaðarhlíð 43, og tæki svo að sér rekstur henn- ar fyrir íbúa húsanna og aldraða íbúa í nærliggjandi hverfi. Ég tel að starf þessarar nefndar hafi orðið mikil lyftistöng fyrir bygginga- mál aldraðra í höfuðborginni, og það hefur komið í Ijós að mikil eft- irspurn er eftir þessum íbúðum, þó að þeir sem kaupa þær fái enga aðstoð við kaupin nema almennt húsnæðisstjórnarlán, og þar að auki skapar það erfiðleika kaupenda, að verð eldri íbúða hefur staðið í stað í meira en ár og því stórlækkað miðað

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.