Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Síða 20

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Síða 20
20 SKIPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 1 1986 um að ræða þjónustuíbúðir í eigu sveitarfélaganna og söluíbúðir. Fjármögnun íbúða fyrir aldraða er í megindráttum fjórþætt: í fyrsta lagi er um að ræða Fram- kvæmdasjóð aldraðra. Ákvæði um þennan sjóð er að finna í lögum um málefni aldraðra, sem fyrst voru sett 1983, en síðan breytt 1984. Sam- kvæmt þessum lögum ber Fram- kvæmdasjóð aldraðra að styrkja byggingu þjónustuíbúða fyrir aldr- aða, verndaðra þjónustuíbúða fyrir aldraða, dvalarheimila fyrir aldraða og byggingu hjúkrunarrýmis fyrir aldraða á vegum einkaaðila. Tekjur sjóðsins eru nú nefskattur sem lagður er á alla skattgreiðendur. í samstarfsnefnd um málefni aldr- aðra eiga sæti þrír aðilar tilnefndir þannig: einn frá Öldrunarráði ís- lands, einn frá félagsmálaráðu- neytinu, tilnefndur af Sambandi ísl. sveitarfélaga, og einn skipaður af heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra án tilnefningar. Samstarfs- nefndin gerir tillögur til ráðherra um styrkveitingar úr sjóðnum. Við til- lögugerð um úthlutanir tekur fullrúi fjárveitinganefndar Alþingis sæti í nefndinni. Ráðherra ákvarðar svo endanlega úthlutun úr sjóðnum. Þess má og geta að öllum er heimilt að sækja um styrki úr Framkvæmda- sjóði. Frá 1981 hafa um og yfir 60% úthlutunarfjár komið í hlut höfuð- borgarsvæðisins og hefur B-álma Borgarspítalans fengið mest af því fjármagni. Hins vegar hefur lítið sem ekkert fjármagn farið til bygginga þjónustuíbúða á svæðinu. í öðru lagi veitir Byggingasjóður rík- isins lán til bygginga leiguíbúða eða heimila fyrir aldraða. Skilyrði þess- ara lána eru að fyrir liggi niðurstöð- ur könnunar, sem sýni þörf fram- kvæmda á þessu sviði í hlutaðeig- andi sveitarfélagi og heilbrigðisráð- uneytið mæli með framkvæmdinni. Er lánað allt að 80% af bygging- arkostnaði til 21 árs með 3,5% vöxt- um. í þriðja lagi veitir Byggingasjóður verkamanna lán skv. 33. gr. C- lið laga um Húsnæðisstofnun ríkisins (nr. 60/1984) til leiguíbúða, sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfé- lögum, stofnunum á þeirra vegum og/eða ríkisins eða af félagasam- tökum og ætlaðar eru til útleigu á hóflegum kjörum fyrir aldraða, auk námsfólks ogöryrkja. Lánstími er31 ár og 1 % vextir. Fjórða leiðin er bygging söluíbúða fyrir aldraða, en þá fara lánveitingar fram eftir almennum ákvæðum um nýbyggingar. Einnig hefur verið al- gengt að sveitarfélög eða fé- lagasamtök hafi forgöngu um bygg- ingu íbúða fyrir aldraða og selji þær síðan með ákvæðum um forkaups- rétt. Loks má geta þess að Byggingasjóð- ur ríkisins veitir svonefnd sérþarfa- lán til ellilífeyrisþega og öryrkja til að mæta kostnaði vegna sérþarfa umsækjenda. Framtíðin K ■ •annanir þær sem gerðar hafa verið á högum aldraðra á höfuð- borgarsvæðinu benda eindregið til að húsnæðismál séu þeim umtals- vert áhyggjuefni. Yfirgnæfandi meirihluti telur sérhannaðar íbúðir besta kostinn, en ekki dvalarheimili, og þá með þeirri nauðsynlegu þjón- ustu sem aldraðir þarfnast tíðum. í þessum könnunum kemur jafnframt fram að um og yfir 90% aldraðra þátttakenda býr í eigin húsnæði. 1). Ef tekið er mið af áætluðum staðli fyrir hjúkrunarþjónustu 1981, þá verður þörf aldraðra fyrir hjúkrunar- vist ekki umtalsverð fyrr en á níræð- isaldri eins og meðfylgjandi tafla sýnir: Tafla 4 Þörf á hjúkrunarvist 1981: (áætlaðir staðlar. 2). Aldur 70-74 2.6% 75-79 5.9% 80-84 10.4% 85ogeldri 27.9% Ef gengið er út frá því að þessir staðlar séu nærri sanni, þá má fram- reikna miðað við meðalkost þann fjölda aldraðra, sem hugsanlega myndar þann hóp, sem sækist eftir sérhönnuðum íbúðum fyrir aldraða á næstu áratugum. Tafla 5 Aldraðir, sem ekki þurfa hjúkrunar- vist, ef miðað er við staðalinn í töflu 4 Aldur 1984 2005 2034 65-69 4.316 4.952 10.071 70-74 3.579 4.636 9.546 75-79 2.580 3.962 7.733 80-84 1.667 2.604 5.086 85 + 982 1.687 3.888 13.124 17.841 36.324 Að sjálfsögðu munu alls ekki allir í þessum aldurshópi, 65 ára og eldri, leita eftir sérhönnuðu húsnæði, en engu að síður má gera ráð fyrir um- talsverðri eftirspurn. Hins vegar er Ijóst að markvisst þarf að stefna að því að tryggja framboð á sérhönnuðu eða a.m.k. hentugu húsnæði fyrir aldraða á næstu ára- tugum, bæði sjálfseignaríbúðir og leiguíbúðir, því að efnahagsleg staða aldraðra er ekki síður mismun- andi en heilbrigði þeirra og viðhorf. TAFLA 4. Tekjur Framkvæmdasjóðs til ráðstofunar 1981-1986 (í millj. kr.) 1981 1982 1983 1984 1985 1986 7.2 26.6 40.0 61.0 58.0 95.0

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.