Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Blaðsíða 24

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Blaðsíða 24
24 SKIPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 1 1986 Siguröur Magnússon ATHVARF FYRIR ALDRAÐA II ■ lér verður fjallað um stofnanir, sem reistar eru í þeim tilgangi að gefa sæmilega heilbrigðu öldruðu fólki kost á samvistum og margvís- legri aðstoð, a.m.k. fimm daga vik- unnar. Hugleiðingar mínar eiga ræt- ur í heimsókn til einnar stofnunar af þessari gerð í Noregi. Norðmenn nefna hana „eldresenter"-miðstöð fyrir aldraða. Mér þótti strax eðli- legast að íslenska heiti hennar með orðinu elliskjól. Síðar hefur mér ver- ið bent á að „athvarf fyrir aldraða" myndi fara betur. Vel má vera að það sé rétt, t.d. vegna þess að mörg- um stálhraustum ellilífeyrisþegum þykir óviðkunnanlegt að vera á ein- hvern hátt tengdir orðinu elli. Sjálf- um þykir mér það hvorki óeðlilegra né ógeðfeldara en orðið æska, enda eru elliglöp mín og annarra minna jafnaldra ekki ónáttúrulegri en barnabrek okkar voru. Orðið aldr- aður er auðvitað einnig ágætt og athvarf ekki lakara en skjól. En þar sem mér var í upphafi tiltækast að nefna þessar stofnanir elliskjól þá læt ég það orð flakka þó að ég geti líka prýðilega sætt mig við athvarf fyrir aldraða og viðurkenni raunar ágæti þeirrar nafngiftar með því að velja hana að heiti þessara hugleið- inga minna. Bæjarfélagið Bærum er svo samvax- ið Osló að það er í rauinni útborg hennar þó að það sé sérstakt sveitar- félag. íbúatalan er svipuð og í Reykjavík, um 83 þúsundir, en hér í Reykjavík búa nú tæplega 89 þús- und manns. Ég er ekki nógu kunug- ur í Bærum til þess að geta að öðru leyti gert samanburð á þessum tveim bæjarfélögum. Mér var sagt að hagur bæjarins í Bærum væri fremur góður enda þótt hlutfalIstala elIi Iífeyrisþega væri þar tiltölulega há. Hvort hún er svipuð og hér í Reykjavík skiptir ekki öllu í sam- bandi við það mál sem ég ætla nú að ræða. Aðalatriðið er að íbúatölur borganna eru áþekkar. í báðum til- vikum er hundraðstala aldraðra fremur há. Af þessum ástæðum er eðlilegt að menn beri öldrunar- vandamál þessara borga saman. Mánudaginn 21. október sl. var ég staddur í Bærum. Mig langar til að skýra nú frá því sem er mér eftir- minnilegast frá þeim degi: Ég fór í heimsókn í stofnun sem heitir Österaas Eldresenter. Elliskjól- ið að Austurási er eitt þeirra 12 elli- skjóla sem bæjarfélagið í Bærum hefur látið reisa. Hið þrettánda er nú í smíðum. Mér var sagt að þessi stofnun væri í öllum meginatriðum mjög svipuð öðrum elliskjólum í Bærum. Hún virtist einnig í allri gerð samstæð því elliskjóli sem ég skoðaði síðar í Osló. í Osló munu búa um 450 þúsund manns, og þar hefur verið komið upp 32 elliskjól- um. Um elliskjólið að Austurási er þetta að segja: Á 400 fermetra gólffleti hefur bæjarfélagið í Bærum reist ein- lyft hús í því skyni að koma þar upp athvarfi fyrir um 1.350 manns, 67 ára og eldri, sem eiga einir borgara rétt til þeirrar þjónustu sem stofnun- in veitir. Hún er opin 5 daga vikunn- ar frá kl. 8-16. Að sögn forstöðukon- unnar leggja þá að jafnaði 40-50 manns leið sína í stofnunina. Þó ber við að fleiri eru þar saman komnir enda nægilegt rými fyrir um 80 manns samtímis í matsal. Aðgangur að elliskjólinu er ókeypis en fólk greiðir lágt gjald fyrir þær veitingar, sem það vill þiggja, og þá þjónustu, sem það kýs að kaupa. Og hvað er í boði? í fyrsta lagi tæki- færi til samveru með jafnöldrum og í öðru lagi margvísleg dægrastytting. Ég nefni líkamsrækt, leikfimi, hár- og fótsnyrtingu, aðstöðu til spila- mennsku, margvíslegrar föndurstarf- semi, þátttöku í tungumálanámi, skipulagningu fjölbreytilegrar klúbbastarfsemi. Veitingabúð er opin. Þar er unnt að kaupa hádegis- verð eða síðdegiskaffi, fá keyptan djúpfrystan mat til að taka með sér heim, skipulagningu þeirrar heimsóknarþjónustu sem sumir hinna öldruðu vilja fá. Ef fólk veikist

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.