Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Qupperneq 30

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Qupperneq 30
30 SKIPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 1 1986 stofnun fólk með tiltölulega litla hjúkrunarþörf. Heimilishjálp er hins vegar hægt að veita í öllum sveita- hreppum og hefur hún víða verið skipulögð og er þá tiltæk ef þörf krefur. Ekki verður skilist við málefni aldr- aðra í dreifbýli án þess að nefna þýðingu ættingja og granna fyrir aldrað fólk. Það er einkenni minni byggðarlaga að allir þekkja alla og það gerir að verkum að umhverfið veitir öldruðum oft þann stuðning, sem nauðsynlegur er til þess að þeir geti búið einir lengur en ella. Ein- semd og einangrun verður ekki eins mikil. Að lokum vil ég gera að umtalsefni byggingu íbúða fyrir aldraða. Bygg- ing sjúkrahúsa og hjúkrunardeilda er víða vel á veg komin í dreifbýli með fáum undantekningum. Við tekur í vaxandi mæli bygging íbúða. Eru það einkum þjónustuíbúðir fyrir þá sem síst geta búið í núverandi húsnæði sínu. Þegar þessar bygging- ar eru hannaðar er þýðingarmikið að taka mið af því hvers konar byggðarlag er um að ræða. Því ef engin önnur viststofnun er á svæð- inu má gera ráð fyrir því að í þessari byggingu þurfi að veita íbúunum meiri aðstoð en ef t.d. sjúkrahús er í byggðarlaginu. Það getur nefnilega verið langur vegur milli þess að vera sjálfbjarga eldri borgari og þess að þurfa langtímavistun í sjúkrahúsi, einkum ef það er langt í burt. Menn verða með öðrum orðum að vera við því búnir að veita verulega aðstoð í slíkum húsum. íbúar þeirra eldast, heisan þverr og margs konar vandamál líta dagsins Ijós. Með heimilishjálp og heimahjúkrun á líka að vera hægt að hjálpa mikið ef aðstaðan er góð. Það verður aldrei nægilega brýnt fyrir forráðamönnum og hönnuðum slíkra bygginga að hafa það í huga að heilsa þeirra, sem í þessum hús- um búa, á eftir að versna með hækk- andi aldri og húsnæðið verður að vera hannað með tilliti til þess, eink- um í einangruðum smáum byggðar- lögum. T ÚNÞÖKUSALA HÖFUM ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI TÚNÞÖKUR AF ÚRVALSGÓÐUM TÚNUM. EIGUM OFTAST TÚNÞÖKUR Á LAGER í REYKJAVÍK OG AFGREIÐ- UM MEÐ LÁGMARKSFYRIRVARA. ÁRATUGAREYNSLA TRYGG- IR GÆÐIN. LANDVINNSLAN SF. SMIÐJUVEGI 12 B SÍMI 78155 HEIMASÍMAR: GYLFI JÓNSSON s. 45868 GUÐMUNDUR JONSSON s. 17216

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.