Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Blaðsíða 37

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Blaðsíða 37
SKiPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 1 1986 :í7 heimila, sem gott húsrými og áhuga hafa til að veita öldruðum dagskjól. Þetta kynni að kalla á námskeið fyrir aðstoðarfólk, sem slík heimili þyrftu að einhverju leyti á að halda, og skipulagningu á flutningi þá daga sem þessi þjónusta væri nýtt. Ég geri mér Ijóst að hér er um sveitarstjórn- arverkefni að ræða, en jafnljóst er að málefni aldraðra verður að leysa í samvinnu ríkis, og sveitarfélaga og ekki síst einkaaðila. Ráðuneytið mun leggja aukna áherslu á verkefni í þágu aldraðra. Sérstök deild er í ráðuneytinu um þennan málaflokk undir stjórn Hrafns Pálssonar. Samstarfsnefnd starfar á grundvelli laganna um mál- efni aldraðra en núverandi formaður hennar er Inga Jóna Þórðardóttir. Vænti ég mikilvægra tillagna frá þeirri nefnd. í framhaldsnámi sínu í Bandaríkjun- um vinnur Dögg Pálsdóttir að grein- argerð um öldrunarmál á grundvelli mik.ilvægra gagna, er hún hafði skráð í starfi sínu í ráðuneytinu. ' Væntir ráðuneytið þess að slík vinna hafi mikla þýðingu í áætlanagerð um þessi mál. Eitt er það, sem margir aldraðir ótt- ast öðru fremur. Það er svokölluð kölkun eða elliglöp, sem gert geta menn mjög hjálparþurfi, þótt lík- amsheilsan sé að öðru leyti í lagi. Ég hef rætt við Hallgrím Magnússon geðlækni, sérfræðing í geðheilsu aldraðra, og beðið hann tillagna um hvernig unnt væri að liðsinna betur í þessu sambandi. Líklegt er að þetta leiði hugann enn að hjúkrun og aðhlynningu. Þeir þættir eru óaðskiIjanlegir frá málefn- um aldraðra. Um þessar mundir vinnur ráðuneytið sérstaklega að úr- ræðum til að draga úr hinum tilfinn- anlega skorti á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum. M.a. hefi ég skrifað hjúkrunarfræðingum erlendis bréf vegna þessa fyrir nokkrum vikum og þegar fengið á annan tug jákvæðra svara. Nú liggja fyrir hugmyndir, sem bæði varða nám, skipulag og aðstöðu þessara stétta, er ég sannfærð um að framkvæmd þeirra leysir að ein- hverju marki þann vanda, sem við blasir. Þá vinnur nefnd að úrbótum í málefnum sjúkraliða. Er raunhæfra tillagna að vænta fljótlega. Út í þetta verður ekki nánar farið hér, en þessa getið nú sem hluta af vanda aldraðra. Við bindum því miklar vonir við námskeiðin í um- önnun aldraðra, sjúkraliðanám- skeiðin og sérnámið í öldrunarhjúkr- un. Hér að framan hafa verið reifaðar hugmyndir og getið um aðgerðir, sem miða að því að létta nokkuð líf aldraðra landsmanna. í þessum mál- um eru flestir þættir eðli sínu sam- kvæmt á verkefnalista sveitarfélag- anna og annarra samtaka borg- aranna sjálfra. Ríkið þarf að veita stuðning og tryggja sem best bæði í löggjöf og með fjárveitingum öryggi hinna öldruðu. Vaxandi verkefni eru framundan. Til að leysa þau þarf traust samstarf ríkis og sveitarfélaga. Húsfélög, leikskólar, garð- og sumarbústaðaeigendur! Framleiðum i öllum stærðum: Hús undir garðáhöld, leikhús fyrir börnin, garðbekki og borð, barnastóla og borð. Sýnishorn á staðnum Verktakafyrirtækið STOÐ, Skemmuvegi 34 N. Sími 41070 - heimasími 21608.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.