Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Page 19

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Page 19
Húsavernd Þjóðminjasafns Hjallur í Vatnsfirði í N-ísafjarðarsýslu. (Ljósmynd í eigu Þjóðminjasafns) Einn mikilsverðasti þátturinn í starfsemi Þjóðminjasafns íslands er viðhald og varðveizla gamalla bygginga og sá þáttur, sem kostar mest fjármagn. Það var þó talsvert liðið á daga safnsins er hafizt var handa um byggingavernd. - Sigurður málari Guðmundsson, sem með sanni er nefndur upphafsmaður safnsins, hafði þó mikinn áhuga á fornri húsagerð. Á þeim tíma voru samt engin tök á varðveizlu bygginga: safnið sjálft var rétt að vaxa úr grasi og mátti með réttu kallast forngripasafn eingöngu, en Sigurður teiknaði í minnisbækur sínar hugmyndir um fornbyggingar og dró upp ýmiss konar forna húsaviði og skraut, sem hann sá eða hafði spurnir af, og reyndi á sinn hátt að gera sér grein fyrir byggingum, sem þeir höfðu tilheyrt. Það var þó ekki fyrr en 1914 að fyrst er gert hér átak til að bjarga fornum byggingararfi og varðveita hann. Það ár fékk þjóðminjavörður nokkra fjárhæð á fjárlögum til að leggja til endurbyggingar hins forna skála á Keldum á Rangárvöllum, sem þá var hluti jarðarinnar en komst síðar í eigu safnsins. Um sama leyti reyndi þjóðminjavörður að koma til leiðar varðveizlu forns og merkilegs stofuhúss á Espihóli í Eyjafirði, og 1921 gekkst hann fyrir fjársöfnun til viðgerðar Bessastaða- kirkju, sem þá var bændakirkja. Árið 1924, er Hóladómkirkja hafði verið tekin á fornleifa- skrá og afhent safninu, lét það gera rækilega við hana og færa til upphaflegs vegar eftir því sem unnt reyndist. - Þar með má segja að hefjist þessi varðveizluþáttur, sem síðan hefur aukizt sífellt allt til þessa dags. Síðan tók við björgun Víðimýrar- kirkju og annarra torfkirkna og torfbæjanna stóru, en þessi hús voru þá sem óðast að falla úr notkun með því að járn- aldarþjóðfélagið forna var að líða undir lok. Þessi varðveizluþáttur hefur síðan þróazt stöðugt. Brátt kom að varðveizlu hinna elztu timburhúsa, kirkna, steinhúsa og annarra bygginga frá 18. og 19. öld og er nú svo komið að safnið á eða hefur tekið að sér umsjá og varðveizlu húsa á 22 stöðum á landinu. Er oft um að ræða stórar byggingarheildir, heila bæi með mörgum húsum og oft útihúsum að auki. Væri hvert hús talið fyrir sig myndu þau nema hundruðum. Veruleg umskipti urðu með þjóðminjalögunum 1969 er sér- stök Húsafriðunarnefnd var skipuð til að segja fyrir um varð- veizlu og friðlýsingar bygginga. 1975 urðu enn mikil umskipti er Húsafriðunarsjóður var stofnaður til að veita styrki til við- gerðar og endurbyggingar friðaðra og annarra varðveizlu- verðra húsa. Á undanförnum áratugum hefur Þjóðminjasafnið stuð'að ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.