Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Qupperneq 25
i i iiiiimiHlltT
Amtsbókasafnið á Akureyri
Sagt frá verðlaunatillögum í samkeppni
Amtsbókasafnið á Akureyri var stofnað árið 1827 og er
því rösklega 160 ára. í upphafi hét það Bókasafn
Norður- og Austuramtsins, en hafði aðsetur á Akur-
eyri, eins og verið hefur ætíð síðan. Amtsbókasafnið hefur
ávallt verið ein af virtari menningarstofnunum héraðsins,
enda þótt það hafi löngum búið við takmarkað og ófullnægj-
andi húsnæði. Þó var byggt sérstaklega yfir safnið á miðri síð-
ustu öld, en það hús stendur enn við Aðalstræti og gekk lengi
undir nafninu „Bibliotekið“.
Þegar Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi tók við for-
stöðu safnsins beitti hann sér strax varðandi húsnæðismálin. I
framhaldi af því var ráðist í samkeppni um hugmyndir að nýju
safnhúsi. Staður sá er var ætlaður fyrir bygginguna var sá
sami, sem það var síðar byggt á. Samkeppni þessa vann
Gunnlaugur Halldórsson arkitekt. Ekkert varð þó úr frekari
framkvæmdum og það var ekki fyrr en á 100 ára kaupstaðar-
afmæli bæjarins árið 1962, að sú ákvörðun var tekin, að reist
skyldi veglegt hús fyrir Amtsbókasafnið. Hönnun þess var fal-
in Gunnlaugi Halldórssyni og er það einróma álit, að það verk
hafi tekist með miklum ágætum, og er jafnan litið á þessa
byggingu sem eina stílhreinustu og fegurstu byggingu á Akur-
eyri. Hún er fullgerð og tekin í notkun árið 1968.
Starfsemin jókst með bættu húsnæði og búnaði og nú tutt-
ugu árum síðar hefur hún aukist svo, að stækkun er orðin
nauðsynleg. Þá er þess ennfremur að geta, að um nokkurt
skeið hafa verið allmiklar umræður um aðstöðu til sýninga og
tónleikahalds á Akureyri og talin þörf á að bæta þar úr. Það
þótti því við hæfi, að minnast nýrra tímamóta með því að efla
Amtsbókasafnið, en á 125 ára kaupstaðarafmæli bæjarins á
síðasta ári var einróma samþykkt að reisa nýbyggingu við
safnhúsið. Auk þess að bæta úr húsnæðisþörf Amtsbókasafns-
ins og Héraðsskjalasafnsins snerist hugmyndin einnig um það
að skapa um leið aðstöðu til listsýninga og ýmissar annarrar
menningarstarfsemi. Með því móti væri Amtsbókasafnið orð-
ið enn meiri menningarmiðstöð og enn stærri þáttur í bæjarlíf-
inu en nokkru sinni fyrr.
Eins og áður segir er bókhlöðubyggingin eitt fegursta og
stílhreinasta hús bæjarins og því nokkurt vandaverk að hanna
aðra byggingu við hlið hennar svo vel fari. Þess vegna var
ákveðið að fara út í samkeppni um þetta verk. Tilgangurinn
var að sjálfsögðu sá, að fá sem fegursta og hagkvæmasta lausn
á því máli.
Samkeppninni er nú lokið. Þátttaka var mjög góð og fór
fram úr vonum. Sýnir hún án efa áhuga arkitekta á þessu við-
fangsefni. Niðurstöður dómnefndar voru einróma, en 1. verð-
laun hlaut Guðmundur Jónsson arkitekt. í umsögn dómnefnd-
ar segir að tillaga hans sé snilldarleg aðlögun að núverandi
húsi í hlutföllum, meðferð einstakra flata og efnisvali.
Það er álit undirritaðs, að sú leið, að efna til þessarar sam-
keppni, hafi verið rétt og með henni hafi náðst það markmið,
sem stefnt var að. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka
öllum þeim fjölmörgu, sem hér áttu hlut að máli, jafnt þeim,
sem tóku þátt í samkeppninni, sem hinum, sem úr lausnunum
unnu. Fyrsta stig nýbyggingar við Amtsbókasafnið er að baki.
Þess er vænst að áfram verði haldið til þess að gera þennan
draum að veruleika. ■
Gunnar Ragnars
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG