Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Page 50

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Page 50
Fyrsta veturinn, 1953-54, var lítið að gera og ekkert að teikna og maður sá á bak mörgum góðum mönnum. Þá var það að mér datt í hug að fegra miðbæinn fyrir jólahátíðina. Fyrsta veturinn skreyttum við Austurstræti í samvinnu við for- mann Fegrunarfélags Reykjavíkur, Svein Asgeirsson, og feng- um við kaupmenn til að bera kostnaðinn. Þetta höfðum við sem vetrarstarf í tíu ár að viðbættu Flafnarstræti og Laugavegi inn fyrir Frakkastíg. Einn fyrsti viðskiptavinur minn í mínu nýstofnaða fyrirtæki var Flörður Bjarnason, skipulagsstjóri ríkisins. Síðar fór hann að ræða við mig um að skipuleggja það sem í dag er oftast kallað Hallargarður. Hann bauð mér teikniaðstöðu á vinnu- stofu skipulagsins og þangað þaut ég milli þess sem ég hafði samband við vinnuflokka mína víðsvegar um bæinn. Oft leit Hörður við hjá mér og einhverntíma varð honum að orði: „Svona gutta þyrftum við að hafa hér.“ Svo var það einn dag að ég kom að borðinu auðu, búið var að fjarlægja hálfunnar tillögur mínar, enginn vissi neitt og ég hvarf aftur við svo bú- ið. Seinna um daginn tjáði Hörður mér að hann hefði farið með tillögurnar á fund Gunnars Thoroddsen borgarstjóra og fengið þær óformlega samþykktar og innan skamms tíma voru framkvæmdir hafnar. Ekki var nú erfiðara en þetta að vinna fyrir bæjaryfirvöld. Síðar fékk ég aðstoðarteiknara minn, sem þá var Reynir Vilhjálmsson, til þess að útfæra teikninguna. Við gerð Hallar- garðsins jókst skilningur almennings á þýðingu þess að láta teikna garða fyrir sig. Um tíma var ég kominn með tvo fyrr- verandi nemendur mína sem aðstoðarmenn á teiknistofu, þá Reyni og Pálma Arngrímsson, og aðstoðarstúlku við síma sem þjónaði bæði okkur og fyrirtækinu. Þar kom að ég varð tví- stígandi. Atti ég að snúa mér algjörlega að teiknistofunni og losa mig við gróðrarstöðina? En það var einmitt á þessum tíma sem plöntuúrval í garða var mjög fábrotið. I Hallargarð- inn urðum við að grípa til þeirra plantna sem til voru, þó þær væru langt frá því að vera samkvæmt mínum óskum. Niðurstaða mín varð sú að ég yrði bara að vera eins og sveitalæknirinn sem var jafnframt lyfsali. Nokkru seinna sá ég ekki eftir þessu því það kom lægð eftir bylgjuna sem Hallar- garðurinn kom af stað. Af einhverri rælni sótti ég um stöðu garðyrkjuráðunautar (garðyrkjustjóra) Reykjavíkur'oæjar. Sex sóttu um, heilt ár tók yfirvöld að ákveða ráðningu. Einu sinni var ég kallaður fyrir af Sveini Asgeirssyni fulltrúa borgar- stjóra, Gunnars Thoroddsen. Ég var spurður um ætlan mína varðandi gróðrarstöðina, hvort ég hefði hugsað að láta hana af hendi. Mig minnir að ég hafi gefið ákaflega óljós svör. Innst inni langaði mig til þess að geta unnið fyrir fæðingarbæ minn sem sjálfstæður aðili. Ég talaði aldrei við neinn og enginn ræddi frekar við mig. Loks var skólabróðir minn úr Garð- yrkjuskólanum ráðinn. Síðan hef ég aldrei unnið neitt fyrir borgina og aldrei var rætt við mig um framvindu Hallargarðsins. Það tekur þó minnst tíu ár að gera góðan garð. Alla tíð forðaðist ég að koma í Hallargarðinn, hann olli mér vonbrigðum. Það er fyrst nú að nýráðinn garðyrkjustjóri Jó- hann Pálsson hefur leitað til mín um samvinnu við alla lagfær- ingu. Til þess að miðla fróðleik og jafnframt að kynna starfsemi mína hélt ég röð útvarpserinda, tvo sjónvarpsþætti og skrifaði í blöð og talaði á fundum. Á fyrstu árunum kallaði ég mig skrúðgarðaarkitekt. Eitthvað fór þetta starfsheiti illa í stjórn- endur Arkitektafélags íslands því þeir höfðuðu mál gegn mér. Mér var gert að koma fyrir dómara og leggja fram öll mín próf. Sigurður Reynir Pétursson hrl. með Gísla Isleifsson sér við hönd tók upp vörn. Ég var sýknaður en sár, því þetta voru einmitt þeir aðilar sem ég vildi vinna með. Það var eins og slegið hefði verið á hendur manns. Sök á ég kannski nokkra því í erindum mínum hélt ég uppi óvæginni gagnrýni á húsagerð og skipulag lóða, gatna, hverfa, bæja. Hinsvegar veldur það mér ánægju í dag að það er eins og flestar óskir mínar frá þessum árum hafi verið uppfylltar. Húsagerð hefur breyst, samband húss og garðs hefur batnað. Landslagsarkitektar eru nú starfandi hjá Garðyrkjustjóra, Skipulagsstjóra og Borgarskipulagi og úti um land hjá öðrum bæjarfélögum og er vonandi að áhrifa þeirra gæti í vaxandi mæli. Hvern þátt ég hef átt í þessari þróun get ég ekki sagt og gagnrýni mín hefur sennilega oft verið blandin óréttlátri óþol- inmæði. Nemendur mínir þeir Reynir og Pálmi fóru frá mér og ég leitaði á náðir Lúðvigs Guðmundssonar skólastjóra að útvega mér aðstoðarmann í teiknun. Til mín kom Hrólfur Sigurðsson listmálari, útskrifaður af listakademíunni í Kaupmannahöfn. Við unnum saman hlið við hlið í átta ár. Ég dró línur milli þess sem ég þurfti að sinna fyrirtækinu og hann útfærði. Þetta starf með Hrólfi þroskaði mig meir listfræðilega en skólanám mitt og er ég honum eilíflega þakklátur fyrir það sem hann miðlaði mér. Hrólfur varð að hætta sökum sjúkleika sem hann berst við. Næst kom til mín Diter Rot og var hjá mér í tvö ár, það var Ragnar Kjartansson myndhöggvari sem kom okkur saman og áfram hélt ég að læra. Diter var ákaflega fær enda orðinn bæði prófessor og heimsfrægur listamaður. Á fyrstu árunum unnu hjá mér við garðyrkju margir góðir menn og mér sér- staklega minnisstæðir úr kennarastétt, leikarastétt og hljóm- listarmenn auk garðyrkjumanna. . Eftir nær tólf ára baráttu gerði ég hlé á starfseminni, leigði fyrirtækið og gerðist aftur kennari bæði við gagnfræðaskóla og garðyrkjuskóla. Ég hafði verið lengst af einn í faginu eða þar til Reynir Vilhjálmsson kom heim frá námi 1963. Þar kom að ég hætti kennslu og tók til að teikna aftur, nú einn og laus við fyrirtækið. Nú vorum við Reynir ekki lengur tveir, nú vorum við orðnir fimm landslagsarkitektar og stofn- uðum félag 24. febr. 1978 er hlaut nafnið Félag íslenskra landslagsarkitekta. Auk okkar Reynis voru það þau Auður Sveinsdóttir, Einar E. Sæmundsen og Reynir Helgason. Á þessu ári varð félagið tíu ára og félagarnir orðnir átján. Fleiri eru væntanlegir í hóp okkar úr námi alveg á næstunni. Félagið hefur frá upphafi verið aðili að alþjóðasamtökum landslags- arkitekta IFLA. Það hefur sýnt sig að eftir því sem hópur okkar stækkar eykst skilningur almennings á starfi landslagsarkitektsins, verkefni aukast og augu annarra fag- manna opnast fyrir þörfinni á nánari samvinnu við að skapa okkur sjálfum manneskjulegra umhverfi. ■ Jón H. Björnsson, landslagsarkitekt ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.