Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Qupperneq 63
Fyrirhuguð byggð sunnan Skúlagötu.
Ráðgerðar byggingar vestan Vitastígs.
Höfuðmarkmið við gerð tillögunnar er, að samkvæmt því
megi reisa byggð sem virki vel fyrir íbúa innan hennar og í
hverfinu almennt, en sem jafnframt sé í samræmi við staðsetn-
ingu innan borgarinnar.
Skilgreining Aðalskipulags Reykjavíkur 1962-83 varðandi
uppbyggingu meðfram Skúlagötu er eftirfarandi:
„Húsaröðin meðfram Skúlagötu verður mjög mikilsverð frá
byggingarlistrænu sjónarmiði. Gagnvart þeim sem koma á sjó
til borgarinnar er þessi húsaröð áberandi hluti af sjávarbakk-
anum. Og þeir verða margir, sem á komandi árum aka
Kleppsveg og Skúlagötu í áttina að Miðbænum. Allt frá Laug-
arnesi blasir húsaröðin við Skúlagötu sem forgrunnur borgar-
innar. Það er áríðandi, að hún verði endurnýjuð smátt og
smátt með stórum húseiningum með rólegu yfirbragði. Húsa-
hæðin má ekki vera mikil, svo að sjá megi glöggt hvernig
byggðin rís hærra og hærra upp eftir hallandi landi Austurbæj-
arins að baki húsunum við sjóinn".
Skilgreining Aðalskipulagsins er enn góð og gild, en nálgast
má sama markmið með mismunandi hætti. Stórar húseiningar
með rólegu yfirbragði (jafnvel sambyggðar) eru til dæmis í
ósamræmi við smágert, en fjölbreytilegt yfirbragð byggðarinn-
ar að baki. Stallaðar byggingar í grunnmynd og í hæðum, sem
í eðli sínu geta verið í smáum mælikvarða, þó nýtingarhlutfall
sé hátt, eru líklegri til að samræmast ofangreindum einkenn-
um byggðarinnar.
Ofangreint sjónarmið mótar yfirbragð skipulagstillögunnar
öðru fremur, auk hugmynda sem koma fram í markmiðum og
skilyrðum fyrir einstaka þætti innan hennar. Aðalyfirbragð
kemur fram í smáum einingum sem rísa mismunandi hátt, frá
2 í 11 hæðir.
Eitt af sérkennum gatnakerfis í norðurhalla Skólavörðu-
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
holts er útsýni niður eftir götum, svo til þvert á halla landsins.
Tillagan gerir ráð fyrir gatnakerfi í aðalatriðum óbreyttu,
þannig að þessi sérkenni verði til staðar eftir sem áður.
Utsýni frá núverandi byggð á holtinu, þar sem þess má
njóta fyrir nágrannahúsum, er í aðalatriðum innan sjónvinkils
frá vestri til austurs og er mjög margbreytilegt. Eins og fram
kemur í grein 3, er í formi tillögunnar, með hæðum húsa og
staðsetningu, gert ráð fyrir að útsýni verði frá byggðinni á
holtinu um leið og byggðin sjáist yfir nýbyggingarnar frá ýms-
um sjónarhornum.
Upplýsingar liggja fyrir frá Veðurstofu íslands um helstu
einkenni vinda á svæðinu. Þar er gert ráð fyrir að styðjast
megi við eins konar meðaltal mælinga í Engey og á Reykja-
víkurflugvelli, þar sem mælingar eru ekki til í þessum borgar-
hluta. Þar kemur fram að vegna staðhátta á svæðinu sé nauð-
synlegt að gefa gaum að norðlægum áttum í skipulagi þess.
Helstu vindáttum, sólarhæð og stefnu er svarað í gerð
skipulagsins á þann hátt, að forma byggðina f þyrpingar um-
hverfis sameiginleg svæði. Hver þyrping er lægst í suðri, undir
sólarhorni 23 gráður, eða opin, en rís til norðurs, þar sem hús-
in eru hæst.
Umferðarhávaði við Skuggahverfi mun fyrst og fremst stafa
frá umferð um Sætún. Vegna legu brautarinnar norðan við
hverfið er ekki litið á svæðið milli þeirra sem íbúðarsvæði eða
útivistarsvæði íbúa næstu húsa. Það svæði er ætlað sem að-
koma að bílastæðum, bílskýlum og hugsanlegu þjónustuhús-
næði á jarðhæðum bygginga við Skúlagötu, ásamt þjónustu-
húsnæði norðan götunnar.
Leiða má rök að því að umferðarhávaði sé meiri hér á landi
sem einhverju nemur, a.m.k. að vetrariagi, vegna akstursskil-
yrða og aksturs á negldum dekkjum með snjómunstri. Af
þessari ástæðu er í tillögunni gert ráð fyrir byggingu hljóð-
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG