Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Page 81
TVOFALT HUS
Undirritaður hefur með aðstoð teiknistofunnar að
Laugavegi 96 (Hrafnkell Thorlacius og Björn Emils-
son) hannað þetta hús. Saga undirritaðs er í stuttu
máli sú, að hann er talinn höfundur að t.d. Ramma hf. í
Njarðvíkum, Húseiningum hf. á Siglufirði, Húsaeinangrun hf.
og nokkrum hlutum ónefndum.
Ofangreint hús er í sjálfu sér nokkur nýjung og um leið eins
konar „vending á notkun byggingarefna".
Aðalhugsunin í þessu er fyrst og fremst bygging svokallaðs
veðurhjúps sem ysta lags bygginga. Pcssi veðurhjúpur er
byggður algerlega sér og á hann að þola öll veður. A eftir
þessu er svo hið eiginlega hús byggt þar inni og er það jafnvel
algerlega óháð því ytra.
Þetta ytra rými er byggt úr ýmsum efnum, t.d. límtré sem
trégrind og síðan klætt með einföldu gleri og svo til jafn þykk-
um plötum vatns- og eldþolnum og í hvaða lit sem er. Þakið
er svo klætt á ósköp venjulegan hátt og endar á bárujárni.
Þetta á að verða nægilega vatns- og vindþétt. Menn taki eftir
því að ekki eru neinir venjulegir gluggar í þessu. Þetta er ein-
falt skýli að öllu leyti og á að hafa þetta ákveðna hlutverk:
„veðurkápa". Þá eru þarna einfaldar hurðir og, vel að merkja,
þétting er ekki neitt mál. Þetta er byggt til að standast öll veð-
ur eins og fyrr segir. Þá ber þess að geta, að grunnur er afar
einfaldur eins og teikningar sýna.
Miðað við þetta er það athyglisvert, að þetta hús færi seint
undir það sem kallað er endurnýjun. Það eina sem gerðist yrði
það, að skipta þyrfti um gler eða plötu á venjulegan hátt. Það
yrði svo eftir vali á þessum hlutum hver endurnýjun yrði.
Bygging þessa veðurhjúps er afar fljótleg. Það sem tekur
við er nánast innivinna.
Það sem við sjáum nú er að ekki er nein þörf á útveggjaefni
í húsið. Hér er nánast hægt að hugsa sér nærri hvað sem er í
staðinn og þá fyrst og fremst innveggjaefni. Við sjáum einnig,
að ekki er nauðsynlegt að hafa í þessum veggjum það sem
vanalega er kallað gluggar í húsum með þéttingum og tilheyr-
andi. Segja má að hér sé um að ræða það sama í hurðakörm-
um og í gluggum. Síðan kemur gler, ekki tvöfalt, heldur eitt
eða tvö gler og sett nánast í án nokkurrar sérstakrar þéttingar.
Þess ber að geta, að nú er verið að auglýsa innveggi, einmitt
byggða á þennan hátt og er ekki gerð tilraun til að breyta því.
Vitað er að sumar tegundir brenna ekki og ekki heldur grind
þeirra og verður því að segja, að slík hús brenna ekki. Verð
hússins fer svo auðvitað eftir því sem ytra húsið kostar og svo
hvað innveggirnir kosta.
Það er síðan stærð ytra rýmisins sem ræðst af því hvort bíl-
skýli kemur þar inn, hvort þarna sé rætt um gróðurskála,
geymslur, þvott eða leiksvæði fyrir börn o.fl.
Reiknað er með steyptu gólfi og slípuðu. í ytra rýminu -
milli veggja - er reiknað með nærri því hverju sem er. Ætlast
er til að það sé sérstaklega valið í hverju tilviki.
í innra húsinu er úthringurinn og loftið einangrað auk gólfs.
Hér fer á eftir umsögn Rannsóknastofnunar byggingariðn-
aðarins um þetta hús frá 5. maí 1988:
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG