Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Page 85
Stjórnsýsluhús á ísafirði
Fimmtán fyrirtœki og stofnanir undir einu þaki
arkitektar: Albína og Guðfinna Thordarson
burðarvirki: Verkfræðistofa Sig. Thoroddsen h.f.
lagnir: Verkfræðistofa Sig. Thoroddsen h.f.
raflagnir: Rafhönnun h.f.
landslagsarkitekt: Björn Johannessen
að var 17. september s.l. að Stjórnsýsluhúsið á ísafirði
var formlega tekið í notkun. Þá voru aðeins liðin 4 ár
frá því að samkeppni var haldin um hönnun hússins
og aðeins 3 ár frá því að framkvæmdir hófust.
Hugmyndin um hús fyrir helstu stjórnsýslustofnanir á Isa-
firði er þó ekki ný. 14 ár eru liðin síðan Jóhann T. Bjarnason
reifaði þessa hugmynd og hefur haldið henni vakandi síðan.
Það er óneitanlega skemmtilegt fyrir arkitekta að sjá verk
sfn rísa svo fljótt og greiðlega. Flest samkeppnisverk liggja ár-
um saman í skúffum útbjóðenda áður en menn hafa krafta og
kjark, þor og fjármagn til framkvæmda, ef þeir þá nokkurn
tíma leggja í að halda áfram.
Öll hugmynd hússins hélst frá samkeppnisstigi til lokafram-
kvæmda. Tiltölulega litlar breytingar hafa orðið á húsinu frá
því að samkeppnin fór fram ef undan er skilið, að húsnæði
það, sem Áfengisverslun ríkisins var ætlað í samkeppninni, er
nú orðið að lögreglustöð. Þar sem slíkt húsnæði er fyrst og
fremst lokað húsnæði, sem ekki á samleið með almennu skrif-
stofuhúsnæði, er þeirri starfsemi komið fyrir í sérstakri út-
byggingu frá aðalhúsinu.
Lokið var við húsið að fullu og fluttu allflestir inn tveim
dögum áður en formleg opnun fór fram. Flestir þeir, sem
fluttu inn í húsið, höfðu búið við þröngan húsakost og gamalt
innbú af ýmsum toga. Þörfin fyrir þetta hús var orðin mikil,
þar sem ekki hafði verið byggt skrifstofuhúsnæði á ísafirði í
aldarfjórðung, eða frá því að Landsbankahúsið var reist.
Við opnunarhátíðina kom vel í ljós hversu vel fólk rúmast í
húsinu. Hvergi mynduðust þrengsli eða flöskuhálsar. Það
gerðist ekki heldur daginn eftir, þegar öllum bæjarbúum var
boðið upp á kaffi og kökur í húsinu. Þá komu í húsið 1300-
1400 manns á þremur klukkustundum. Einhver komst þannig
að orði að nú væri hægt að halda 17. júní hátíðahöldin innan-
húss, enda hægt að vera í miðrými á öllum hæðum og fylgjast
með því sem gerist á neðri hæðum.
Markmið okkar var að hanna hús sem tengdist vel umhverfi
sínu. Aðkoma að húsinu er annars vegar frá Silfurtorgi og
hins vegar frá bílastæðum við Pollinn. Því eru aðal-inngang-
arnir tveir og tengjast báðir miðrýminu á 1. hæð hússins.
Miðrými hússins er lykillinn að allri notkun þess. Að því
snúa allar stofnanir hússins. Þar er opið upp í gegnum allar
hæðir og yfir því er glerþak. Þetta glerþak stóð nokkuð í
mönnum og áður en dómnefnd kvað upp úrskurð sinn lét hún
reikna út hitatap og fleiri þætti, sem að glerþakinu snúa. Við
þá útreikninga kom í ljós að hitatap var mun minna en ætla
mætti og er skýringin sú að húsið er mjög samanþjappað að
öðru leyti. Þetta mikla glerhýsi verður til að tengja húsið mjög
náið umhverfi sínu. Það verkar nánast eins og framhald af
Silfurtorginu og Iýsir upp allt umhverfi sitt. Auk þess að flytja
umferð um húsið má nýta miðrýmið með ýmsum hætti. Það er
ákjósanlegt fyrir sýningar af ýmsu tagi, sem geta verið á einni
hæð eða fleirum. Það tengist einnig funda- og ráðstefnuað-
stöðu á 4. hæð.
Haldin var lokuð samkeppni um listskreytingu í miðrými
hússins á 1. hæð og varð Steinunn Þórarinsdóttir hlutskörpust
og mun verk hennar verða sett upp þar innan tíðar.
Hvað efnisval varðar er burðarvirki hússins steyptir útvegg-
ir, súlur og plötur. Húsið er einangrað að utanverðu og klætt
Alucobond plötum í silfurgráum lit. Hurðir og gluggar eru úr
álprófílum. Miðrými er klætt gráum viðarþiljum, en álklæðn-
ing að utan nær inn fyrir glugga og mætir viðarklæðningunni.
Marmari er á öllum gólfum í almenningsrými. Hengiloft eru
úr hvítlökkuðum málmlistum.
Heildarflatarmál hússins er 4.437 m2 og heildarrúmmál
16.160 m3. Heildarkostnaður við bygginguna var um 310 millj-
ónir (uppreiknaður kostnaður í september 1988) og kostnaður
er því tæpar 70.000 kr/m2.
I verkefni sem þessu skiptir miklu máli að gott samstarf ná-
ist með öllum aðilum. Segja má að allir aðilar hafi lagst á eitt
við að verkið mætti ganga sem best. Byggingarnefnd var
óvenju samvalin og staðráðin í að ljúka sínu verki sem best.
Formaður byggingarnefndar var Haraldur L. Haraldsson,
bæjarstjóri, en aðrir í nefndinni voru: Högni Þórðarson,
bankastjóri Utvegsbankans, Jóhann T. Bjarnason og Brynjólf-
ur Sigurðsson, prófessor. Eftirlitsmaður var Eyjólfur Bjarna-
son. ■ Albína og Guðflnna Thordarson
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG