AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Blaðsíða 11
G E
S T U R
ÓLAFSSON
W
með dönsku sniði og hins vegar
íbúðar- og atvinnuhús íslendinga sem oft voru
byggð af miklum vanefnum og mikið til úr þeim
efnum sem landið gaf. Erlendir straumar í bygg-
ingarlist og byggingartækni höfðu hverfandi áhrif
á byggingar landsmanna fram að síðustu alda-
mótum, en upp úr því fór samt að bera á tilraun-
um til þess að þróa séríslenskan byggingarstíl.
Frá þessum tíma hafa átt sér stað umtalsverðar
framfarir því á þessari öld hafa íslendingar
kemur það mönnum í koll áður en varir. Þetta
hefur kennt íslenskum hönnuðum og byggingar-
aðilum að vanda vel til verka. Þeir hafa líka lært
að færa sér í nyt aðstæður á byggingarstað til
þess að búa til mannvænlegt umhverfi bæði hér á
norðurslóðum og annars staðar þar sem þeir hafa
verið að verki. Á örfáum áratugum hafa íslending-
ar t.d. orðið leiðandi í þróun tækni við nýtingu
jarðvarma til að hita upp hús og hafa í kjölfarið
SLENSKUR arhitektúr
CELANDIC arcnitecture
eignast hátt á fjórða hundrað arkitekta, auk verk-
fræðinga, skipulagsfræðinga, tæknifræðinga,
landslagsarkitekta og innanhússarkitekta, sem
allir hafa lagt drjúgan skerf til íslenskrar byggin-
garlistar og umhverfismótunar. Þessir hönnuðir
hafa margir hverjir lært í bestu háskólum um víða
veröld og hafa auðgað umhverfi okkar með þeirri
menntun og menningu sem þeir hafa haft heim
með sér að námi loknu. Þessir aðilar hafa líka
starfað um víða veröld, geta unnið á fjölmörgum
tungumálum og bjóða nú þjónustu sína í öllum
heimshornum.
íslenskt veðurfar og umhverfi er strangur skóli
fyrir þá sem hanna og reisa mannvirki. Hér dugar
ekki að kasta til höndunum, því ef það er gert
orðið ráðgefandi á þessu sviði víða um heim. Nú
er líka markvisst unnið að nýtingu vetnis hér á
landi til þess að knýja bílaflota landsmanna og
hugsanlegt er að ísland verði fyrsta landið þar
sem notkun þess verður almenn.
Áframhaldandi framfarir í mannvirkjagerð og
umhverfismótun eru samt ekki tryggðar án þess
nauðsynlega jarðvegs sem rannsóknar- og
menntastofnanir mynda. Þótt enginn arkitekta-
skóli sé enn starfandi á íslandi hefur nú verið
ákveðið að hefja hér kennslu í byggingarlist. Þetta
á án efa eftir að verða mikil lyftistöng fyrir íslenska
hönnun, mannvirkjagerð og umhverfismótun á
komandi árum. ■
9