AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Síða 24
1. Jökulsá á Brú. Bogabrú, hönnuð af Línuhönnun
hf. í samvinnu við Vegagerðina.Verktaki, ístak hf.
Burðarvirki brúarinnar er samsett stál- og stein-
steypuvirki. Neðri hluti bogans er stálrammi og
steypt ofan á hann. Einnig er neðri hluti gólfsins
stálrammi með steyptu berandi slitlagi ofan á.
2. Brú yfir Kringlumýrarbraut, Reykjavík.
Hallandi stöðlar gefa mikla breidd fyrir akbrautina
undir brúnni með sem minnstri efnisnotkun.
Brúin er hönnuð af Línuhönnun. Ljósm: SAV
3. Göngubrú yfir Kringlumýrarbraut í Fossvogi,
Reykjavík.
Burðarvirki brúarinnar er úr stáli, en gólf er úr
timbri. Hönnun, Línuhönnun og Stúdíó Granda.
Ljósm: SAV
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON VERKFR/EOINGUR
Fyrir rúmri einni öld voru fyrstu brýrnar
fyrir vagnaumferð byggðar hérlendis.
Brýrnar frá því fyrir aldamótin 1900 eru
ekki lengur til, en nokkrar frá fyrstu ára-
tugum tuttugustu aldarinnar eru enn við
lýði. Sumar þessara brúa voru hin feg-
urstu mannvirki og má enn dást að t.d. gömlu
Fnjóskárbrúnni og brúnni yfir Hvítá í Borgarfirði hjá
Ferjukoti. En með kreppunni eftir 1930 virtist eins
og hönnun með hliðsjón af fagurfræði hafi látið í
minni pokann, ekki bara í brúarsmíð en einnig í
annarri mannvirkjagerð.
Það var eiginlega ekki fyrr en á áttunda ára-
tugnum að fór að skipta um og hönnun með hlið-
sjón af afar takmörkuðum fjárhag komst að.
Líklega voru brýr og önnur vegamannvirki fyrr á
árum einfaldlega hönnuð miðað við þá verkkunn-
áttu og hagkvæmni, sem landinn bjó yfir á þeim
tíma, og allt þurfti að vera sem ódýrast, einnig
hönnunin. Verkfræðistofan Línuhönnun, í sam-
vinnu við aðra, hefur á undanförnum árum hannað
ýmiss konar mannvirki tengd samgöngum og
hefur þar verið meir litið til fagurfræði mannvirkj-
anna en þekkst hefur um áratuga skeið. Verður
lítillega sagt frá nokkrum þeirra á þessum blöðum.
Fyrir tuttugu árum og lengur voru margir helst á
því að vegir og götur ættu að vera sem beinust og
öll smíð, sem ekki var gerð með sléttum og horn-
22