AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Síða 35
1. Eitt af glæsilegustu báru-
járnshúsunum frá síðustu
aldamótum, leikhúsið Iðnó,
nýlega endurnýjað.
Ljósm.SAV
2. Bæklingur Minjaverndar:
Bárujárn, verkmenning og
saga.
3. Sum fallegustu bárujárns-
húsin standa við Tjarnar-
götu, Rvk. Ljósm.: SAV
Arið 1995 gaf Minjavernd út
bæklinginn Bárujárn, verk-
menning og saga. Ritstjóri
þessa ágæta bæklings var
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt,
en meðhöfundar hans eru arki-
tektarnir Grétar Markússon og Stefán Örn
Stefánsson.
Bæklingurinn er 60 bls. að stærð og gefur
gott yfirlit um þennan þátt ísienskrar mann-
virkjagerðar. Hér fer á eftir útdráttur úr þess-
um bæklingi, en hann er m.a. fáanlegur á
skrifstofu Arkitektafélags íslands. (ritstj.)
Bárujárnsklædd timburhús eru óvíða til annars
staðar en á íslandi og líklega hvergi í jafnríkum
mæli. Þau eru snar þáttur í byggingarsögu okkar
og bæjarmenningu. Þau eru sérstakt framlag
íslensku þjóðarinnar til húsagerðarsögunnar,
enda vekja þau athygli þeirra ferðamanna sem
hingað koma og hafa auga fyrir því sem ein-
kennir umhverfi okkar.
Bárujárn endist ekki að eilífu frekar en önnur
byggingarefni. Oftast er það tæring, þ.e. ryð,
sem takmarkar endingu þess. Stundum má
kenna um óheppilegum eða beinlínis röngum
33