AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Blaðsíða 45
Útisvið á miðbæjartorgi.
Samanburðartillögur um
skipulag
MIÐBÆJAR KÓPAVOGS
ndanfarin ár hefur
mikið verið ritað og
rætt um miðbæi/mið-
hverfi þeirra átta
sveitarfélaga sem
V V saman mynda höfuð-
borgarsvæðið, en allir þessir mið-
bæir eru að meira eða minna leyti
í samkeppni sín á milli um fólk og
fyrirtæki. Á Kópavogshálsi hefur
gengið erfiðlega að mynda miðbæ
sem gæti bæði staðist þessa
samkeppni og boðið fólki upp á
aðlaðandi miðbæjarumhverfi. Nið-
urstaða þess svæðisskipulags
sem nú er verið að vinna fyrir
höfuðborgarsvæðið mun að öllum
líkindum marka ramma fyrir fram-
tíðarþróun alls höfuðborgar-
svæðisins, en engu að síður munu einstakar
sveitarstjórnir geta haft umtalsverð áhrif á það
hversu aðlaðandi hver miðbæjarkjarni verður.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti því eftirfarandi
tillögu, 10. nóvember 1998:
„Bæjarstjórn samþykkir að ráðnir verði 3-4 aðilar
til að gera tillögur að mótun, notkun og frágangi á
miðbæjarsvæði Kópavogs og felur bæjarskipulagi
að undirbúa og hafa umsjón með framkvæmd
málsins. Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að falla
frá almennri hugmyndasamkeppni um skipulag
miðbæjarsvæðisins, sbr. bókun bæjarráðs frá 26.
mars 1998. Frumtillögur að mótun, notkun og frá-
gangi á miðbæjarsvæðinu liggi fyrir 1. mars en full-
unnar hugmyndir 1. október 1999.“
Á fundi bæjarráðs 3. desember 1998 var sam-
þykkt að ráða eftirtalda aðila til að leggja fram
samanburðartillögur um skipulag miðbæjarsvæð-
isins:
Benjamín Nagnússonf arkitekt* Kópa-
vogi.
Jakob E. Líndal og Kristján Ásgeirsson,
arkitektar. Kópavogi.
RagnhildiSkarphédinsdóttur.landslags-
arkitekt.
Til að yfirfara og meta tillögurnar var skipaður
vinnuhópur af bæjarráði og í hann voru valin:
Ármann Kr. Ólafsson, formaður skipulagsnefndar,
sem jafnframt var formaður vinnuhópsins, Sigrún
Guðmundsdóttir, skipulagsnefnd, Hulda Finnboga-
dóttir, formaður miðbæjarsamtaka Kópavogs,
Steingrímur Hauksson, deildarstjóri hönnunar-
deildar og Aðalheiður E. Kristjánsdóttir, landslags-
arkitekt.
Ofangreindir aðilar skiluðu allir tillögum, en vin-
nuhópurinn lagði til við bæjarráð að unnið yrði út
frá tillögu Auðar Sveinsdóttur og Benjamíns
Magnússonar. Tillaga þeirra gerir m.a. ráð fyrir að
byggt verði yfir gjána í heild, að Hamraborg verði
klofin með eyju með einstefnu í báðar áttir. Gert er
ráð fyrir bílastæðahúsi norðan Listasafns og
bílastæðum austan Tónlistarhúss. Gerð er ný að-
koma frá Vallartröð að Fannborg og aðkomu að
bæjarskrifstofum og fyrirkomulagi bílastæða
breytt.
í umsögn vinnuhópsins segir m.a. um þá tillögu
sem hlutskörpust varð:
UNFERÐ
„Tillagan gerir samtals ráð fyrir 119 bílastæðum
við Hamraborg milli Vallartraðar og Skeljabrekku,
þar af eru 42 stæði sunnan götu (á efra plani) og