AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Side 55
Deiliskipulag vistþorpsins að Brekkubæ Hellnum.
Skipulagssvæðið er 3,4 hektarar. Nýjar byggingar
eru 15, sýndar í minnstu 5-hyrningunum. Þjónustu-
byggingar eru sýndar í stærri 5-hyrningunum. Sam-
eiginleg bygging er í ferköntuðum ramma. Þær
byggingar sem fýrir eru nú á staðnum eru ferkant-
aðar. Teikning: Einar Þorsteinn Asgeirsson.
arkerfi, sólarsellum, trjágróðri og vindorku. Þá er
einnig gert ráð fyrir notkun hábrunaofna til upp-
hitunar, t.d. með rekavið. Þetta eru svokallaðir
„massaofnar" sem hafa tvö brunahólf.
Bruni þeirra myndar mun minni koltvísýring en
venjulegir ofnar ( allt að 99% minni) og eru þar að
auki „reyklausir": þeim fylgir litlaus reykur. - Einnig
mætti nota lífrænt gas sem myndast við niðurbrot
og gerjun. Það má geyma í til þess gerðum þrýsti-
kútum.
HREINT VATN
Leitast er við að spara neysluvatn - svokallað
hvítvatn - sem mest m.a. með vatnssparandi tækni
innanhúss. Ringingarvatni er safnað saman í stóra
tjörn. Það er svo notað í alla grófa vatnsnotkun
eins og t.d. til að þvo bíla, vökva jurtir innanhúss
sem utan, jafnvel í klósettspúlun ef vantssalerni er
í húsinu. Það er einnig hagkvæmt að safna rign-
ingarvatni í tjarnir hérlendis af einföldum leiðslu-
ástæðum. Því skolplagnir vistvæns húss og frá-
rennsli frá því henta ekki fyrir rigningarvatn. Þvert
á móti er það sjálfbær kostur að blanda ekki
saman því mismunandi vatni sem til fellur við hús-
byggingar (sjá næsta lið).
SKOLP
Undir þessum lið verður mesta breytingin frá
vatnstækni hefðbundins húss. Það er aðskilnaður
skolps í svartvatn og grávatn. Svartvatnið saman-
stendur af lágmarks vatnsmassa og föstum mann-
legum úrgangi (saur t.d.) en hér flokkast einnig
með lífrænn úrgangur úr eldhúsi. Svartvatnið / líf-
ræni úrgangurinn er látið brjóta sig niður í lífræn-
um ferli í þar til gerðum þurrum eða rökum rot-
þróm. Af þessum úrgangi þurrrotþrónna breytast
19/20 hlutar í lofttegund (gas) sem fer um loftunar-
rör út í gegnum þakið. - Þetta gas má raunar einn-
ig nota til bruna og til hitunar með sérstakri hrein-
tækni,- En 1/20 svartvatnsins verður eftir í rot-
þrónni og er svo hreinsað út þaðan eftir u.þ.b. níu
mánaða feril. Þá má nota það beint til áburðar á
plöntur utanhúss samkvæmt sænskum stöðlum.
Grávatnið samanstendur af öllu öðru skolpi: úr
Útlitsteikning af húsi í vistvæna þorpinu í Brekkubæ
Hellnum. Húsið er I00m2 á einni hæð með stórri stofu, eld-
húsi, barnaherbergi og baðherbergi. Lítið svefnloft er yfir
hluta af hæðinni, tvö barnaherbergi og bað. Hálfur kjallari,
50m2,er undir húsinu.
þvottavél, baði, sturtu o.s.frv. Það fer annaðhvort í
úrvinnslu á lóðinni í sameiginlegri miðstöð eða í
húsinu sjálfu. Skilvinda skilur fyrst úr föstu efnin -
t.d. sápuna - og síðan er vatnið sigtað í gegnum
sandbeð þar sem plöntur vaxa. En þær vinna svo
steinefnin úr vatninu. Unnt er að nota slíkan útbún-
að fyrir eitt stakt hús, en hagkvæmast er að nota
hann saman fyrir 20-30 hús.