AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Síða 56
The Four Residential Clusters
at GUNNARSHOLMI
RUSL
Hér er gert ráð fyrir aðskilnaði rusl-gerða. Líf-
rænt sorp fer t.d. í einangraðan safnhaug, sem er
skylt að hafa við hvert hús. Annað rusl er brennt til
upphitunar, ef hábrennsluofn er fyrir hendi. Og
plönturnar sem vinna steinefnin úr grávatninu - t.d.
pílviður - eru einnig notaðar til upphitunar með
brennslu. Þannig tengjast nokkrir af þessum níu
þáttum saman. í hverfinu er gert ráð fyrir gámum
fyrir umbúðir eða önnur efni sem ekki er unnt að
urða eða brenna.
BYGGINGAREFNIN
Það er meginatriði að byggingarefnin uppfylli þrjú
skilyrði:
1) Að þau séu óskaðleg heilsu íbúanna til
langframa.
2) Að framleiðsla þeirra hafi ekki krafist afger-
andi mikillar orkunotkunar.
3) Að þau þurfi ekki óeðlilega mikils viðhalds
með.
Endurnotkun byggingarefna er vel séð. Bæði
einstakra byggingarhluta og heilla húsa. Það er
t.d. sjálfbær kostur að nota rekavið sem íslenskt
byggingarefni. Bæði er hann fúavarinn og einnig
„óunnið náttúrlegt hráefni".
GROÐUR
Gróður er notaður meira en í hefðbundnum
húsum bæði utan- og innandyra. - Jafnvel er er-
lendis reynt að lokka dýralíf að húsinu, t.d. fugls-
hreiður. - Gróður er bæði notaður til þess að varna
útfjólublárri geislun sólarljóssins á byggingarefnin,
eða t.d. sem lokaklæðning á þak, t.d. torfþak. Trjá-
lundir við hús á móti vindátt geta dregið verulega
úr vindkælingu húsanna og er þar með aðferð til
orkusparnaðar. En stærð þeirra þarf þá að vera
meiri en unnt er að framkvæma á venjulegum
litlum íbúðabyggingalóðum. Plöntur sem breiða
lauf sín fyrir glugga á sumrin, þegar heitt er inni,
geta og temprað sólarhitann. Inniplöntur jafna
einnig raka í húsunum. Og plöntur hreinsa svo
steinefnin úr grávatni eins og áður er sagt.
FÉLAGSLEGI ÞATTURINN
Enginn af þessum hreintæknilegu notkunar-
möguleikum er hugsanlegur nema vegna þess að
íbúar svæðisins hafi vilja til þess að breyta lífshátt-
um sínum í átt að þessum sjálfbæru sjónarmiðum.
Þannig er vistvænt/sjálfbært deiliskipulag ekki
framkvæmanlegt nema vegna þess, að þeir sem
ætla að búa við það kjósi það sjálfir. Samheldni
íbúanna og reynslan af því að búa í sjálfbærri
byggð kemur til með að leggja grunninn að fram-
tíðinni á þessu sviði. - Öfugt getur sundurlyndi um
útfærslu visthæfni/sjálfbærni deiliskipulagsskil-
málanna komið í veg fyrir að útfærsla vistvæns
deiliskipulags sé meira en orðin tóm,- Gera má ráð
fyrir hægfara þróun þessa málaflokks hér sem
annars staðar af þessum orsökum.
54